Morgunblaðið - 23.12.2013, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 23.12.2013, Blaðsíða 51
og má kalla kraftaverk út af fyrir sig – að viðbættu hinu, hljóðritasafni RÚV, án hvers ekkert hefði verið til- tækt að greypa í ál. Á nýliðnum tímamótum handritasafnarans mikla má því ekki síður minna á þetta merka „Árnasafn í tali og tónum“ sem annað menningarfjöregg þjóð- arinnar, og jafnframt hafa áhyggjur af framtíð þess í vægðarlausum nið- urskurði. Að Ásgeir hafði fullt erindi á hvít- um nótum og svörtum fer ekki á milli mála, og nægir að benda á fyrstu hljóðrák disks 1, hina sindr- andi öru Etýðu Chopins Op. 10,1 sem eitt dæmi af mörgum um undra- verða leikni, er hlýtur að hafa verið fáheyrð hér á landi upp úr 1955 þar til hörmulegt slys 1970 batt enda á allt of stuttan feril. En einnig á fal- legan legatótón (sem hefði að vísu notið sín betur í fullkomnari nútíma upptökutækni og ómvist; tinkenndur píanóslátturinn minnir stundum ögn á 200 ára gamalt fortepíanó) sem ásamt næmu tímaskyni ber vott um óvenjulegan bráðþroska. Hér má heyra marga túlk- unarperluna sem kemur stundum á óvart, jafnvel þótt Ásgeir hafi verið barn síns tíma í rómantískulegri meðferð sinni á einkum Bach og Mozart er rétthugsandi upp- runasinnar okkar tíma myndu sumir fúlsa við. En allt er háð endurskoðun – líka „HIP“-stefnan – og því margt hægt að læra af þessari 50 ára gömlu en litríku tjáningu. Ljómandi góð túlkun Eilífð / Eternity bbbmn Strengjakvartettar I-III eftir Jón Leifs. Rut Ingólfsdóttir og Sigurlaug Eðvaldsdóttir fiðlur, Þór- unn Ósk Marínósdóttir víóla og Hrafnkell Orri Egilsson selló. Smekk- leysa, 2013. 60:39 mín. Jón Leifs (1899-1968) varð ein skýrasta sönnun spakmælisins um spámanninn og föðurlandið. Sér þess raunar enn merki í heild- arútgáfu BIS, þar sem þrír strengjakvart- ettar þessa þjóðrækna Or- feifs Íslands komu út með Yggdrasil-fereykinu 1994 – 19 árum áður en fyrsta hér- lenda útgáfan leit dagsins ljós! En þótt freistandi væri í sjálfu sér að bera þær saman, læt ég nægja að höggva eftir lengdarmuninum í nr. 1 (Mors et vita) þar sem sænska ver- sjónin er 17:10, heilum 3 mín. lengri en á Smekkleysudiskinum. Svenskir gefa sér s.s. nægan tíma til að lýsa hugarangri Jóns við upphaf seinni heimsstyrjaldar. Að öðru leyti má nálgast stikkprufur á heimasíðu BIS. Né heldur þarf að bæta miklu við um tónverkin sem slík, enda hafa margir um þau ritað, m.a. Gunnar Åhlén í Svíþjóð og Árni Heimir Ing- ólfsson í ágætri ævisögu sinni um tónskáldið. Árni skrifar einnig diskbæklinginn og vel að vonum. Upptökur Páls Sveins Guðmunds- sonar úr Víðistaðakirkju eru bæði skýrar og nálægar og skila því vel oft snarpri spilamennsku Rutar Ingólfsdóttur og félaga. Íhugulli staðir eru sömuleiðis fluttir af smitandi natni og alúð er hlýtur að sperra eyru jafnvel sett- legustu hlustenda. Vissulega er Jón Leifs ekki allra – en jafnvel hörð- ustu andstæðingar hafa viðurkennt að þó væri ekki fyrir annað þá þekkist hann á örfáum mínútum, og það er fáum tónsmiðum 20. aldar eiginlegt. Auk þess ætti engum að blandast hugur um einlægð Jóns þegar hon- um er mest niðri fyrir í þessari ljómandi góðu túlkun, sem er öllum hlutaðeigandi til mikils sóma. Dáfallega leikið Öxar við ána. bbbnn 29 íslenzk ættjarðarlög. Hljómskála- kvintettinn: Ásgeir H. Stein- grímsson / Sveinn Þ. Birgisson trompet, Þorkell Jóelsson horn, Oddur Björnsson básúna og Bjarni Guðmundsson túba. Krubbur, 2013. 