Morgunblaðið - 09.01.2014, Side 22
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Stjarnvísindamenn hafa náð dýpstu
mynd sem náðst hefur af þyrpingu
stjörnuþoka með Hubble-geimsjón-
aukanum. Þyrpingin nefnist Pan-
dóruþyrpingin (Abell 2744) og er
hún talin hafa myndast við árekstur
margra slíkra vetrarbrautaþyrp-
inga.
Vetrarbrautir sem sjást á mynd-
inni eru í um tólf milljarða ljósára
fjarlægð frá sólkerfi okkar og sýnir
hún því hvernig þær litu út til-
tölulega stuttu eftir miklahvell, bor-
ið saman við aldur alheims.
Magnar upp ljósið
Myndin er sú fyrsta úr svokölluðu
Frontier Fields-verkefni Hubble-
sjónaukans en það gengur út á að
skyggnast dýpra út í alheiminn en
nokkru sinni áður að því er kemur
fram á Stjörnufræðivefnum. Þetta
er gert með því að láta sjónaukann
kanna svonefndar þyngdarlinsur í
kringum sex mismunandi vetrar-
brautaþyrpingar.
Efnismikil fyrirbæri eins og
vetrarbrautarþyrpingar hafa svo
mikinn þyngdarkraft að þær sveigja
og bjaga geiminn í kringum sig.
Þetta verður þess valdandi að ljós
frá enn fjarlægari fyrirbærum á bak
við þessar náttúrulegu linsur bjag-
ast. Þyngdarlinsan magnar upp ljós-
ið frá þessum fyrirbærum sem eru
alla jafna of dauf og fjarlæg til að
sjást og gerir þau sýnileg.
Alls má þannig greina yfir þrjú
þúsund vetrarbrautir á mynd
Hubble sem Pandóruþyrpingin
magnar upp en henni tilheyra
hundruð vetrarbrauta í forgrunn-
inum. Sú daufasta þeirra er tíu til
tuttugu sinnum daufari en nokkur
vetrarbraut sem áður hefur sést frá
jörðinni.
Myndirnar frá Hubble verða not-
Skyggnast í
stækkunargler
Pandóru
Náttúrulegar linsur notaðar
til að skoða fyrirbæri í órafjarlægð
Þrátt fyrir að
færri reyki nú í
sumum heims-
hlutum en áður
er reykinga-
mönnum í heim-
inum að fjölga.
Árið 2012 reyktu
um 967 milljónir
manna á hverjum
degi borið saman
við 721 milljón
manna árið 1980. Þetta sýna gögn
frá 187 þjóðum heims.
Ástæðan er einfaldlega fjölgun
mannkynsins en hlutfall reyk-
ingafólks í heiminum hefur hins
vegar lækkað.
Algengara er að karlar reyki en
konur. Um þrír af hverjum tíu körl-
um og ein af hverjum tuttugu kon-
um í heiminum reykja daglega. Ár-
ið 1980 var hlutfallið fjórir af
hverjum tíu karlmönnum og ein af
hverjum tíu konum.
HEILBRIGÐISMÁL
Reykingafólki
fjölgar í heiminum
en hlutfallið lækkar
Konur reykja
síður en karlar.
Þýski F1-öku-
þórinn Michael
Schumacher var
á hraða „góðs
skíðamanns“ á
nokkuð hörðu
undirlagi þegar
hann rakst á
stein og datt.
Engu að síður
telur teymi sem
rannsakað hefur
slysið sem varð þess valdandi að
hann hefur legið í dái frá 29. des-
ember að hvorki hraðinn, skíðin né
merkingar á skíðabrautinni hafi
valdið slysinu.
Patrick Quincy, saksóknarinn
sem fer fyrir rannsókninni, sagði á
blaðamannafundi í gær að allar
reglur um merkingar á skíðabraut-
um hefðu verið virtar og að Schu-
macher hefði vísvitandi skíðað utan
brautarinnar.
