Morgunblaðið - 09.01.2014, Page 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014
í yfir 50 fallegum litum
Þönglabakka 4, sími 571-2288, www.gauja.is
VINSÆLA
ARWETTA CLASSIC
GARNIÐ
SJÓN ER SÖGU RÍKARI!
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Movie Star
hvíldarstóll
Verð 439.000,-
Meðal hugmynda ungra Breiðdælinga er að koma upp
dyrum og staðsetja úti á víðavangi (The Pointless Door
of Iceland), þar sem gestir og gangandi gætu látið taka
af sér mynd og fengið staðfestingu á að hafa farið í gegn-
um dyrnar. Þessi hugmynd var m.a. reifuð á íbúaþingi
sem haldið var í Grunnskólanum á Breiðdalsvík í nóv-
ember og um 50 manns sóttu.
Atvinnumál eru mikilvægasti þátturinn í eflingu
byggðar í Breiðdalshreppi, að mati þátttakenda á íbúa-
þinginu. Ýmsir möguleikar eru til fjölgunar atvinnutæki-
færa, ekki síst með því að byggja á sérstöðu svæðisins,
náttúru, sögu og matvælaframleiðslu.
Horft er til ferðaþjónustu, nýtingar á aflögðu frysti-
húsi og loks fékk hugmynd um slipp fyrir báta að 30
tonnum góðan hljómgrunn. Þá er áhugi á að fjölga op-
inberum störfum, sem hefur fækkað verulega á síðustu
þremur áratugum, segir í skýrslu um íbúaþingið.
Þrjú setur til umræðu
Þrír hópar ræddu um þrjú mismunandi setur; Ein-
arsstofu, Breiðdalssetur og frumkvöðlasetur. Breið-
dalssetur var stofnað 2008 en unnið er að undirbúningi
vegna Einarsstofu. Hugmynd um frumkvöðlasetur er
komin skemmra á veg.
Einarsstofa yrði setur helgað ævistarfi sr. Einars Sig-
urðssonar (1539-1626), sem var prestur í Eydölum í
Breiðdal og var helsta trúarskáld sinnar tíðar, eins og
segir í skýrslunni. Þar kemur fram að um nokkurt skeið
hafi verið unnið að verkefni sem tengist 500 ára siðbót-
arafmæli Lúters, árið 2017. Einarsstofa yrði reist við
Heydalakirkju, sem tengdist þar með sálmaskáldinu.
Heydalakirkja á fjármuni, sem hafa verið „eyrna-
merktir“ þessu verkefni. Þeir fengust vegna afnota og
leigu til Fljótsdalshéraðs af urðunarstað á Heydalamel-
um, sem nýttur var um nokkurt skeið.
Framtíðin mótuð
„Breiðdælingar móta framtíðina“ er yfirskrift byggða-
þróunarverkefnis í Breiðdalshreppi, sem leitt er af
Byggðastofnun í samstarfi við Breiðdalshrepp, Aust-
urbrú, Samband sveitarfélaga á Austurlandi, Háskólann
á Akureyri og íbúa Breiðdalshrepps.
Breiðdalshreppur er einn af fjórum stöðum þar sem
Byggðastofnun stendur fyrir sambærilegum verkefnum,
í svokölluðum „brothættum byggðum“. Hinir staðirnir
eru Bíldudalur, Skaftárhreppur og Raufarhöfn, þar sem
verkefnið er lengst komið. Umsjón með íbúaþinginu
hafði Ildi, þjónusta og ráðgjöf. aij@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Sumarfegurð Breiðdalsvík á fallegum sumardegi, en unnið er að uppbyggingu í atvinnulífi á staðnum.
Dyr á víðavangi og upp-
bygging Einarsstofu
Fjölmargar hugmyndir ræddar á íbúaþingi á Breiðdalsvík
Brimnes RE varð aflahæst frysti-
togara í fyrra og veiddi 11.887 tonn í
21 veiðiferð. Þar af voru makríll og
síld 4.541 tonn. Kleifaberg RE varð í
2. sæti með 11.246 tonn upp úr sjó.
Brim hf. gerir bæði skipin út.
Vefurinn aflafrettir.is leiðrétti
fyrri frétt sína um að Kleifaberg RE
hefði verið aflahæst. Skýringin á
fyrri fréttinni er sú að Brimnes RE
stundaði makrílveiðar við Grænland
og landaði 1.307 tonnum. Önnur af
tveimur veiðiferðum þangað var
ekki skráð í kerfið sem upplýsing-
arnar voru sóttar í.
Á vefnum aflafrettir.is kemur
fram að afli Brimness RE hafi verið
1.100 tonnum meiri árið 2013 en árið
á undan. Aflinn hjá Kleifabergi RE
jókst hins vegar um 1.500 tonn á
milli áranna 2012 og 2103.
Kleifaberg RE er flakafrystitog-
ari með 26 manna áhöfn. Brimnes
RE haussker aflann og heilfrystir.
Þar um borð er 20 manna áhöfn.
Kleifaberg RE er nú í slipp í
Reykjavík þar sem skipið gengst
undir reglulegt viðhald. Stefnt er að
því að togarinn hefji veiðar á ný und-
ir lok vikunnar. gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Þórður
Kleifaberg RE Skipið er nú í slipp í Reykjavík. Þar gengst það undir reglu-
legt viðhald. Togarinn var smíðaður 1974 og verður því 40 ára á þessu ári.
Brimnes aflahæst
Kleifaberg RE er nú í slipp og
heldur aftur til veiða í lok vikunnar