Morgunblaðið - 23.12.2013, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Glatt var á hjalla á Árbæjarsafni í gær. Gömlu
góðu íslensku jólasveinarnir mættu á svæðið og
léku við hvern sinn fingur og hrifu börnin með
sér í sannkallaðan jólaanda. Það er mikið um að
vera í aðdraganda jóla á Árbæjarsafni. Jólasýn-
ing þess hefur notið mikilla vinsælda á aðvent-
unni undanfarin ár. Ungir sem aldnir fá að upp-
lifa jólin með gamla laginu þar sem eldri
íslenskar hefðir eru haldnar í heiðri.
Íslenskir jólasveinar gleðja mörg lítil hjörtu
Morgunblaðið/Golli
Hrekkjóttir jólasveinar brugðu á leik með börnum á Árbæjarsafni
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Viðskiptin hjá okkur fyrir jólin eru
meiri á virku dögunum en um helg-
ar, því þá virðist straumurinn liggja
til Reykjavíkur,“ segir Ásta Björg
Kristinsdóttir, kaupmaður í Mótívó
á Selfossi. Hún er talsmaður Sam-
taka verslunar og þjónustu í Árborg.
Kaupmenn þar og annars staðar úti
um land eru ánægðir með hvernig
jólaverslunin hefur gengið.
Ásta Björg verslar með gjafavör-
ur og fatnað og kveðst þokkalega
sátt við sinn hlut. „Það er þó greini-
legur samdráttur í sölu á fatnaði.
Þar tel ég að komi til að undanfarið
hefur fólk í nokkrum mæli farið í
verslunarferðir til útlanda, svo sem
Glasgow. Einnig færist mjög í vöxt
að fólk panti fatnað á netinu frá út-
löndum. Sú var tíðin að verslun á
Suðurlandi keppti helst við Reykja-
vík en núna eru fjarlægari kaup-
menn keppinautar okkar. Víglínan
hefur færst til.“
Á Hvammstanga hefur jólaversl-
unin verið með besta móti, að sögn
Reimars Marteinssonar, kaup-
félagsstjóra hjá Kaupfélagi Vestur-
Húnvetninga. „Það er eðlilegasti
hlutur að fólk hér fari suður eina
ferð fyrir jólin og sæki það helsta
þar og einhvern hluta jólagjafanna.
En svo vantar alltaf eitthvað uppá
og þá kemur fólk hingað. Þannig er
takturinn í þessu og sölutölurnar nú
eru hærri en í fyrra,“ útskýrir Reim-
ar. Bætir því við – sem ekki þarf að
koma á óvart – að engin bók hafi í
sinni búð selst betur en Skuggasund
Arnaldar.
Ferðamenn styrkja verslun
Á Höfn í Hornafirði hefur verið
góður gangur í versluninni fyrir jól-
in. „Fólk kaupir dagvöruna hér
heima, en þar sem Nettó er með
sama verð í verslunum um allt land
höfum við einnig verið að styrkja
okkur í sérvörunni. Höfum líka þá
stöðu að flutningskostnaður fer ekki
út í verðlagið,“ segir Pálmi Guð-
mundsson, verslunarstjóri Nettó.
Pálmi segir það styrkja verslun í
Austur-Skaftafellssýslu hvað ferða-
þjónustan þar hafi eflst síðustu ár.
Nú sjáist ferðamenn eystra allt árið
og því ætli Nettó-menn að bregðast
við með stækkun og breytingum á
búðinni á Höfn strax á næsta ári. Í
stóra samhenginu styrki þessi
auknu viðskipti alla verslun á svæð-
inu og geri kaupmönnum betur
kleift að mæta kröfum og þörfum
heimamanna um þjónustu fyrir jól
og í annan tíma.
