Morgunblaðið - 23.12.2013, Side 4

Morgunblaðið - 23.12.2013, Side 4
segir Ólafur Darri en gjaldskrár- hækkanirnar nema um 3,2 prósent- um hjá ríkinu að öllu óbreyttu. Ríkisstjórnin kom hins vegar nokkuð til móts við kröfur verka- lýðshreyfingarinnar í skattamálum en þó ekki að öllu leyti. „ASÍ lagði áherslu á að skattkerfisbreytingarn- ar næðu til þeirra sem eru á lægst- um launum. Ríkisstjórnin kom að hluta til á móts við kröfur verkalýðs- hreyfingarinnar með því að hækka skattmörkin í milliþrepinu í 290 þús- und krónur en því miður hafnaði rík- isstjórnin því að hækka persónuaf- sláttinn um 1000 krónur sem hefði gagnast þeim sem eru á lægstu laun- unum,“ segir Ólafur Darri. Áhersla á hækkun lægstu launa  Samið um 2,8 prósenta almenna launahækkun  Sérstaklega samið um lægstu laun og engin laun hækka um minna en 8000 krónur á mánuði  Verðbólgumarkmið höfð í huga til að verja kjarabótina Morgunblaðið/Golli Samið Björgólfur Jóhannsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, féllust í faðma að lokinni undirskrift. 1. janúar 2014 skulu laun hækka um 2,8%, þó að lágmarki kr. 8.000 á mánuði Mánaðarlaun í kr. Launahækkun Skatta- Samtals Breyting í á mánuði lækkun prósentum 190.000 - 230.000 9.750 0 9.750 5,13 - 4,24 235.000 - 285.000 8.000 0 til 539 8.000 3,40 - 3,00 300.000 8.400 957 9.357 3,12 350.000 9.800 1.245 11.045 3,16 400.000 11.200 1.485 12.685 3,17 450.000 12.600 1.725 14.325 3,18 500.000 14.000 1.965 15.965 3,19 600.000 16.800 2.445 19.245 3,21 700.000 19.600 2.925 22.525 3,22 800.000 22.400 3.405 25.805 3,23 900.000 25.200 3.470 28.670 3,19 1.000.000 28.000 3.470 31.470 3,15 Heimild: ASÍ BAKSVIÐ Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins skrifuðu undir kjara- samning um helgina sem tekur gildi 1. janúar og er til eins árs. Samning- urinn kveður á um 2,8 prósenta al- menna launahækkun og að lægstu laun hækki um 9.750 krónur. Ólafur Darri Andrason, deildarstjóri hag- deildarASÍ, segir að sérstök áhersla hafi verið lögð á það að ná fram hækkun lægstu launa umfram al- mennu hækkunina. „Laun undir 230 þúsundum á mánuði hækka um 9.750 krónur sem er tæplega 5 pró- senta hækkun en almenna launa- hækkunin er 2,8 prósent en þó er samið þannig að lágmarkshækkun launa verði ekki minni en 8.000 krónur. Fólk á tekjubilinu 230 til 285 þúsund króna er því að fá umfram- hækkun í prósentum talið,“ segir Ólafur Darri. Þolmörk verðbólgumarkmiðs Samtök atvinnulífsins lýstu því yf- ir í haust að samningar þyrftu að vera hóflegir svo hægt væri að halda niðri verðbólgu og verja kjarabætur launafólks. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, seg- ir samninginn vera við ystu mörk verðbólgumarkmiðsins og að eðli- lega hefðu samtökin viljað meira svigrúm til að hægt yrði að ná verð- bólgumarkmiðum Seðlabankans. „Okkar ásetningur var að semja með þeim hætti að launafólk haldi þeim kjarabótum sem það fær. Í þeim löndum sem við berum okkur saman við eru launabreytingar og verð- bólga minni heldur en verið hefur hér á landi. Þannig væri hægt að ná bæði jafnari og öruggari kjarabót til lengri tíma og minnka sveiflur í efnahagslífinu,“ segir Hannes enn- fremur. Skattalækkanir og gjaldskrár Sveitarfélögin hafa tekið vel í beiðni aðila vinnumarkaðarins um að falla frá gjaldskrárhækkunum en bæði Ólafur Darri og Hannes telja það vonbrigði að ríkið hafi ekki feng- ist til að falla frá sínum áformum um gjaldskrárhækkanir með sama hætti og sveitarfélögin hafa gert. „Auðvit- að eru það vonbrigði að ríkið skuli ekki falla frá sínum hækkunum en þeir gáfu okkur það vilyrði að dregið yrði úr hluta af gjaldskrárhækkun- um ef samningar verða samþykktir,“ 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2013 Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra um p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja sé r ré tt til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th .a ð ve rð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Köben frá aðeins kr. 9.900 Aðra leið, til eða frááfangastað, með sköttum. Kennarasamband Íslands hefur gefið það út að sambandið gangi óbundið til kjarasamninga. Samningar framhalds- skólakennara losna í janúar, grunnskólakennara í febrúar og leikskólakennara í apríl. Björg Bjarnadóttir, varafor- maður Kennarasambands Íslands, segir samning Alþýðu- sambandsins við Samtök atvinnulífsins ekki geta verið til viðmiðunar þegar kennarar koma að samningaborðinu. „Við