Morgunblaðið - 23.12.2013, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.12.2013, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2013 Malín Brand malin@mbl.is B ragi Þór Valsson býr ásamt eiginkonu sinni Christinu í Rustenburg í suðvesturhluta Suður- Afríku. Rustenburg er skammt frá Phokeng sem er höfuð- borg konungsríkisins Bafokeng sem er heimsins stærsti útflytjandi hins verðmæta málms platínu. Bragi kennir á klarinett, saxó- fón, píanó, að söng ógleymdum og er hann sem fyrr segir kórstjóri við skólann. Fyrirbæri í kórnum Kammerkórinn er eins konar „súpergrúppa“ því hann saman- stendur af þrettán bestu söngfugl- unum úr aðalkór skólans. „Af þess- um þrettán eru þrjár stúlkur sem eru algjör fyrirbæri, þær eru svo góðar. Ein þeirra er besti söngvari sem ég hef nokkurn tíma unnið með,“ segir Bragi og er þá mikið sagt því hann hefur starfað með fjölda kóra út um allan heim. Stúlkan sem um ræðir er sautján ára gömul og getur að sögn Braga, sungið nánast hvað sem er en hefur sérstaklega gaman af R&B, poppi og blús. „Svo er önnur sem er alveg ótrúleg tungumálamanneskja og hún syngur á íslensku,“ segir Bragi. Á upptöku má heyra hana syngja lagið Söknuður og það er sannarlega ótrúlegt hversu vel hún nær íslenskunni. Það vill þannig til að stúlkan er prinsessa í konungs- ríkinu en um það vill hún sem minnst tala enda má það ekki skyggja á hæfileikana sem leyna sér Suður-afrísk prins- essa syngur á íslensku Það er ótrúlegt að hlýða á söng krakkanna í kammerkórnum hans Braga Þórs Valssonar. Þau búa í suður-afríska konungsríkinu Bafokeng og ganga þar í Le- bone skólann og þar er Bragi kennari og kórstjóri. Kórinn er skipaður 13-17 ára unglingum sem þykja afar efnilegir. Þau hafa lært að syngja á íslensku og verið boðið að syngja hér á landi en fyrst þurfa þau að safna fyrir flugfarinu til Íslands. Skrautlegur Bragi Þór Valsson kórstjóri í Suður-Afríku er iðulega klæddur að hætti heimamanna. Bæði er það þægilegt og þykir afar snyrtilegt. Fyrirbæri Kórinn er skipaður stúlkum og piltum. Mörg þeirra eru með ein- dæmum hæfileikarík, þar á meðal prinsessan sem syngur lög á íslensku. Í dag er boðið til opins húss hjá Geð- hjálp í Borgartúni 3 milli kl. 11 og 15. Boðið verður upp á léttar veitingar, kósýstund og spjall. Jólamynd í létt- um dúr verður sýnd kl. 13. Og allir verða leystir út með jólapakka. Geð- hjálp er hagsmunasamtök þeirra sem þurfa aðstoð vegna geðrænna vanda- mála, aðstandenda þeirra og annarra er láta sig geðheilbrigðismál varða. Tilgangur félagsins er að vinna að geðheilbrigðismálum og bæta hag þeirra sem eiga við geðræn vandamál að stríða, barna og fullorðinna, svo og aðstandenda þeirra. M.a. vinnur Geðhjálp að því að stuðla að endur- bótum í þjónustu við geðsjúka og þá sem eru með geðræn vandamál, inn- an og utan stofnana. Geðhjálp vinnur líka að því að þeim sem eru með geð- ræn vandamál verði búin skilyrði til að njóta hæfileika sinna, menntunar og starfsorku. Vefsíðan www.gedhjalp.is Innflutningspartí Högni söng fyrir gesti þegar Geðhjálp flutti í Borgartún. Allir leystir út með jólapakka Íslenskir friðarsinnar hafa efnt til friðargöngu niður Laugaveginn á Þor- láksmessu undanfarin þrjátíu og fimm ár. Gangan leggur af stað klukkan 18. Friðarhreyfingarnar selja kerti fyrir göngufólk á Hlemmi. Í lok göngu verður fundur við Austurvöll þar sem Guðrún Margrét Guðmunds- dóttir flytur ávarp. Söngfólk úr Hamrahlíðarkórnum og Kór Mennta- skólans við Hamrahlíð syngur í göng- unni og við lok fundar. Friðargangan á Ísafirði leggur af stað frá Ísafjarð- arkirkju klukkan 18. Á Akureyri legg- ur friðargangan af stað kl. 20 frá Samkomuhúsinu Hafnarstræti. Endilega … … farið í friðar- göngu í dag Morgunblaðið/Jim Smart Friðarganga Til að krefjast friðar. Í dag gúffa fjölmargir í sig gómsæta skötu sem lyktar heldur illa. Ómiss- andi hluti af jólagleðinni. Þeir sem vilja losna við fnykinn geta fylgt eft- irfarandi ráðum: Kjörið er að strá kanildufti á elda- vélarhelluna þegar búið er að sjóða skötuna og slökkva á hellunni. Kanil- duftið er látið brenna til ösku og ask- an þurrkuð af þegar hellan er orðin köld. Skerið niður lauk og hafið í vatni við hliðina á skötupottinum eða í skötusoðinu. Vætið klút í ediki og leggið yfir skötupottinn þegar fer að sjóða. Sjóðið hangikjöt um leið og sköt- una eða strax á eftir. Kanill, laukur, edik og hangi- kjöt eru lausnarorðin Ráð gegn skötulykt Morgunblaðið/Kristinn Hnossgæti Skata á borðum í dag. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Vetraheftið komið út Þjóðmál— tímarit um stjórnmál og menningu — hefur nú komið út í níu ár í ritstjórn Jakobs F. Ásgeirssonar. Þjóðmál koma út fjórum sinnum á ári — vetur, sumar, vor og haust. Tímaritið fæst í lausasölu í helstu bókabúðum og nokkrum stórmörkuðum, en ársáskrift kostar aðeins 5.000 kr. Áskriftarsími: 698-9140.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.