Morgunblaðið - 22.05.2014, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 22.05.2014, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014 ingarinnar undir forystu Dags B. Eggertssonar og sögulegt tap Sjálf- stæðisflokksins með nýjan oddvita, Halldór Halldórsson, í fararbroddi. Björt og Píratar ná árangri Björt framtíð býður fram í sjö af tólf stærstu sveitarfélögunum. Flokkurinn, sem ekki hefur boðið fram áður til sveitarstjórna, nær alls staðar góðum árangri og fær menn kjörna á Akureyri, Akranesi, Ár- borg, Kópavogi, Garðabæ, Hafn- arfirði og Reykjavík. Í höfuðborg- inni er árangur framboðsins ekki eins góður og Besta flokksins fyrir fjórum árum, en Björt framtíð er arftaki hans. Píratar bjóða fram á fjórum stöð- um. Þeir fá einn mann kjörinn í Reykjavík, Hafnarfirði og Kópavogi og tvo í Reykjanesbæ. Flokkurinn hefur ekki boðið fram áður. Skin og skúrir Sjálfstæðisflokkurinn nær góðum árangri í sjö af sveitarfélögunum tólf. Hann heldur hreinum meiri- hluta í Vestmannaeyjum, á Seltjarn- arnesi, í Garðabæ og Mosfellsbæ. Hann bætir að auki við sig fylgi á Akureyri, Akranesi og í Kópavogi. Í Reykjavík stefnir hins vegar í sögu- legan ósigur. Þá er útlit fyrir að hreinir meirihlutar flokksins í Ár- borg og Reykjanesbæ falli. Flokk- urinn tapar einnig fylgi í Fjarða- byggð og Hafnarfirði. Samfylkingin er með flokkslista í tíu af tólf stærstu sveitarfélögunum. Á sex stöðum tapar hún miklu fylgi, stendur í stað á þremur en vinnur síðan stórsigur í Reykjavík. Sam- fylkingin tapar á Akranesi, í Reykjanesbæ, Árborg, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Á Ak- ureyri, Seltjarnarnesi og í Mos- fellsbæ er fylgi flokksins svipað og 2010. VG og Framsókn tapa Vinstri græn eru með flokkslista í sjö sveitarfélaganna. Flokkurinn tapar fylgi á fjórum stöðum, heldur sínu á tveimur og vinnur á í einu sveitarfélagi, Akureyri, eins og raunar allir gömlu flokkarnir. Fylg- istapið er á Akranesi, í Árborg, Kópavogi og Hafnarfirði. Í Reykja- vík og Mosfellsbæ er fylgi flokksins svipað og síðast. Framsóknarflokk- urinn býður fram í níu sveitarfélag- anna tólf. Hann tapar fylgi á sex stöðum, heldur sínu á tveimur og vinnur á á einum, Akureyri. Flokk- urinn tapar á Akranesi, í Reykja- nesbæ, Árborg, Reykjavík, Kópa- vogi og Mosfellsbæ. Hann fær svipað fylgi og síðast í Fjarðabyggð og Hafnarfirði, þar sem hann er reyndar ekki með fulltrúa. Íbúalistar missa flugið Önnur framboð ná óvíða árangri. Dögun sem býður fram í Reykjavík og á Akureyri nær ekki inn manni. Sama er að segja um Alþýðufylk- inguna í Reykjavík. Listar sem áður áttu fulltrúa í bæjarstjórn eins og Næst besti flokkurinn í Kópavogi, Fólkið í bænum í Garðabæ, Íbúa- hreyfingin í Mosfellsbæ og Neslist- inn á Seltjarnarnesi tapa sínum mönnum. L-listinn, sem hefur meiri- Björt framtíð og Píratar í sókn  Hvað segja kannanir?  