höfum gefið það út að við göngum óbundin til okkar samninga og það er alveg ljóst að leiðrétta verður laun okkar félagsmanna. Kennarar þurfa verulegar lagfær- ingar á sínum launum ef laun þeirra eru borin saman við laun annarra háskólamenntaðra starfsmanna með sam- bærilega menntun,“ segir Björg en byrjunarlaun nýrra kennara eru einungis um 60 prósent af meðaltali byrjunarlauna annarra háskólamenntaðra stétta. Þá bendir Björg á að á síðasta kjörtímabili hafi verið tekin sú ákvörðun að leiðrétta laun hjúkrunarfræðinga m.a. með tilvísun í að um kvennastétt væri að ræða. Segir hún að það eigi svo sannarlega líka við um kennarastéttina. „Það var auðvitað önnur ríkisstjórn við völd þegar laun hjúkrunarfræðinga voru leiðrétt en félagsmenn okkar eru um 80 prósent konur og því á svo sannarlega við um okkur sú hugsjón að leiðrétta stöðu kvennastétta.“ Kennarar ganga óbundnir til samninga Björg Bjarnadóttir Samningurinn milli Alþýðusambands Íslands og Sam- taka atvinnulífsins, sem gengið var frá um helgina, nær til rúmlega 100 þúsund Íslendinga. Þó er enn ósamið við nokkra hópa á almenna vinnumarkaðnum, eins og mjólkurfræðinga, flugmenn, flugvirkja, flugfreyjur o.fl. hópa. „Samningar þessara hópa voru lausir flestir í nóv- ember og núna heldur bara áfram vinnan með þeim hóp- um sem eru með lausa samninga,“ segir Magnús Pét- ursson ríkissáttasemjari. Eftir áramót losna svo samn- ingar opinberra starfsmanna og starfsmanna sveitar- félaga. „Það eru stórir samningar að losna á næstu mánuðum eins og hjá framhaldsskólakennurum og grunnskólakennurum og því stór verkefni framundan eftir áramót,“ segir Magnús. Eftir að semja við stóran hóp launafólks Magnús Pétursson Kristján Jónsson kjon@mbl.is Eins og fram kom í Morgunblaðinu í nýverið hafa Bretar nú ákveðið að gefa út fimm punda seðla úr plast- efni, polypropylene, árið 2016. Nýi seðillinn er sagður munu endast mun lengur en hefðbundnir papp- írsseðlar og á að þola þvott. Um 20 ríki nota nú þegar plastseðla. Þeir kosta meira í framleiðslu en hefð- bundnir seðlar en endast lengur. Nýi 10 þúsund króna seðillinn frá Seðlabankanum er að hluta styrkt- ur með plasti en einnig er í honum betri optik-öryggisbúnaður. Hver seðill kostar 29 krónur í framleiðslu sem er talsvert meira en eldri seðl- ar kosta. Andvirði nýju seðlanna í umferð nemur nú þegar um 3,7 milljörðum króna. „Eins og þegar hefur komið fram leið langur tími frá því undirbún- ingur og hönnun tíu þúsund króna seðilsins hófst þar til hann var sett- ur í umferð,“ segir Stefán Jóhann Stefánsson, ritstjóri hjá Seðlabank- anum. „Á þeim tíma hafa plastseðl- ar þróast þó nokkuð og seðla- bankar í auknum mæli hafa verið að skoða þann möguleika að gefa út plastseðla. Plastseðlarnir eru dýr- ari í framleiðslu en hefðbundnir seðlar, en þeir endast vissulega mun lengur þannig að þegar á heildina er litið kunna þeir að vera hagkvæmari kostur.“ Stefán segir að í okkar tilviki hefði verið mjög dýrt að skipta yfir í plast þar sem hönnunin var svo langt komin. „Hér skiptir einnig máli ákvæðisverð viðkomandi seð- ils. Seðill sem er umfangsmikill í veltu, þ.e. er mikið notaður, er væntanlega að jafnaði hagkvæmari kostur í plasti en pappír. Seðill sem ekki er eins umfangsmikill í veltu, s.s. 10 þúsund króna seðill- inn, er væntanlega síður hag- kvæmur, þ.e. líftími hans er án efa mun lengri en t.d. 1.000 króna seð- ils. Gera má hins vegar ráð fyrir að plastseðlar komi m.a. til skoðunar við hönnun nýrra seðla í framtíð- inni.“ Kannað síðar hvort plastseðlar komi til greina hér á landi  Of seint var að hafa 10 þúsund króna seðilinn úr plasti EPA Plast Nýi fimm punda seðillinn breski er með Elísabetu drottningu. Almenn launahækkun 1. janúar 2014 skulu laun hækka um 2,8%, þó að lágmarki kr. 8.000 á mánuði fyrir dagvinnu miðað við fullt starf. Lágmarkstekjur fyrir fullt starf Lágmarkstekjur fyrir fullt starf skv. kjarasamningum skulu vera 214 þús- und krónur frá 1. janúar 2014 fyrir starfsmenn 18 ára og eldri sem starfað hafa fjóra mánuði samfellt hjá sama fyrirtæki. Sérstök hækkun kauptaxta Launataxtar undir 230.000 kr. á mánuði hækka sérstaklega um 1.750 kr. Kauptaxtar gilda frá 1. janúar 2014. Desember- og orlofsuppbót Desemberuppbót miðað við fullt starf á árinu 2014 er 53.600 kr. Orlofs- uppbót miðað við fullt starf á árinu 2014 er 29.500 kr. Nokkur atriði úr samningnum SAMNINGUR ASÍ OG SA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.