Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014
4ja rétta seðill
Perlan • Sími 562 0200 • Fax 56
2 0207 • perlan@perlan.is
Verð aðeins
7.390 kr.
Næg bílastæði
Gjafabréf
Perlunnar
Góð gjöf við öll
tækifæri
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Bílstjórar sem sótt hafa námskeið
Vinnueftirlitsins um flutning og
meðferð hættulegra efna hafa í
mörgum tilvikum haft orð á því hvað
þeir verði lítið varir við eftirlit með
þessum flutningi á vegum landsins.
Þetta segir Víðir Kristjánsson,
deildarstjóri efna- og hollustuhátta-
deildar Vinnueftirlitsins, sem heldur
utan um þessi námskeið. Vinnueft-
irlitið sinnir fræðslu og forvörnum í
þessum málum en sjálft eftirlit með
flutningi efnanna, þegar þau eru far-
in af stað, er hjá lögreglunni. Annað
eftirlit, eins og með flokkun efna,
viðurkenningu umbúða, prófun og
fleira, er í yfirumsjón Vinnueftirlits-
ins samkvæmt gildandi reglugerð.
Vinnueftirlitið heldur einmitt
námskeið núna í lok janúar fyrir þá
sem vilja öðlast svonefnd ADR-rétt-
indi, sem gefa heimild á Evrópska
efnahagssvæðinu til að flytja hættu-
leg efni milli staða. Námskeiðin eru
haldin reglulega, sem og endur-
menntunarnámskeið, og segir Víðir
að þátttakan sé yfirleitt mjög góð.
Ekki alltaf farið eftir reglum
„Bílstjórar þurfa að koma til okk-
ar aftur eftir fimm ár til að end-
urnýja réttindin og þá heyrum við
að það er ekki alltaf verið að fara
eftir reglunum og þeir verða ekki
varir við mikið eftirlit. Þeir tala
einnig um að skjöl vanti með hættu-
legum efnum sem á að flytja og síð-
an er spurning hvort alltaf sé farið
eftir ákvæðum um hvaða vörur má
flytja saman og hverjar ekki. Bíl-
stjórar eru ekki alltaf að lesta sjálfir
heldur sérstakir starfsmenn, sem
eiga að hafa fengið þjálfun í þessu
hjá sínu fyrirtæki,“ segir Víðir.
Hann segir Vinnueftirlitið hafa
tekið þátt í eftirlitsátaki með lög-
reglunni, Lögregluskólanum og
Vegagerðinni og einnig farið í eft-
irlitsferðir á flutningastöðvar. Víðir
segir stóru flutningafyrirtækin,
Eimskip-Flytjanda og Landflutn-
inga Samskips, hafa verið með þessi
mál í góðu lagi, þegar kemur að
flutningi hættulegra efna, sem og
fyrirtæki á borð við Olíudreifingu,
Skeljung og Gasfélagið.
Víðir segist geta tekið undir með
Höskuldi Einarssyni, fv. deildar-
stjóra hjá slökkviliði höfuðborgar-
svæðisins, um að lítið sé vitað um
umfang á flutningi eiturefna og ann-
arra hættulegra efna.
„Við vitum hvað mikið er flutt inn
til landsins, og hvað er framleitt hér
á landi, en við höfum ekki yfirlit yfir
dreifingu á efnunum um landið,
nema þá hjá þessum stóru aðilum
sem dreifa olíu og gasi. Þannig höf-
um við ekkert yfirlit um dreifingu á
stykkjavörunni,“ segir Víðir.
Vantar reglur um leiðir
Umhverfisstofnun hefur átt fundi
með fulltrúum slökkviliðsins á höf-
uðborgarsvæðinu um þessi mál.
Bergþóra Skúladóttir, teymisstjóri
á sviði sjálfbærni hjá Umhverfis-
stofnun, segir umræðuna af hinu
góða og nauðsynlegt sé að fyrir-
byggja óhöpp í flutningi hættulegra
efna.
„Við hyggjumst beita okkur fyrir
því að kalla saman þá aðila sem
koma að málinu og fara yfir hvort
þurfi að auka skýrleika þeirra
reglna sem gilda og hvað hver á að
gera,“ segir Bergþóra.
Hún segir skýrar reglur skorta
hér á landi um það eftir hvaða göt-
um og vegum megi flytja skaðleg
efni, þannig að ekki sé verið aka
með slík efni í gegnum íbúðabyggð.
„Áhyggjur slökkviliðsins eru
skiljanlegar, við viljum tryggja að
engin óhöpp verði í þessum flutn-
ingum,“ segir hún ennfremur.
Bílstjórar ekki varir
við mikið eftirlit
Skortur á að skjöl fylgi hættulegum efnum í flutningi
Morgunblaðið/Júlíus
Flutningar Atvinnubílstjórar verða að sækja sérstök námskeið til að mega
flytja hættuleg efni. Vinnueftirlitið er næst með námskeið í lok janúar nk.
