Morgunblaðið - 22.02.2014, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 22.02.2014, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ | 21 Eldhúsið „Matargerðin á Sushi Samba er eins- konar ,,fun dining“ þar sem við blöndum saman áhrifum úr jap- anskri og suðuramerískri matargerð. Við einblínum á smárétti og bjóðum gestum okkar að deila réttunum.“ Sérstaðan „Sérstaða okkar byggist á góðum grunni með frábæru hráefni þar sem allt sushi er rúllað jafnóðum fyrir framan gestina, steikum með suður- amerískum áhrifum og skemmtilegri stemningu þar sem við viljum að gestum okkar finnist þeir vera komnir til Brasilíu á carnival. Einn- ig erum við með stóran kokteillista þar sem má finna marga skemmti- lega kokteila og þar ber af Chili Mojito.“ Vinsælt á matseðlinum „Vinsælast er að fólk panti sér eina af óvissuferðum okkar þar sem við bjóðum upp á mismunandi ferðir eftir því hvort fólk er hrifið af sushi eður ei. Einnig erum við með smjörfisk ceviche, nauta stuttrif, humarvindil og Surf n’ turf maki rúllu.“ Gestakokkurinn á Food & Fun „Við erum gríðarlega ánægðir með gestakokkinn okkar en hann er Ástralinn Scott Hallsworth sem er með frægari matreiðslumönnum í japanskri matargerð. Hann vann í 6 ár á Nobu í London þar sem hann var síðar valinn af Nobu Matsuhisa til að opna Nobu í Melbourne. Nú er hann fluttur aftur til London þar sem hann er að opna veitingastaðinn Kurobuta sem einblínir á smáréttir og skemmtilega drykki ekki ósvipað því sem við erum að gera hér á Sushi Samba.“ jonagnar@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Ljúft Óvissuferðirnar eru vinsæl- astar, segir Eyþór Mar, yfirmat- reiðslumaður á Sushi Samba. Veitingastaðirnir á Food & Fun 2014 Gleðin er við völd á Sushisamba enda mætast þar áhrif úr japanskri og suðuramerískri matargerð svo úr verður leikandi ljúfmeti, segir Eyþór Mar. Sushi Samba Smjörfisk-ceviche Blandið saman 6 sashimi- sneiðum af smjörfiski, ceviche salsa og maísblöndu og hrærið saman. Leggið ceviche-ið á disk og skreytið með ristuðum maís og kóríander. Maísblanda 1 stk. grillaður maísstöngull 1 stk. skallottlaukur ½ grænn chili 10 g kóríander Skerið maísbaunirnar af stönglinum og setjið í skál. Saxið skalott, chili og kórían- der og blandið saman. Ceviche-salsa 500 g tómatar í dós 1 stk. chili 1 tsk. púðursykur ½ stk. laukur ½ stk. paprika 1 stk. hvítlauksgeirar 10 g kóríander börkur af 1 lime safi úr 1 lime 50 ml vatn 5 ml yuz-safi Skerið chili, laukinn, papr- ikuna og hvítlaukinn í smáa bita. Svitið á pönnu og bætið tóm- ötunum útí ásamt púðursykr- inum. Hitið upp í 80°C og takið af hitanum. Kælið. Bætið restinni við. Uppskrift að hætti hússins Í ELDHÚSINU • með Dualit • F A S TU S _F _0 3. 02 .1 4 Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is Veit á vandaða lausn Við undirbúning í eldhúsi og við matreiðslu er fátt betra en að vinna með vönduð og góð tæki. Dualit tækin eru ekki einungis vönduð og traust heldur eru þau líka fallega hönnuð sem eykur enn á ánægjuna við að vinna með þau. Kynntu þér breiða vörulínu Dualit - sem fæst m.a. í versluninni Búsáhöld í Kringlunni. Dualit vörurnar eru margverðlaunaðar og brauðristin frá Dualit fékk m.a. stimpilinn frá Good Housekeeping Institute - 2013.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.