54:05 mín. Rúsínan í þessum jólapylsuenda er hins vegar öllum aðgengileg. Hún saman- stendur úr heilum 29 ætt- jarðarlögum, allt frá „Öxar við ána“ og „Ég vil elska mitt land“ til „Ó fögur er vor fósturjörð“ og „Ó guð vors lands“. Fylgja viðkomandi ljóðatextar til hægðarauka fyrir al- mennan meðsöng. Flestar útsetningar eru eftir Karl O. Runólfsson og Ásgeir H. Steingrímsson, og margar frábær- ar sem slíkar. Hér er dáfallega leikið – og hreint, ef hugsað er til Rhapsody in Blue upptökunnar frá 1960 síðast í albúmi Ásgeirs Beinteinssonar. (Lúðrablæstri hefur greinilega far- ið mikið fram á síðustu 53 árum!) Er því full ástæða til að spyrja hvort hinn 20 ára gamli Hljómskálakvintett sjái ekki senn tilefni til að panta og flytja ný frumsamin verk fyrir þessa eðlu tóngrein, er kalla má höfuðvígi lúðrakammertónlistar. Næg er leikfærnin, eftir öllu að dæma. Kammersveitin „Auk þess ætti engum að blandast hugur um einlægð Jóns þegar honum er mest niðri fyrir í þessari ljómandi góðu túlkun…“ MENNING 51 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2013 Allir sem senda frá sér texta,hvert sem efni hans er,segja um leið alltaf ogóbeint svolítið af sjálfum sér. Af stíl og orðfæri sjást nefnilega og alltaf persónueinkenni viðkomandi og hver almenn afstaða til lífsins sé. Allt upp á borðið er yfirskrift nýrrar bókar Vilhjálms Hjálmarssonar fv. ráðherra frá Brekku í Mjóafirði sem skrifar viðfelldinn texta og frásögnin er ljúf. Enginn þarf að velkjast í vafa um að hér fer góður maður. Að því leytinu til er Vilhjálmur í nýrri bók sinni, eins og þeim fjölmörgu sem hann hefur skrifað á undanförnum árum, með allt uppi á borðum. Hann efnir þó ekki til flugeldasýninga í hverri málsgrein eða notar stór orð. Vilhjálmur segir skemmtilega frá bernskuárum sínum. Greinir einnig frá eftirminnilegu fólki á ólíkum aldri og eins ferðalögum, lengri sem skemmri. Hjá flestum væri það varla í frásögur færandi þótt maður bregði sér skemmri bæj- arleið, en Vil- hjálmi verður allt að efni. Segir frá spjalli við fólk sem hann hittir á förn- um vegi og hvern- ig leiðangrinum miðaði. Allt verð- ur að ævintýri og það skín hvar- vetna í gegn að bóndanum finnst svo dæmalaust gaman að vera til. Um sína daga hefur Vilhjálmur, sem nú er 99 ára, lagt gjörva hönd á margt. Dagbókin frá árinu 1967 sýnir það. Þann 1. ágúst var sögumaður að skipa upp sementi heima í Mjóafirði, daginn eftir fór hann suður til Reykjavíkur til að sinna þingmanns- skyldum um vanda síldariðnaðar. Átti vegna þess fundi með bankastjórum og forsætisráðherra þann 3. ágúst. Og svo: „5.8. Heim í heyskapinn.“ Já, það munar um svona karla. Lokakafli bókarinnar eru minn- ingar Vilhjálms frá þeim tíma þegar kona hans, Margrét Þorkelsdóttir, dvaldist á sjúkrahúsinu á Seyðisfirði vegna veikinda, það er frá 2004 uns yfir lauk árið 2008. Lýsir Vilhjálmur starfinu og þeirri góðu umönnun sem fólk þar fær af mikilli smekkvísi. Er sú frásögn í rauninni hjartnæm, enda gefur hún bókinni vægi og boðskap sem öll rit þurfa í rauninni að hafa. Það munar um svona karla Endurminningar Allt upp á borðið bbbnn Eftir Vilhjálm Hjálmarsson Hólar 2013. 157 bls. SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON BÆKUR Jólatúlípanar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.