Víglínan í verslun færist til
Mikið að gera á virku dögunum á Selfossi Skuggasund er vinsælt í kaup-
félaginu á Hvammstanga Sérvaran selst betur en áður hjá Nettó á Hornafirði
Ásta Björg
Kristinsdóttir
Reimar
Marteinsson
Óvenjudjúp lægð gengur yfir landið nú um jólin og er tal-
ið að um sé að ræða verstu lægð sem sést hefur það sem
af er 21. öldinni. Veður verður því með verra móti um
land allt og færðin sérlega þung, sérstaklega á heiðum.
Þeir sem hyggja á ferðalög um jólin ættu því að fara var-
lega og vera ekki of seint á ferðinni. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Veðurstofu Íslands færist norðaustanstrengur
yfir norðausturhluta landsins í dag, Þorláksmessu, og
verður versta veðrið þar í dag en skárra í öðrum lands-
hlutum. Búast má við mikilli norðanátt, snjókomu og
skafrenningi fyrir norðan en það verður tiltölulega þurrt
sunnanlands. Veðrið fer síðan versnandi um land allt og
nær hámarki seint á aðfangadagskvöld og verður áfram
slæmt á jóladag og búist við 15-23 m/s víða á landinu.
Ekki er búist við skaplegra veðri fyrr en á annan í jólum.
Þá verður áfram mikil ofankoma fyrir norðan og líklegast
þungfært þar yfir alla jólahátíðina.
mariamargret@mbl.is
Óveður um land allt sem
nær hámarki á jóladag
Morgunblaðið/RAX
Jólaveðrið Þungfært verður víða um land um jólin en
óvenjudjúp lægð gengur yfir landið, sú versta í mörg ár.
Versta lægð aldarinnar
Snjókoma og þungfært
Árið 2013 námu
tekjur ríkissjóðs
af almennu veiði-
gjaldi á makríl
um 409 milljónum
króna og 290
milljónum árið
2012. Þetta kem-
ur fram í svari
Sigurðar Inga Jó-
hannssonar sjáv-
arútvegs- og
landbúnaðarráðherra við fyrirspurn
Oddnýjar G. Harðardóttur þing-
manns um makrílkvóta.
Á fiskveiðiárinu 2012/2013 var tek-
ið upp sérstakt veiðigjald og er áætl-
að að 854 milljónir króna hafi verið
innheimtar vegna gjaldsins á makríl
á árinu 2013. Þá segir í svarinu að ár-
ið 2014 megi ætla að sérstakt veiði-
gjald af makríl muni hækka, en með
breytingu á lögum um veiðigjöld var
veiðigjald á makríl hækkað um 40%
frá fyrra fiskveiðiári.
Of mikil óvissa fyrir uppboð
Í svari Sigurðar Inga kemur fram
að að svo stöddu sé ómögulegt að
geta sér til um verðmæti aflahlut-
deilda í makríl ef þær yrðu seldar,
enda séu óvissuþættir margir. Þá
bætir hann við að uppboð sem þetta
hefði veruleg áhrif á innheimtu ann-
arra gjalda og skatta af sjávar-
útvegsfyrirtækjum. agf@mbl.is
Fær 409
milljónir
af makríl
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Ríkið hækkar
veiðigjaldið 2014
Um 2.700 jólakveðjur hafa borist
RÚV fyrir þessi jól. Hefst lesturinn
kl. 8 í dag, Þorláksmessu, og tekur
um 15 klukkustundir, þar sem yfir
63.000 orð verða lesin.
Síðasta áratuginn hefur fjöldi
jólakveðja verið álíka ár frá ári; frá
rúmlega 2.600 til tæplega 3.000
kveðjur hafa verið sendar fyrir
hver jól. Þá hlustar tæplega helm-
ingur landsmanna á messuna í
Dómkirkjunni á aðfangadag.
2.700 jólakveðjur
Leit að manninum sem féll af er-
lendu flutningaskipi í Reyðarfirði
hinn 15. desember skilaði engum
árangri í gær. Fimm björgunar-
sveitir tóku þátt í leitinni, alls rúm-
lega 30 menn. Engin ákvörðun hef-
ur verið tekin um framhald leitar-
innar, en búið er að leita í fjörum
og eyjum, fótgangandi og á bátum.
Leitað án árangurs