Talsmenn stóru landflutninga-
fyrirtækjanna í eigu Eimskips og
Samskips segja félögin fara eftir
settum reglum um flutning hættu-
legra efna og þau sinni ströngu
innra eftirliti.
Ólafur William Hand, upplýs-
ingafulltrúi Eimskips og Flytjanda,
segir flutninginn fara eftir því um
hvaða efni sé að ræða. Sum efni
megi flytja með öðrum vörum en
önnur ekki. Flutningabílarnir séu
þá skilmerkilega merktir ef hættu-
leg efni séu um borð. „Við höfum
mikið eftirlit með þessu hjá okkur
og gætum þess að bílstjórarnir
sæki námskeið. Við sendum þá
einnig á sérstök öryggisnámskeið
og höfum verið í miklu og góðu
samstarfi við Ökuskólann, þar sem
við höfum útvegað sérstakan gám
sem notaður er til kennslu á
hvernig á binda niður og ganga frá
vöru,“ segir Ólafur hjá Eimskip.
Gísli Þór Arnarson, forstöðu-
maður innanlandssviðs Landflutn-
inga-Samskips, segir alla bílstjóra
fyrirtækisins og lestunarmenn
hafa tilskilin réttindi til að flytja
og meðhöndla hættuleg efni. Öll-
um reglum sé fylgt og bílarnir vel
merktir. „Við teljum að þessi mál
séu í góðum farvegi. Það er verið
að flytja alls konar efni og vörur út
á land. Við erum oft með það mikið
magn að auðveldara er fyrir okkur
að aðskilja vörurnar en kannski
minni aðila,“ segir Gísli.
Segjast fara eftir reglum
STÓRU FLUTNINGAFYRIRTÆKIN UM HÆTTULEG EFNI
„Fyrirvarinn að þessu var skamm-
ur en ég ákvað að slá til. Það er
gaman að sinna almennri þjónustu
að nýju og þeim fjölbreyttu verk-
efnum sem því fylgja,“ segir sr.
Karl Sigurbjörnsson biskup. Hann
er nú prestur við Dómkirkjuna í
Reykjavík og verður út febrúar.
Með þessu fyllir hann skarð sr.
Hjálmars Jónssonar sem er í veik-
indaleyfi.
„Þetta er allur pakkinn og maður
hreinlega yngist upp í störfum með
þessu góða fólki hér,“ segir Karl
sem ásamt sr. Önnu Sigríði Páls-
dóttur sinnir messuhaldi, jarðar-
förum og öðrum prestsverkum.
Einnig fermingarfræðslu, en rúm-
lega tuttugu börn ganga til spurn-
inga hjá dómkirkjuprestunum í vet-
ur.
Hálft annað ár er síðan Karl lét
af embætti biskups Íslands, sem
hann gegndi í fjórtán ár. Á þeim
árum kveðst hann alltaf hafa sinnt
prestsverkum í einhverjum mæli,
svo sem fyrir vini og fjölskyldu.
„Kannski er maður kominn aðeins
úr æfingu svo þetta er ágæt upp-
rifjun,“ segir Karl. sbs@mbl.is
Biskup gerist
prestur að nýju
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þjónusta „Kannski er maður kominn aðeins úr æfingu svo þetta er ágæt
upprifjun,“ segir Karl Sigurbjörnsson, nú prestur við Dómkirkjuna.
Framboð á fersku grænmeti jókst
hér á landi úr 47,2 kílóum á íbúa árið
2011 í 50,9 kíló á íbúa árið 2012. Þá
jókst framboð á ferskum ávöxtum
einnig á milli ára úr 61 kg á íbúa í
64,4 kg.
Landlæknisembættið birtir reglu-
lega upplýsingar um fæðuframboð á
Íslandi. Hólmfríður Þorgeirsdóttir,
verkefnastjóri næringar hjá emb-
ættinu, segir á vef landlæknis að
þessar upplýsingar veiti ekki beinar
upplýsingar um neyslu en gefi vís-
bendingar um þróun á mataræði
þjóðarinnar.
Hólmfríður bendir á, að framboð á
bæði grænmetis- og ávaxtavörum
hafi aukist og nú sé heildargrænmet-
isframboðið orðið heldur meira en
það hafi verið árið 2007 þegar það
var mest. Framboð á ávöxtum sé
ennþá minna en það var þá.
Á vef landlæknis kemur jafnframt
fram á sykur- og feitmetisneysla hafi
aukist milli áranna og sykurneysla á
Íslandi sé mikil borið saman við aðr-
ar Norðurlandaþjóðir.
Neysla ávaxta og
grænmetis eykst
Sykurneysla mikil hér á landi