Morgunblaðið - 22.05.2014, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.05.2014, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Verðmæti innfluttra bíla á fyrstu þremur mánuðum ársins var rúmlega 6,1 milljarður, borið saman við tæpa 4,3 milljarða á sama tímabili í fyrra. Er aukningin tæplega 43%. Þetta má lesa út úr tölum Hagstofu Íslands og er miðað við svonefnt CIF- verðmæti. Vísar það til kostnaðar vörunnar við afhendingu, að með- töldum flutningskostnaði og flutn- ingstryggingu. Eins og sýnt er á grafinu hér til hliðar er innflutningurinn aðeins brot af því sem hann var á fyrsta ársfjórð- ungi 2008. Þá voru fluttir inn bílar fyrir 17.414 milljónir, eða fyrir nærri þrefalt hærri upphæð en á þessu tímabili í ár. Innflutningurinn þessa mánuði var minnstur 2010, eða rúm- lega einn tíundi innflutningsins 2008. Skal tekið fram að söluverðmæti þessara ökutækja er umtalsvert hærra, eða tugprósentum hærra séu full gjöld tekin með. Við þau bætist álagning bílaumboða. Bílaleigur greiða ekki full gjöld. Hlutur bílaleiga er um 25% Samkvæmt greiningu Brimborgar seldust 1.784 nýir bílar á fyrstu þrem- ur mánuðum ársins, borið saman við 1.453 í fyrra. Er það tæplega 23% aukning. Hlutur bílaleiga er nær óbreyttur milli ára, eða um 25%. Sem fyrr segir eykst verðmæti inn- fluttra bíla um 43% á fyrstu þremur mánuðum ársins milli ára og er það hlutfallslega meiri aukning en í inn- flutningi nýrra bíla á sama tímabili. Bendir það til þess að Íslendingar kaupi nú dýrari bíla en í fyrra. Nafn- gengi krónu hefur styrkst milli ára og á það þátt í að verð nýrra bíla hefur lækkað. Má þar nefna að bandaríkja- dalur kostaði 123,2 kr. hinn 20. maí 2013 en 112,7 kr. í fyrradag. Jafn- gildir það 8,6% styrkingu. Þá hefur nafngengi evru farið úr 158,6 krónum í 154,4 krónur þessa sömu daga. Egill Jóhannsson, forstjóri Brim- borgar, telur aukinn innflutning á sendibílum eiga þátt í að CIF- verðmæti innfluttra bíla eykst svo mikið milli ára. Það á við rök að styðj- ast. Þannig seldust 77 nýir sendibílar af stærri gerð á fyrsta ársfjórðungi, 38 í fyrra, og er það 103% aukning. Á sama tímabili seldist 91 sendibíll af minni gerð, 65 í fyrra, og er það 40% aukning. Sala á minni hópbílum eykst einnig mikið, fer úr 6 nýjum bílum í 14 og ríflega tvöfaldast. Fyrirtæki endurnýja bílana Egill telur ofangreinda aukningu til marks um bata í efnahagslífinu, enda telji fyrirtæki nú gott tækifæri til að endurnýjan bílakostinn. Kaup- máttur í nýjum bílum hafi aukist með styrkingu krónunnar. Hvað varðar sölu á nýjum bílum sem seljast fyrst og fremst til al- mennings og bílaleiga eykst sala á fjórhjóladrifnum ökutækjum af minni gerð um tæp 51%, fer úr 271 nýjum bíl í 408. Verð á dæmigerðum jeppa í þessum flokki er 6 milljónir, að sögn Egils. Sala á stærri fjórhjóladrifnum ökutækjum minnkar hins vegar, fer úr 243 ökutækjum í 196 og er það 19% samdráttur. Algengt verð á slík- um bílum er yfir 10 milljónir. Loks seldust 130 fleiri smábílar á þessu tímabili en í fyrra, eða 412 nýir bílar borið saman við 282 eintök á