Morgunblaðið - 22.05.2014, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 22.05.2014, Blaðsíða 38
38 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014 Þorlákshöfn er þorpið mitt. Ég fluttist hingað með foreldrummínum þegar ég var tíu ára og þó hér væru aðeins örfá húsvar þetta nánast ævintýrastaður. Það var líka mikið að gera í þessari verstöð og allir þurftu að vinna. Tólf ára var ég komin á fullt í humarvinnslu hjá Meitlinum; þar sem byrjað var klukkan átta á morgnana og unnið til tíu á kvöldin. Þarna lærði ég að vinna,“ segir Margrét Sigurðardóttir, matráður á leikskóla, sem er sextug í dag. Afmælisdaginn segir Margrét verða öðrum dögum líkan. „Við ætlum að grilla lambalæri hér heima á föstudagskvöldið Þá er stór- fjölskyldunni boðið hingað heim og í það heila verðum við um þrjá- tíu talsins. Allt afar skemmtilegt fólk,“ segir Margrét. Í orðsins fyllstu merkingu er Margrét með margt á prjónunum. Hún segist hafa yndi af handavinnu og setjist varla niður öðruvísi en eitthvert sé föndrið. „Núna er ég að prjóna peysu á dóttur mína og raunar er þetta dund mitt alls ekki bundið við prjónaskapinn einan. Af öðrum áhugamálum get ég nefnt fjölskyldustundir og ferðalög, það eru alltaf teknar nokkrar útilegur á sumrin og svo höfum við hjónin gaman af skemmri ferðum til útlanda. Ferðin til Heidelberg í Þýskalandi í fyrra var skemmtileg,“ segir Margrét sem er gift Gunnari Daníel Magnússyni og eiga þau fjögur uppkomin börn. sbs@mbl.is Margrét Sigurðardóttir er 60 ára í dag Ljósmynd/Kolbrún Gunnarsdóttir Þorlákshafnarbúi Fjölskyldustundir, handavinna og ferðalög - innanlands og utan - eru áhugamál Margrétar Sigurðardóttur. Prjónakonan ætlar að grilla lambalæri Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. S igurður Guðni Valgeirsson fæddist á Sólvangi í Hafn- arfirði 22.5. 1954. Hann flutti fimm ára til Reykja- víkur og bjó fyrst í Skerjafirði, síðan á Grundarstíg, í Vogahverfi og að lokum Fossvogi en þá flutti hann úr foreldrahúsum. „Af þessum stöðum standa Skerjafjörð- urinn og Vogahverfið upp úr í minn- ingunni. Ég var á aldrinum fimm til átta ára í Skerjafirðinum. Hann var eins og sveit á þessum tíma með stórum túnum, sem buðu upp á enda- lausan fótbolta. Þarna voru líka hús- dýr, fjara og haf. Á Grundarstígnum var hættulegra að búa og ég lenti nokkrum sinnum í heldur óskemmti- legum uppákomum og jafnvel slags- málum. Vogarnir sem ég bjó í á gagnfræðaskólaaldri voru dálítið eins og Breiðholt þess tíma, allt fullt af hressum krökkum sem komu úr öllum lögum þjóðfélagsins. Þar eign- aðist ég vini sem ég á enn í dag.“ Sigurður byrjaði í Ísaksskóla, fór þaðan í Æfingadeild Kennaraskól- ans, svo í Vogaskóla og Mennta- skólann við Tjörnina sem var nýr menntaskóli. „Þetta voru allt prýðis- skólar nema hvað ég hafði heldur lít- ið að gera í fyrsta bekk Vogaskóla eftir að hafa komið úr mjög góðum barnaskóla.“ Varð nagli eftir sveitadvölina Sigurður var í sveit á Urriðaá á Mýrum frá því hann var níu ára þar til hann varð fjórtán ára. „Ég hafði mjög gaman af sveitadvölinni fyrstu árin enda var ég hjá afbragðsfólki sem bræður mínir og frændur höfðu verið hjá á undan mér. Ég var þó orðinn fullmikill unglingur síðasta sumarið. Mér fannst lærdómsríkt að vera í sveit og mér fannst maður verða dálítill nagli, svona miðað við þá sem voru bara á mölinni.“ Að loknum menntaskóla las Sig- urður íslensku og almenna bók- menntafræði við Háskóla Íslands og útskrifaðist með BA-próf í íslensku. Hann stundaði sölumennsku í fríum og með námi og seldi aðallega playmobil-leikföng fyrir heildsölu Böðvars bróður síns. „Eftir einn vetur í leikhúsfræði við Sigurður G. Valgeirsson, upplýsingafulltrúi FME – 60 ára Tónleikar „Valgerður Stefánsdóttir, elsta barnabarnið, leikur á trommur en ég er aldrei þessu vant með gítar.“ Sogaðist inn í Fjármála- eftirlitið eftir hrun Hjónin Sigurður og Valgerður. Höfn Patrekur Freyr fæddist 29. ágúst kl. 21.16. Hann vó 3.880 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Stefanía Ósk Hjálmarsdóttir og Hannes Halldórsson. Nýir borgarar Kópavogur Gabríella Ísmey fæddist 16. maí 2013. Hún vó 4.170 g og var 51,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Arnar Georgsson og Þórdís Ösp Benediktsdóttir Cummings. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is K R I N G L U N N I & S M Á R A L I N D ✆ 565 6050 ✆ 565 6070 ÚTSKRIFTARGJÖFIN HENNAR FÆST HJÁ OKKUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.