Morgunblaðið - 22.02.2014, Side 17

Morgunblaðið - 22.02.2014, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ | 17 Matreiðslumeistarinn Alessandro Gavagna kemur frá veitingastaðnum La Subida í héraðinu Cormons á norðaustanverðri Ítalíu, skammt frá landamærum Slóveníu. Gavagna vakti snemma athygli fyrir sköpunargleði sína í eldhúsinu þar sem virðing fyrir hráefni og hefðum skín í gegnum matseldina sem færði honum og veitingastaðnum hans verðskuldaða Michelin stjörnu. Sérstakir áhugamenn um ítalska matargerð ættu ekki að láta þetta tækifæri fram hjá sér fara. MEISTARINN FRÁ LA SUBIDA Í CORMONS Alessandro Gavagna yfirmatreiðslumeistari . www.lasubidasirk.com 26. FEBRÚAR TIL 2. MARS Kolabrautin er á 4ðu hæðHörpu | Borðapantanir 519 9700 info@kolabrautin.is | www.kolabrautin.is Eldhúsið „Stefnan á Fiskfélaginu er kannski eitthvað sem er ekki endilega auð- velt að skilgreina. Eldhúsið er rosa- lega opið fyrir nýjungum og mis- munandi stefnum, stundum erum við asískir, stundum norrænir og förum svo allt í einu yfir í að vera með rétt frá Afríku. Við pössum þó að blanda ekki öllu saman í einn graut og skiptum þar af leiðandi réttunum niður á matseðil eftir lönd- um og reynum að endurspegla bragðið frá því tiltekna landi sem réttirnir eru frá í bland við gott ís- lenskt hráefni.“ Sérstaðan „Sérstaða okkar er ferskur fiskur og skelfiskur. Við leggjum þó alltaf áherslu á að hafa kjöt á matseðli bæði sem forrétti og aðalrétti fyrir þá sem það vilja.“ Vinsælt á matseðlinum „Blackeraður skötuselur og steiktur humar með humarvorrúllu, lemong- rass gel & chili sambal, ananas & kræklinga bjór-froða Söltuð & reykt svínasíða með hægeldaðri svínakinn, poppuð pura & pikklað hvíkál, vorlauks majones & heimagerð teriyaki-sósa. Rúlluð & humarfyllt bleikja með steiktri hörpuskel og reyktu epli, rófu spaghetti, bjórhlaup, rófu- kartöflumús & eplasmjörsósu.“ Gestakokkurinn á Food & Fun „Gestakokkur Fiskfélagsins í ár á Food and Fun 2014 verður Thomas Lorentzen frá Nimb í Danmörku. Hann útskrifaðist sem mat- reiðslumaður árið 2006 og byrjaði sinn feril hjá Cofoco í Kaupmann- höfn. Árið 2007 varð hann yfirkokk- ur hjá Kadeau Bornholm, einum virtasta matsölustað Danmerkur, þar sem hann var til ársins 2010. Ár- ið 2011 byrjaði hann svo sem yf- irkokkur á Nimb Terrasse í tívolíinu í Kaupmannahöfn. Maturinn sem boðið er upp á hjá Thomas og fé- lögum á Nimb Terrasse er þekktur fyrir mikla áherslu á árstíðabundið og ferskt hráefni og að einblína mest á stefnur frá Skandinavíu með vott af áhrifum frá klassískri franskri matargerð.“ jonagnar@mbl.is Veitingastaðirnir á Food & Fun 2014 Fiskfélagið Ari Þór Gunnarsson og félagar leggja áherslu á ferskt sjávarfang og eiga von á spennandi gestakokki frá Dan- mörku. Grófin Fiskfélagið er til húsa í hjarta miðbæjarins og þar verður gómsæt stemning og gaman að vera á Food & Fun. Hundasúrufroða í fljótandi köfnunarefni ½ l vatn 100 g sykur 2 stk. limesafi 1 msk. glúkósi 100 g hundasúrur 100 g eggjahvítur Hitið saman vatn, sykur, glúk- ósa og lime safa. ælið alveg. Maukið súrur saman við í blandara og sigtið í gegnum fínt sigti. Hrærið saman við eggjahvítur. Setjið vökvann í rjómasprautu ásamt tveimur gashylkjum Sprautið blöndunni í fljótandi köfnunarefni og brjótið fínt niður. jonagnar@mbl.is Uppskrift að hætti hússins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.