Morgunblaðið - 22.02.2014, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 22.02.2014, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ | 13 www.rub23.is Food and Fun Iceland 2014 Tom Coohill - COOHILLS A chef since 17, Tom began his love affair with French cuisine at L’Auberge des Champes in Kentucky. He trained under master chefs at the three-star Michelin L’Oustau de Baumaniere in France, the five-star Mobile Le Francais in Illinois, and Ma Maison in Los Angeles. Humarhalar Léttsaltaður þorskur, rauðvínssósa, duftað söl Langoustine Salted cod, red wine sauce, Icelandic seaweed powder Heitreikt Bleikja Sveppir, volgt salat, engifer, vorlaukur, soya, appelsína, sesam Hot Smoked Artic Char Local mushrooms, braised greens, ginger, scallions, soy, orange, sesame Lambahryggvöðvi Stökkar kartöflur, gulrótarmauk, þurrkaðar villijurtir, steikt rósmarín, rósakál, mintuilmandi lambasoð Icelandic Lamb Crisp potatoes, carrot puree, dried wild herbs, fried rosemary, brussels sprouts, mint infused lamb jus Hverabrauðsbúðingur Saltaður karamellu skyr ís, Reyka vodka bökuð villt ber Geothermic Icelandic Rye Bread Pudding Salted caramel Skyr Ice Cream, Rekya vodka baked wild berries Verð 7990,- MenuFood and Fun Rub23 | Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Sími 553 5323 | reykjavik@rub23.is Eldhúsið „Grillmarkaðurinn er fyrst og fremst íslenskur veitingastaður. Við lögðum upp með það frá byrjun svo matseðillinn endurspeglar það dált- ið sem og staðurinn sjálfur. Við kaupum alltaf íslenskt kjöt af bændum landsins sem og grænmeti og fleira sem við á. Við erum t.d. með harðfisk á matseðlinum sem er mjög vinsæll réttur. Eldhúsið á Grillmarkaðnum er mjög opið og er það sem tekur á móti þér þegar þú kemur inn. Maður verður mjög svangur bara við það að ganga inn á Grillmarkaðinn. Það er góð mat- arlykt og stemning í loftinu. Það eru 8-12 kokkar á vakt hjá okkur hverju sinni og um 25 starfsmenn í sal. Í heildina erum við með um 100 manns á launaskrá á Grillmark- aðnum.“ Sérstaðan „Sérstaða Grillmarkaðarins er góð- ur matur. Ég verð bara að segja það. Það er það sem við leggjum upp með. Fylgjum ekki tísku- stefnum og straumum þegar við búum til rétti heldur hugsum um hvað okkur finnst gott og gerum það. Við leggjum okkur mikið fram við það að fá gott hráefni í hús, sem er nauðsynlegt þegar maður ætlar að hafa góðan mat. Mikil vinna fer í að hitta bændur og aðra framleið- endur til að fá sem besta nið- urstöðu. Við erum líka með risa- stórt grill sem við grillum stóran hluta af matseðlinum á. Í grillið notum við kol sem hitna upp í 2.100 gráður, sem gerir það að verkum að hráefnið sem grillað er verður mun safaríkara en ella eftir eld- unina.“ Vinsælt af matseðlinum „Við erum með marga vinsæla rétti og ber þar að nefna hamborgarann okkar sem er í hádeginu hjá okkur. Svo erum við með grillplatta í há- deginu líka sem er mjög vinsæll. Á kvöldin er það svo smakkseðillinn okkar sem langflestir fara í. Þar er góð blanda af grilluðum fiski, kjöti og grænmeti sem og öðrum frá- bærum réttum inn á milli og ógleymanlegum eftirréttum.“ Gestakokkurinn á Food & Fun „Hann heitir William Morris og er yfirkokkur á Vermilion í Wash- ington DC. Vermilion er þekktur fyrir að nota staðbundið hráefni og William sjálfur lýsir sinni mat- reiðslu sem einfaldri og heiðarlegri. Hann mun smellpassa hjá okkur á Grillmarkaðinn. Hann hefur t.d. unnið með Nobu og Marco Pierre White og einn af hans fastagestum er forseti Bandaríkjanna, sem má telja til góðra meðmæla.“ jonagnar@mbl.is Veitingastaðirnir á Food & Fun 2014 Grillmarkaðurinn Morgunblaðið/Ómar Grillmarkaðurinn Veitingastaðurinn er í einu af húsunum nýju sem reist voru á horni Austurstrætis og Tryggvagötu í Reykjavík og á sér fjölmarga aðdáendur. Opið eldhús, íslenskt hráefni, risastórt grill og skemmtilegt andrúmsloft eru einkenni Grill- markaðarins, að sögn Hrefnu Rósu Sætran. Grilluð grísarif með sinneps BBQ-sósu Fyrir 4 4 lengjur af grísarifjum 4 msk. gróft salt 1 tsk. svört piparkorn 4 stk. anísstjörnur 2 hvítlauksgeirar 2 msk. nautakraftur Stráið saltinu yfir grísarifin og látið standa í 2 klst. Setjið rifin í eldfast mót ásamt piparnum, anísnum, hvít- lauknum og nautakraftinum. Fyllið mótið af vatni þannig að það fljóti yfir rifin. Eldið rifin í 2½ tíma inni í ofni við 160°. Takið rifin upp úr vatninu og penslið þau vel með sinneps BBQ- sósunni. Grillið rifin þar til fallegar grillrendur myndast. Penslið þau vel inn á milli með sinneps BBQ-sósunni. Sinneps-bourbon sósa: 1 laukur, saxaður 4 hvítlauksgeirar 200 g púðursykur 125 ml tómatsósa 75 g tómatpurre 125 ml dijon-sinnep 125 ml vatn 75 ml worchester-sósa 75 ml eplaedik 75 ml eplasafi 1 tsk. tabasco 1 tsk. cummin 350 ml vatn salt og pipar eftir smekk Setjið laukinn og hvítlaukinn í pott með smáolíu og steikið í smástund. Bætið restinni út í og sjóðið við væg- an hita þar til sósan er orðin þykk. Sigtið sósuna. Uppskrift að hætti hússins

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.