fyrsta ársfjórðungi í fyrra. Sala á minni og meðalstórum fjölskyldubílum minnk- ar hins vegar milli ára. Á fyrstu þremur mánuðum ársins seldust 148 lúxusbílar og er söluverð- mætið um 1.260 milljónir, miðað við að meðalverð sé 8,5 milljónir. Á fyrstu þremur mánuðum ársins seld- ust 193 stórir fjórhjóladrifnir bílar fyrir 10 milljónir að meðaltali, alls fyrir rúmlega 1.900 milljónir króna. Íslenskur almenningur og bílaleig- ur keyptu því lúxusbíla og stóra jeppa fyrir tæpa 3,2 milljarða á fyrsta árs- fjórðungi. Í apríl einum seldust svo lúxusbílar fyrir 690 milljónir króna til viðbótar. Bílainnflutningur jókst um 43%  Verðmæti innfluttra bíla var 1,8 milljörðum meira fyrstu þrjá mánuði ársins en sömu mánuði í fyrra  Sala á stærri sendibílum tvöfaldast milli ára  Sala á 4x4-bifreiðum af minni gerð eykst um 51% Fram kemur í greiningu Brim- borgar að alls seldust 148 nýir lúxusbílar á fyrsta ársfjórðungi en 120 í fyrra. Vörumerkin í þessum flokki eru Mercedes Benz, Audi, LandRover, Volvo, BMW, Lexus og Porsche. Aukn- ingin er enn meiri ef litið er til fjögurra fyrstu mánuða ársins. Þannig seldust 229 lúxusbílar þessa mánuði í ár en 160 í fyrra. Er það rúmlega 43% aukning. Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, segir meðalverð á nýjum lúxusbílum 8,5 milljónir. Miðað við það seldust nýir lúxusbílar fyrir um 1.950 millj. á fyrstu fjórum mánuðum ársins, en 1.360 millj. þá mánuði í fyrra. Að mati Egils er sú flokkun á lúxusbílum sem hér er stuðst við nákvæmari en tilgreind var í Morgunblaðinu 16. maí sl. Milljarðar í lúxusbíla 43% SÖLUAUKNINGInnflutningur bíla í janúar til mars 2008-2014 Cif-verðmæti í milljónum króna* 9.000 8.000 7.000 6.000 5.000 4.000 3.000 2.000 1.000 0 Núvirt velta**: Janúar Febrúar Mars 2008 2010 20122009 2011 2013 2014 *Svokallað Cif-verðmæti bílainnflutnings í milljónum króna. **Núvirt miðað við breytingu á vísitölu frá einstökummánuðum til 1.3.2014. Breyting frá fyrra ári í %: 64,0%-52,7%-77,5% 39,4% 1,2% 42,8% 8. 65 9 4. 49 3 4. 26 2 1. 31 5 1. 64 0 95 6 50 8 62 0 72 3 71 7 1. 24 3 1. 0 52 1. 37 5 1. 80 7 1. 35 1 1. 31 5 1. 61 8 2. 0 90 1. 90 7 2. 12 0 62 1 Morgunblaðið/Styrmir Kári Aftur í lúxusinn Á fyrstu fjórum mánuðum ársins seldust 69 Mercedes-Benz fólksbifreiðar, borið saman við 45 í fyrra. Það er rúmlega 53% aukning. Samkvæmt Vinnumarkaðsrann- sókn Hagstofu Íslands voru í apríl 2014 að jafnaði 182.000 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 171.300 starfandi og 10.800 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnu- þátttaka mældist 79,2%, hlutfall starfandi 74,6% og atvinnuleysi var 5,9%. Samanburður mælinga í apríl 2013 og 2014 sýnir að atvinnuþátt- taka minnkaði um 2,8 prósentustig og hlutfall starfandi minnkaði um tvö prósentustig. Hlutfall atvinnu- lausra minnkaði á sama tíma um 0,7 prósentustig, segir í frétt um rannsóknina á vef Hagstofu Ís- lands. Atvinnuleysi mældist 5,9% í aprílmánuði Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Samkvæmt starfsleyfistillögu frá Umhverfisstofnun er lagt til að