Morgunblaðið - 09.01.2014, Síða 23
aðar ásamt myndum frá Spitzer-
sjónaukanum og Chandra-
röntgensjónaukanum til að varpa
frekara ljósi á uppruna vetrarbrauta
og svarthola í miðju þeirra.
Stærri en búist var við
Á fundi bandarísku stjarnvísinda-
samtakanna þar sem myndin af Pan-
dóruþyrpingunni var kynnt var
greint frá fleiri uppgötvunum. Þann-
ig greindu vísindamenn frá því að
þeir hefðu myndað fjórar ungar
vetrarbrautir eins og þær voru að-
eins 500 milljón árum eftir mikla-
hvell. Hubble-sjónaukinn hefur áður
náð myndum af svo ungum vetrar-
brautum en það kom á óvart að þær
voru 10-20 sinnum bjartari en þær
sem áður hafa sést.
„Þær voru mun stærri en við átt-
um von á að finna. Þær eru aðeins
1% af vetrarbrautinni okkar en það
er stór stjörnuþoka svo snemma í
sögunni,“ segir dr. Garth Illing-
worth við Háskólann í Kaliforníu.
ESA/Hubble
Linsa Vetrarbrautirnar í Pandóruþyrpingunni eru í um 3,5 milljarða ljósára
fjarlægð frá sólkerfi okkar en þær sem hún magnar upp eru enn fjarlægari.
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Forsætisráðherra Íraks, Nuri al-
Maliki, er sigurviss í aðdraganda
meiriháttar hernaðaraðgerða sem
íraski herinn undirbýr nú til þess að
ráða niðurlögum uppreisnar al-
Qaeda-liða í borginni Fallujah.
Herskáir súnnítar náðu borginni á
sitt vald um helgina en það er í fyrsta
skipti frá því að síðara Íraksstríðið
hófst með innrás Bandaríkjahers ár-
ið 2003 sem uppreisnarmenn ráða
stórum borgum í landinu.
Í sjónvarpsávarpi í gær þakkaði
Maliki alþjóðasamfélaginu fyrir
stuðninginn í baráttunni gegn al-
Qaeda um leið og hann hvatti upp-
reisnarmenn til að leggja niður vopn.
Bandarísk stjórnvöld hétu því fyrr í
vikunni að þau myndu senda vopna-
búnað með hraði til landsins, þar á
meðal eldflaugar og dreka (e. drone).
Þau hafa hins vegar útilokað að
senda hermenn aftur til landsins.
Rauði hálfmáninn í Írak greindi
frá því í gær að um 13.000 fjölskyldur
hefðu flúið Fallujah undanfarna daga
í kjölfar átaka á milli al-Qaeda-liða og
öryggissveita. Flestir hefðust við í
skólum, öðrum opinberum bygging-
um eða hjá ættingjum sínum.
Stærsta orrustan frá Víetnam
Fall Fallujah hefur valdið banda-
rískum uppgjafahermönnum og
stjórnmálamönnum hugarangri en
borgin var vettvangur einhverra
hörðustu skæra stríðsins á sínum
tíma.
Átök hófust þar í apríl 2004 í kjöl-
far þess að fjórir verktakar Black-
water-öryggisfyrirtækisins voru
myrtir og illa leikin lík tveggja ann-
arra voru hengd til sýnis af brú yfir
Efratfljót.
Sjö mánuðum síðar hófst gríðar-
lega umsvifamikil aðgerð banda-
rískra hermanna sem gengu hús úr
húsi til að leita uppi uppreisnarmenn.
Þeim aðgerðum hefur verið lýst sem
mestu hernaðaraðgerðum banda-
rískra landgönguliða í borgarum-
hverfi frá bardaganum í Hue í Víet-
nam árið 1968.
„Þessir ungu landgönguliðar, 19
ára gamlir, fóru í sérhverja byggingu
og herbergi í Fallujah. Þeir fóru inn í
dimm herbergi, spörkuðu niður
hurðir án þess að vita fyrirfram hvort
þeir fyndu íraska fjölskyldu á hækj-
um sér eða íslamskan hryðjuverka-
mann sem beið þess að skjóta þá og
drepa. Þetta gerðu þeir aftur og aft-
ur,“ segir sagnfræðingurinn Richard
Lowry við AP-fréttaveituna banda-
rísku.
Því er ekki laust við að þróun mála
nú valdi þeim sem kostuðu miklu til
að ná valdi á borginni vonbrigðum og
að þeir spyrji sig hvort fórn þeirra
hafi verið til einskis.
„Ég sé þetta ekki sem skipbrot
allra aðgerða okkar … ennþá. Þetta
er bara einn vígvöllur, ein borg af
mörgum þar sem bardagar hafa geis-
að frá 2003. Það er vegna þess að við
höfum upphafið þessa orrustu svo
mikið að fyrir okkur Bandaríkja-
mönnum verður þetta að glötuðum
málstað, Víetnamheilkenninu,“ segir
Earl J. Catagnus jr., sem særðist í
átökum í Fallujah og kennir nú við
herskóla, við AP.
Fall Fallujah vekur
efasemdir vestra
Vettvangur mestu hernaðaraðgerða innrásarinnar í Írak
AFP
Verslun Lífið í Fallujah komst að einhverju leyti í hefðbundnar skorður í
gær og verslanir sumar opnaðar aftur. Al-Qaeda-liðar ráða þar enn ríkjum.
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
• Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
• Hnoðar deig
• Býr til heita súpu og ís
• Uppskriftarbók og
DVD diskur
fylgja með
Lífstíðareign!
Tilboðsverð kr. 106.900
Með fylgir Vitamix sleif
drykkjarmál og svunta
Fullt verð kr. 125.765
Meira en bara
blandari!
Innihurðir
í öllum stærðum
og gerðum!
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Lei
tið
tilb
oða
hjá
fag
mö
nnu
m o
kka
r
• Hvítar innihurðir
• Spónlagðar innihurðir
• Eldvarnarhurðir
• Hljóðvistarhurðir
• Hótelhurðir
• Rennihurðir
• Með og án gerefta