Morgunblaðið - 09.01.2014, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014
STUTT
Margrét Friðriks-
dóttir, skólameist-
ari MK, gefur kost
á sér í 1. sæti í
prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í
Kópavogi 8. febr-
úar nk.
Margrét er með
mastersgráðu í uppeldis- og mennt-
unarfræðum frá Háskóla Íslands,
BA-gráðu í íslenskum fræðum og
hefur langa reynslu af kennslu og
stjórnun. Hún hefur m.a. verið for-
maður Samtaka móðurmálskenn-
ara, formaður Skólameistarafélags
Íslands og fulltrúi þeirra í alþjóð-
legum samtökum. Margrét hefur
verið búsett í Kópavogi á þriðja
áratug. Hún er gift Eyvindi Al-
bertssyni endurskoðanda og eiga
þau einn son, Bjarna Þór, sem er
læknir.
Sækist eftir 1. sæti
Stjórnmálaflokkarnir munu á næst-
unni velja frambjóðendur á lista
fyrir komandi sveitastjórnarkosn-
ingar. Morgunblaðið mun birta
fréttir af þeim sem gefa kost á sér.
Prófkjör árið 2014
Margrét Gauja
Magnúsdóttir, bæj-
arfulltrúi í Hafn-
arfirði, gefur kost
á sér í 1.-2. sæti í
flokksvali Sam-
fylkingar sem
haldið verður dag-
ana 6.-9. febrúar næstkomandi.
Margrét Gauja er með BA-próf í
uppeldis-, menntunar- og atvinnu-
lífsfræðum og er með kennslurétt-
indi. Hún er gift Davíð Arnari Stef-
ánssyni landfræðingi og eiga þau
þrjú börn.
„Með þátttöku minni í bæjarmál-
unum á undanförnum árum hef ég
öðlast dýrmæta reynslu og þekk-
ingu sem ég vil nýta til áframhald-
andi starfa í þágu bæjarbúa,“ segir
meðal annars í tilkynningu frá Mar-
gréti Gauju.
Framboð í 1.-2. sæti
Skarphéðinn Orri
Björnsson sækist
eftir þriðja sæti í
prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins
vegna komandi
bæjarstjórnar-
kosninga í Hafn-
arfirði.
Skarphéðinn Orri hefur lengst af
starfað í lyfja- og líftæknigeiranum
bæði hérlendis og erlendis, nú síð-
ast sem framkvæmdastjóri líftækni-
fyrirtækisins Algalíf, sem vinnur að
byggingu stórrar líftækniverk-
smiðju á Ásbrú.
„Víðtæk reynsla af atvinnu- og
stjórnmálum er notadrjúgt vega-
nesti nú þegar rjúfa þarf kyrrstöð-
una í Hafnarfirði,“ segir m.a. í til-
kynningu frá Skarphéðni.
Sækist eftir 3. sæti
Geir Jónsson,
mjólkurfræðingur
og bæjarfulltrúi,
gefur kost á sér í
1.-3. sæti í próf-
kjöri sjálfstæð-
ismanna í Hafn-
arfirði sem fram
fer 1. febrúar næstkomandi.
Í tuttugu ár var Geir í forystu í
Stéttarfélagi mjólkurfræðinga og
hefur hann síðan starfað lengi inn-
an Kiwanisklúbbsins Hraunborgar.
Síðustu ár hefur hann setið í
sóknarnefnd Ástjarnarkirkju og er
núna formaður sóknarnefndar.
Geir hefur starfað lengi innan
Sjálfstæðisflokksins.
Hann skipaði 4. sæti á lista
flokksins fyrir síðustu kosningar og
situr núna í fjölskylduráði Hafnar-
fjarðar.
Framboð í 1.-3. sæti
Árið 2013 mun fara í bækur Orkuveitu Reykjavík-
ur sem margfalt metár í hitaveiturekstrinum. Í
fréttatilkynningu frá Orkuveitunni kemur fram að
heitavatnsnotkun á ári hafi aldrei verið meiri en á
síðasta ári og að aldrei hafi mánaðarnotkun verið
meiri en í desember. Árið 2013 notaði fólk og fyr-
irtæki á höfuðborgarsvæðinu um 78 milljónir
rúmmetra af heitu vatni.
Í tilkynningunni kemur fram að um kvöldmat-
arleytið 6. desember síðastliðinn hafi verið slegið
met frá árinu 2008, þegar klukkustundarrennsli
um hitaveituæðarnar á höfuðborgarsvæðinu nam
16.087 rúmmetrum á klukkustund, sem gera um
270 rúmmetra á mínútu, og nemur það með-
alrennsli í Elliðaánum. Í tilkynningunni er vakin
athygli á því að aflið sem fólst í þessum 16.000
rúmmetrum svari til liðlega 930 megavatta, en til
samanburðar megi nefna að afl tveggja stærstu
vatnsaflsvirkjanna landsins nemi samanlagt um
960 megavöttum, þar af séu um 690 MW í Kára-
hnjúkavirkjun og 270 MW í Búrfellsvirkjun.
Í tilkynningunni segir að nærtækustu skýr-
inguna á metárinu sé að finna í veðurfarsyfirliti
Veðurstofu Íslands. Sumarið hafi verið óhagstætt
á landinu sunnan- og vestanverðu, auk þess sem
kuldaköst í apríl og desember, ásamt þrálátri úr-
komu í ágúst og umhleypingum í nóvember hafi
einnig komið til. Um 90% af heita vatninu eru nýtt
til húshitunar, og eru því tengslin á milli lofthita
og heitavatnsnotkunar mikil. sgs@mbl.is
Svipað klukkustundar-
rennsli og í Elliðaánum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hellisheiðarvirkjun Árið 2013 var margfalt met-
ár í hitaveitunni hjá Orkuveitu Reykjavíkur.