Morgunblaðið - 22.02.2014, Síða 16

Morgunblaðið - 22.02.2014, Síða 16
Eldhúsið „Eldhúsið á Fiskmarkaðnum hefur dálitla sérstöðu því þar erum við með sérstaka sushi-stöð og svo ro- bata-grill stöð sem tíðkast ekki í almennum eldhús- um. Einnig erum við með hefðbundna forrétta- og eftirréttastöð og svo heita stöð þar sem aðalréttir og heitir forréttir eru gerðir. Með því að hafa fleiri stöðvar náum við að senda mat út úr eldhúsinu hrað- ar en tíðkast svo afgreiðslan gengur mjög vel fyrir sig. Á sushi-stöðinni er manneskja sem er allan dag- inn að dúlla við hráefnið sem gerir það að verkum að við náum að gera hágæða sushi í eldhúsinu hjá okk- ur. Það er ein föst manneskja á hverri stöð til að við missum aldrei yfirsýn yfir hráefnið og náum við þannig að hafa allt fullkomið eins og við viljum hafa það. Það eru 5-7 í eldhúsinu á hvorri vakt og það vinna um 60 manns á Fiskmarkaðnum í heildina. Þegar við opnuðum Fiskmarkaðinn fyrir 7 árum vor- um við mun meira að líta til Asíu en við gerum nú þó svo að við kíkjum alveg reglulega þangað þegar við erum að búa til nýja rétti.“ Sérstaðan „Það er robata-grillið okkar. Í það fara sérstök kol sem hitna upp í 2.100 gráður sem er alveg miklu meira en venjuleg kol hitna. Með því að nota þessi kol náum við ótrúlega góðu grillbragði fram í matn- um en á sama tíma, þar sem kolin eru svo heit, ofeld- um við aldrei neitt því hráefnið þarf svo stuttan tíma á grillinu. Svo er eldhúsið líka opið og við það er bar- svæði þar sem hægt er að borða. Það er mjög vinsælt að geta fylgst með kokkunum að elda og hafa allir mjög gaman af því sem prófa.“ Vinsælt af matseðli „Við erum með nætursaltaðan þorsk á seðlinum sem var upprunalega gerður sem jólaréttur. Hann er svo ótrúlega vinsæll að þegar við ætluðum að skipta hon- um út þá kvörtuðu gestirnir og við urðum að setja hann aftur inn. Við eigum líka ostaköku á seðlinum sem má segja sömu sögu um. Við breytum þó reglu- lega meðlætinu með henni og slær hún alltaf í gegn. Vinsælast er þó að fara í 9 rétta matseðilinn okkar sem inniheldur góða blöndu af matseðlinum. Þannig fær fólk að smakka sem mest í einu og fær að sjá Fiskmarkaðinn í heild sinni. Við höfum fundið fyrir frá okkar gestum að þeir vilja dáltið geta gengið að því vísu að réttirnir séu áfram á matseðlinum þegar þeir koma næst svo við breytum ekki oft alveg um matseðil, heldur betrumbætum við og uppfærum frekar.“ Gestakokkurinn á Food & Fun „Það er hann Jonah Kim frá Pabu restaurant í Balti- mor. Pabu er svona japanskur staður svo hans sér- staða er sushi og japönsk matargerð. Hann kom til okkar í fyrra líka og samstarfið gekk glimrandi vel. Flottasti Food & Fun matseðill sem við höfum verið með hingað til svo við báðum um að fá hann aftur til okkar. Einn af 5 réttunum á Food & Fun matseðl- inum í ár er sushi og það hljómar ekkert smáspenn- andi hjá honum.“ jonagnar@mbl.is Fiskmarkaðurinn Veitingastaðirnir á Food & Fun 2014 Fiskmarkaðurinn var fyrsti staðurinn sem Hrefna Rósa Sætran opnaði. Gestakokkurinn Jonah Kim sló þar í gegn í fyrra og snýr því aftur í ár. 16 | MORGUNBLAÐIÐ Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þér • Mylur alla ávexti, grænmeti klaka og nánast hvað sem er • Hnoðar deig • Býr til heita súpu og ís • Uppskriftarbók og DVD diskur fylgja með Lífstíðareign! Tilboðsverð kr. 106.900 Með fylgir Vitamix sleif drykkjarmál og svunta Fullt verð kr. 125.765 Meira en bara blandari! Robata-grillaður lax með epla-fennel salati 800 g lax (bein og roðhreinsaður, skorinn í 4 steikur) olía salt og pipar 2 stk. græn epli 2 stk. fennel 1 stk. rautt chili 200 ml hvítvínsedik 4 msk. sykur ¼ búnt ferskt dill Setjið edikið í pott með sykrinum. Hitið þar til sykurinn leysist upp. Kælið vökvann. Setjið vökvann í mat- vinnsluvél með dillinu og maukið vel saman. Skrælið eplin og skerið í litla bita. Skerið einnig fennelinn í litla bita. Kjarnhreinsið chili-ið og skerið kjötið fínt niður. Blandið öllu saman í skál og leyfið að standa í amk. 2 klst. áður en þið berið fram. Penslið laxinn með olíu og kryddið með salti og pipar. Grillið laxinn á rjúkandi heitu grillinu í 4 mínútur á annarri hliðinni. Snúið laxinum við og grillið áfram í 1 mínútu. Setjið lax- inn á disk og epla-fennel salatið yfir laxinn. Uppskrift að hætti hússins Mynd/Björn Árnason Lostæti Robata- grillaður lax að hætti Fiskmarkaðarins er ljúffengur og hann er ljúfur á að líta. Eldhúsið „Á Sjávargrillinu myndi ég lýsa matreiðslunni sem skandinav- ískri matreiðslu, svo setjum við okkar eigin íslenska stíl á rétt- ina.“ Sérstaðan „Okkar sérstaða er að grilla fisk í bland við mikið úrval af frábærum réttum. Seðillinn er stór og dreifist á ansi stóran markhóp, mikið úrval, en grill- aður fiskur og íslensk náttúra eru í aðahlutverki.“ Vinsælt af matseðli „Við erum með fjórar veislur; fisk-, humar-, grænmetis- og sælkeraveislu. Eru þetta lang- mest seldu veislurnar og þar af leiðandi vinsælustu réttirnir. Það er í raun enginn einn réttur sem stendur upp úr.“ Gestakokkurinn á Food & Fun „Það er Hamilton Johnson sem vinnur á stað í Washington D.C. sem heitir Restaurant Vi- dalia.“ jonagnar@mbl.is Sjávargrillið Morgunblaðið/Rósa Braga Fjölrétta veislur og ferskur fiskur eru í öndvegi á Sjávargrillinu, segir Gústav Axel Gunnlaugsson. Sítrónu skyrkrem 500 g skyr 500 g hvítt súkkulaði 500 ml rjómi 5 stk. matarlím 2 stk. sítrónur (safi) Hitið rjómann, og setjið matarlím í kalt vatn og svo út í heitan rjómann. Bræðið hvíta súkkulaðið og blandið saman við, látið kólna að stofuhita og þeytið svo skyrinu og sítrónusafanum saman við. Frábært krem í íslenska deserta. Uppskrift að hætti hússins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.