Morgunblaðið - 22.02.2014, Side 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ
Krydd fyrir
framandi
matargerð
H
arriott verður staddur hér á
landi við tökur á sjónvarps-
þáttum sem heita Ainsley
Eats the Streets og fjalla
um matargerð á óformlegum og
upprunalegum nótum í mismunandi
löndum og er Ísland í brennidepli í
þetta sinn. Ainsley Harriott er afar
vinsæll sjónvarpskokkur sem krydd-
ar sjónvarpsþætti sína með húmor
og hlátri og hafa þeir verið sýndir í
ensku sjónvarpi í yfir fimmtán ár.
Helst er hann þekktur fyrir þættina
Can’t Cook, Won’t Cook og Ready,
Steady, Cook en íslensk útgáfa var
gerð fyrir Stöð 2 á sínum tíma með
Sigga Hall undirheitinu Einn, tveir
og elda. Báðir þessir þættir eru enn
sýndir og hafa notið mikilla vinsælda
úti um allan heim.
Fyrir utan störf sín í sjónvarpi er
Ainsley afar virtur matreiðslumeist-
ari í Bretlandi og hefur gefið út-
fjölda metsölubóka um mat og mat-
argerð. Hann hefur fylgst með Food
& Fun-hátíðinni og þykir að sögn
mikið til hennar koma. Eins er hann
áhugasamur um land og þjóð hefur
sérstakan áhuga á sérstöðu ís-
lenskra matvæla og gæða þeirra.
Lokakeppnin fer fram í Hörpu,
laugardaginn 1. mars, í Norður-
ljósasalnum, og geta áhorfendur
fylgst með bæði á skjáum og í beinni
lýsingu á störfum matreiðslumeist-
aranna og dómaranna.
jonagnar@mbl.is
Sérstakur heiðursdómari
á Food & Fun 2014
Enski sjónvarpskokk-
urinn Ainsley Harriott
verður á Íslandi á með-
an Food & Fun-matarhá-
tíðin stendur yfir og
verður heiðursdómari á
lokakeppni hátíðarinnar.
Matgæðingur Sjónvarpskokkurinn
góðkunni Ainsley Harriott er vænt-
anlegur á Food & Fun og verður hann
sérstakur gestadómari.
A
ð sögn Bryndísar Pjet-
ursdóttur er með ólíkindum
hversu miklum breytingum
veitingastaðaflóran í
Reykjavík hefur tekið. Þar hafi átt
sér stað verulega jákvæð þróun und-
anfarinn hálfan annan áratug og í
dag búi höfuðborgin að fjölbreyttu
úrvali framúrskarandi veit-
ingastaða. „Ímynd Reykjavíkur sem
matarborgar styrkist með hverju
árinu og hátíðin Food and Fun haft
þar veruleg áhrif. Hátíðin setji mikin
svip á borgina þá daga sem hún
stendur yfir og viðburðurinn hljóti
umtalsverða umfjöllun í erlendum
fjölmiðlum.“
Bryndís er markaðsstjóri Höf-
uðborgarstofu en hlutverk stofn-
unarinnar er að markaðssetja
Reykjavík erlendis sem áhugaverð-
an áfangastað. Reykjavíkurborg er
einn af bakhjörlum Food and Fun-
hátíðarinnar.
Góður matur segir Bryndís að sé
mikilvægur liður í ímynd allra borga
hvað snýr að menningu og lífs-
gæðum. Stór hluti af þeirri upplifun
að ferðast til áfangastaða víða um
heim sé að njóta góðs matar og það
hafi áhrif á val marga ferðalanga
þegar þeir vita að von er á eft-
irminnilegri matarupplifun.
Fórum sárasjaldan út að borða
„En sterkur og skapandi veit-
ingastaðageiri skiptir ekki síður
máli fyrir lífsgæði heimamanna.