Sorpu bs. verði heimilt að urða sorp í Álfsnesi í Reykjavík til 16 ára. Er þetta á sama tíma og viljayfir- lýsing liggur fyrir hjá sveitarfélög- um á höfuðborgarsvæðinu um að hætt verði að nota Álfsnes sem urð- unarstað eftir 4-5 ár. Að sögn bæj- arstjórans í Mosfellsbæ verður gerð athugasemd við það að til standi að veita Álfsnesi leyfi til urðunar til svo langs tíma. Eins og fram hefur kom- ið hafa íbúar í Leirvogstungu kvart- að sáran yfir ólykt sem berst frá urð- unarstaðnum í Álfsnesi. Samræmist ekki samkomulagi Umhverfisstofnun gefur út stöðl- uð starfsleyfi sem ná til 16 ára. Sam- kvæmt tillögunni verður heimilt að taka á móti og urða allt að 120 þús- und tonn af úrgangi á ári, starfrækja hreinsistöð fyrir hauggas, gera til- raunir með endurnýtingu flokkaðs úrgangs og geyma úrgang sem nýtt- ur er við rekstur urðunarstaðarins eða bíður endurnýtingar. Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, segir að bærinn muni gera athugasemd við tillöguna. „Starfsleyfistíminn er ekki í sam- ræmi við eigendasamkomulag um að ekki verði urðað í Álfsnesi eftir 4-5 ár. Mosfellsbær mun því að sjálf- sögðu gera athugasemd við það að verið sé að veita starfsleyfi af hálfu Umhverfsisstofnunar til svo langs tíma. Að okkar mati þarf að gefa út nýtt starfsleyfi þegar ný gas- og jarðgerðarstöð verður tekin í notkun árið 2016,“ segir Haraldur. Starfsleyfi Sorpu bs. í Álfsnesi rann út í fyrra og starfar byggðar- samlagið nú á undanþágu. Ef áform um nýja gas- og jarð- gerðarstöð ganga að óskum mun hún rísa í Álfsnesi árið 2016. Samkvæmt upplýsingum frá Sorpu eru um 100 þúsund tonn urðuð í Álfsnesi nú. Þegar verksmiðjan verður starfrækt mun allt heimilissorp, alls um 37 þús- und tonn, verða unnið í henni og met- angas og molta búin til. Það sorp sem eftir stendur verður áfram urð- að eða rúm 60 þúsund tonn. Sam- kvæmt eigendasamkomulagi sveit- arfélaga á höfuðborgarsvæðinu stendur til að senda sorpið annað til urðunar. Enn hefur ekki fundist hentugur staður og í viðauka í sam- komulaginu kemur fram að urðun verði hætt í Álfsnesi ef annar urð- unarstaður finnst. Rúnar Guðbrandsson, talsmaður íbúasamtakanna í Leirvogstungu- hverfi í Mosfellsbæ, er uggandi yfir áformum um að leyfa urðun í Álfs- nesi til 16 ára. „Við áttum okkur ekki á þörfinni á því,“ segir Rúnar. Hann telur að viljayfirlýsing sé ekki nægj- anlega sterk til að útiloka urðunina til frambúðar. „Starfsleyfi eru útgef- in af ríkinu og greypt í stein en vilja- yfirlýsing er einskis virði og okkur þykir þetta undarleg afgreiðsla. Hún var ekki í samráði við íbúa og við höf- um engar spurnir af þessu. Það er leitt í ljósi þess að við tókum þátt í þessu ferli frá upphafi,“ segir Rúnar. Leyfi til urðunar í 16 ár  Eigendasamkomulag um að hætta urðun eftir 4-5 ár Morgunblaðið/Árni Sæberg Sorphaugur Í Álfsnesi eru árlega urðuð um 100 þúsund tonn. ERNA Skipholti 3 - Sími: 552 0775 www.erna. is Smári Íslenskur silfurborðbúnaður er sígild gjöf Skipholti 3 - Sími: 552 0775 - www.erna.isERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.