Stórsigur Samfylkingar í Reykjavík en annars tap  Sögulegt afhroð Sjálfstæðisflokks í borginni  Fylgistap Framsóknar og VG  Sjálfstæðisflokkur enn víða sterkur Reykjanesbær Reykjavík Vestmannaeyjar Akureyri Hafnarfjörður Fylgi stjórnmálaflokka samkvæmt könnunum Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið Reykjavík Akureyri Vestmannaeyjar Reykjanesbær Hafnarfjörður Samfylkingin Samfylkingin Framsóknar- flokkur Framsóknar- flokkur Björt framtíð Björt framtíð Vinstri- græn Vinstri- græn Píratar Píratar Annar flokkur eða listi ? Annar flokkur eða listi ? Dögun Sjálfstæðis- flokkur Sjálfstæðis- flokkur *Fylgi Besta flokksins í kosningum 2010. Besti flokkurinn sameinaðist síðar Bjartri framtíð. Kosningar 2010 Kannanir: 6.-18. nóv. 2013 15.-23. jan. 2014 18.-23. feb. 2014 17.-23.mars 2014 29. apr.-6. maí 2014 12.-15. maí 2014 Kosningar 2010 Kannanir: 6.-25. nóv. 2013 18.-23. feb. 2014 5.-12. maí 2014 Kosningar 2010 Kannanir: 6.-28. nóv. 2013 29. apr.-5. maí 2014 Alþýðu- fylkingin 19,1% 17,6% 21,8% 23,5% 28,0% 30,3% 34,1% 34,7%* 29,4% 29,3% 21,0% 24,8% 19,7% 22,2% 33,6% 26,6% 25,0% 28,4% 24,4% 27,2% 21,5% 10,1% 10,5% 11,7% 9,1% 9,8% 9,4% 7,1% 9,0% 8,2% 9,1% 8,6% 5,9% 6,3% 2,7% 2,3% 2,8% 2,9% 2,0% 4,5% 3,1% 1,2% 0,6% 2,8% 2,1% 2,1% 0,1% 0,6% 2,7% 3,9% 1,1% 3,4% 0,3% 0,4% 0,8% Sjálfstæðis- flokkur Samfylkingin Framsóknar- flokkur Björt framtíð Vinstri- græn Annar flokkur eða listi ? Listi fólksins 63 46 35 1 11 Dögun Kosningar 2010 Kannanir: 7.-21. nóv. 2013 18.-23. feb. 2014 24.-30. apríl 2014 *L-listinn og Bæjarlistinn hafa sameinast um framboð undir nafni Bæjarlistans. 13,3% 52,8% 44,6% 37,1% 28,4% 16,4% 16,4% 11,3% 14,9% 10,3% 9,9% 14,0% 11,8% 9,9% 4,9% 15,9% 1,6% 20,7% 23,2% 21,8% 16,0% 16,6% 20,6% 53,7%* 15,2%* 14,3%* 19,0%* 10,4% 16,0% 16,7% 16,0% 12,8% 15,6% 17,7% 12,3% 9,8% 11,0% 8,7% 9,5% 0,3% 5,5% 5,8% 0,3% 31 2 27 21 11 11 Sjálfstæðis- flokkur Eyjalistinn Annar flokkur eða listi ? *Eyjalistinn er sameinað framboð Samfylkingarinnar, Vinstri-grænna, Framsóknarflokks, Bjartrar framtíðar og óháðra. Fylgi fyrir 2010 er samtala fyrir Vestmannaeyjalistann (Samfylking, Vinstri- græn og óháðir) og Framsóknarflokk. Kosningar 2010 Kannanir: 15.-23. jan. 2014 2.-6. maí 2014 55,6% 37,2% 33,6% 37,7% 31,6% 40,9% 24,2% 20,9% 24,0% 19,2% 15,3% 20,4% 7,3% 7,9% 9,7% 8,2% 6,4% 9,5% 8,1% 14,6% 6,0% 6,3% 7,1% 2,6% 0,6% 0,6% 62,2% 69,6% 44,4%* 30,3%* 29,2%* 7,6% 1,2% 54 23 Samfylkingin og óháðir Frjálst afl Bein leið Framsóknar- flokkur Píratar Annar flokkur eða listi ? Sjálfstæðis- flokkur 47 23 2 1 1 11 45 31 2 11 1 BAKSVIÐ Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Kannanir Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið á fylgi flokka í tólf stærstu sveitarfélögum landsins á undanförnum mánuðum benda til þess að Samfylkingin, Framsóknar- flokkurinn og VG tapi miklu fylgi víðast hvar. Ný framboð Bjartrar framtíðar og Pírata ná fótfestu alls staðar þar sem flokkarnir eru í framboði. Sjálfstæðisflokkurinn eykur fylgi sitt í sjö sveitarfélögum, en tapar fylgi í fimm. Staðan í Reykjavík er mjög frábrugðin fylgisþróun annars staðar hvað varðar Samfylkingu og Sjálfstæð- isflokk. Stefnir í stórsigur Samfylk- SKOÐANAKANNANIR FYLGISÞRÓUN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.