Ein jákvæðasta breytingin sem
orðið hefur á daglegu lífi Reykvík-
inga samhliða fjölgun veitingastaða
er að það að fara út að bora er orðið
eitthvað sem almenningur getur
betur látið eftir sér. Fólk af minni
kynslóð man eflaust vel að á árum
áður fóru Íslendingar varla út að
borða nema þá helst á stór-
afmælum eða miklum tímamótum í
lífi einhvers í fjölskyldunni. Í dag
er hins vegar ekki óalgengt að fólk
heimsæki góðan veitingastað
nokkrum sinnum í mánuði eða jafn-
vel oft í viku, ef ekki til að borða
kvöldverð þá til að fá sér eins og
einn rétt í hádeginu eða snarl með
vinunum.“
Bryndís segir að margt hafi verk-
að saman til að skapa þessa nýju
menningu í kringum mat og veit-
ingastaði. Þannig hafi vaxandi
straumur ferðamanna gert það
mögulegt að reka fleiri veitingastaði.
„En um leið hafa matreiðslumenn-
irnir okkar sýnt mikinn metnað og
frumleika. Innan stéttarinnar hefur
skapast mjög öflugt samfélag þar
sem stöðugt flæða inn nýjustu
straumar og ferskar hugmyndir er-
lendis frá. Samhliða þessu hafa Ís-
lendingar sýnt mat og matargerð
mikinn áhuga. Þeir hafa margir gert
víðreist og upplifað það besta sem
alþjóðlegar stórborgir hafa upp á að
bjóða í mat og drykk og snúa aftur
heim með upplifun og reynslu sem
framkallar miklar kröfur til ís-
lenskra veitingamanna.“
Ekki síst segir Bryndís ánægju-
legt að verðlagið á íslenskum veit-
ingastöðum hefur að mestu þróast í
mjög heilbrigða átt og þarf alls ekki
að vera svo dýrt að krydda tilveruna
með heimsókn á veitingastað eina
kvöldstund. „Við hjá Höfuðborg-
arstofu tökum á móti fjölda erlendra
blaðamanna og gesta á hveru ári,
förum með þeim út að borða og
kynnum fyrir bæði íslenskri mat-
argerð og veitingahúsum borg-
arinnar. Gaman er að sjá viðbrögðin
hjá þeim þegar við borðum saman.
Nær undantekningalaust kemur
þeim á óvart að ekki sé hærra verð
rukkað fyrir aðra eins gæðarétti úr
gæðahráefni hjá fallegum og ný-
tískulegum veitingastöðum. Gestir
okkar hafa ferðast um allan heim og
kynnst matarmenningu annarra
landa vel, en heillast af íslenskri
matargerð. Það sem oftast er nefnt
er hversu fjölbreytturmatseðillinn
er og hvað gæði hráefnisins eru mik-
il.“ ai@mbl.is
Skiptir miklu fyrir lífsgæðin
Gaman er að sjá þá jákvæðu breytingu sem orðið hefur á lífi borgarbúa með
sterkari veitingastaðamenningu. Að fara reglulega út að borða er hjá mörgum
orðið sjálfsagður hlutur af almennum lífsgæðum.
Ljósmynd/Roman Gerasymenko
Þróunin „Nær undantekningalaust kemur þeim á óvart að ekki sé hærra verð
rukkað fyrir aðra eins gæðarétti úr gæðahráefni hjá fallegum og nýtískulegum
veitingastöðum,“ segir Bryndís um viðbrögð erlendra gesta.
Að mati Bryndísar skiptir góð matarmenning miklu fyrir
landkynningu. Hún segir gott orðspor íslenskrar matargð-
erðar kannski ekki nægja eitt og sér til að fólk ferðist til Ís-
lands en minningar um góðan mat hjálpi hins vegar tví-
mælalaust til að fá gesti til að heimsækja landið aftur.
„Þetta helst allt í hendur: Reykjavík býður upp á fjöl-
breytta menningu, borgin er friðsæl, í nábýli við náttúru
og hefur úrval góðra veitingastaða. Þegar ferðin er af-
staðin er það samblanda af þessum upplifunum sem fólk
man eftir. Það hvað minningar um mat lifa sterkt ætti ekki
að koma svo mjög á óvart enda er fátt í lífinu ánægjulegra
en að fá að njóta frábærrar matarupplifunar. Er fátt sem
veitir meiri vellíðan en góður matur í fallegu umhverfi og í
góðum félagsskap.“
Matur skapar sterkustu minningarnar
Morgunblaðið/Ómar
Freistingar Það þykir orðið eðlilegur hluti af lífi höfuðborgarbúa að gera sér dagamun hversdags með heimsókn á veit-
ingastað. Mynd úr safni frá veitingastaðnum KOL.