FRAKKLAND
Hraði, merkingar
eða skíðin ekki
ástæða fallsins
Michael
Schumacher
Her- og lögreglumenn rannsaka
það sem talið er vera hluti af braki
bandarískrar herþyrlu sem hrapaði
við strendur Norfolk á austurhluta
Englands seint á þriðjudagskvöld
með þeim afleiðingum að fjögurra
manna áhöfn hennar fórst.
Þyrlan var af gerðinni HH-60G
Pave Hawk en hún hrapaði á nátt-
úruverndarsvæði við Cley-next-the-
Sea þegar hún var við lágflugsæf-
ingar. Að sögn lögreglu dreifðist
brak úr þyrlunni yfir svæði á stærð
við knattspyrnuvöll.
Íbúar og sveitarstjórnarmenn á
svæðinu höfðu varað við slysahættu
vegna þess að herþyrlur höfðu oft
sést fljúga í allt niður í þriggja
metra hæð á svæðinu þótt þar væru
uppeldisstöðvar fugla.
Fjögurra manna áhöfn fórst þegar bandarísk herþyrla hrapaði á Englandi
Höfðu varað
við slysa-
hættu
EPA
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Forsætisnefnd þjóðþings Norður-
Kóreu tilkynnti í gær að kosningar til
þingsins yrðu haldnar 9. mars. Þetta
verða fyrstu kosningar sem haldnar
eru í einræðisríkinu frá því að Kim
Jong-un tók við völdum í lok árs 2011.
Kim er talinn ætla að herða völd sín
í landinu enn frekar í kjölfar þess að
hann ruddi eiginmanni föðursystur
sinnar úr vegi nýverið. Norður-kór-
eska þingið er einungis málamynda-
samkunda og er í raun valdalaust.
Hlutu öll greidd atkvæði
Kosið er til þingsins á fimm ára
fresti og fóru síðustu kosningar fram
árið 2009 í valdatíð Kim Jong-il. Þá
var aðeins einn frambjóðandi í boði í
hverju og einu hinna 687 kjördæma
landsins og höfðu þeir allir verið vald-
ir af stjórnvöldum. Kjörsókn var
99,98% samkvæmt opinberum tölum
og hlutu frambjóðendurnir öll greidd
atkvæði í kjördæmum sínum.
Grannt verður fylgst með kosning-
unum í Norður-Kóreu fyrir vísbend-
ingar um hvaða breytingar eigi sér
stað innan valdapíramídans þar og
hvort áður valdamiklir menn innan
hans verði látnir fjúka.
Kim III. hefur þegar látið til sín
taka og er aftakan á Jang Song-Tha-
ek, eiginmanni föðursystur hans og
pólitískum lærimeistara, skýrasta
dæmið um þær breytingar sem leið-
toginn ungi hefur gert. Auk þess hef-
ur fjölda embættismanna sem starfað
hafa erlendis verið skipt út. Í nýársá-
varpi sínu í síðustu viku sagði Kim að
landið hefði styrkst við það að „klofn-
ingsúrþvætti“ hefði verið fjarlægt.
Norður-kóreska þingið er yfirleitt
kallað saman tvisvar á ári í einn til tvo
daga í senn til þess að samþykkja
fjárlög og persónulegar breytingar.
Síðast var það kallað saman í apríl á
síðasta ári en þá var tilnefning Pak
Pong-Ju til embættis forsætisráð-
herra samþykkt.
Boða til kosninga í N-Kóreu
Fyrstu þingkosningar frá því að Kim Jong-un tók við völdum Þingið valda-
laus samkunda Fylgst með hvort frekari hreinsanir æðstu manna eigi sér stað
AFP
Leiðtogi Fylgi Kim Jong-un (f.m.) fordæmi föður síns gæti hann sjálfur ver-
ið í framboði í kosningnum. Hér kannar hann herstöð í landinu á dögunum.