Morgunblaðið - 22.05.2014, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014
Kringlan/Sími5334533
dagar í Hygeu 22. - 24. maí
Glæsilegur kaupauki þegar
keyptar eru tvær vörur frá
Guerlain og þar af eitt krem*
*meðan birgðir endast
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta verður mikil upplifunog gaman að fá að takaþátt í þessu. Ég býst viðað við verðum látnir rýja
kollótt fé af skoskum eða írskum
uppruna, þær eru eflaust þægari en
þær íslensku sem eru sumar erf-
iðar, með hart skap og sterkar,“
segir Trausti Hjálmarsson, bóndi í
Austurhlíð í Biskupstungum, en
hann hélt ásamt þremur öðrum rún-
ingsmönnum til Írlands fyrr í vik-
unni til að etja kappi við rúnings-
menn hvaðanæva úr heiminum í
heimsmeistarakeppni í rúningi.
„Þetta er í fyrsta sinn sem lið rún-
ingsmanna fer frá Íslandi til að taka
þátt í heimsmeistaramóti, en við
sáum okkur ekki annað fært en að
búa til lið fyrst okkur bauðst þetta.
Við gátum ekki látið tækifærið okk-
ur úr greipum ganga, og fyrir til-
stilli fjölskyldu og vina sem leysa
okkur af heima í sauðburðinum þá
getum við farið,“ segir Trausti og
bætir við að liðsstjóri þeirra sé Guð-
mundur Hallgrímsson og að Borgar
Pàll Bragason hafi séð um öll sam-
skipti við útlönd.
Tvö hundruð keppendur
Landsliðið skipa ásamt
Trausta, þeir Julio Cesar Gutierrez,
bóndi á Hávarsstöðum II í Leir-
ársveit, Hafliði Sævarsson, bóndi í
Fossárdal og Reynir Þór Jónsson
frá Hurðarbaki. Á heimsmeist-
aramótinu verður keppt í vélrún-
ingi, ullarflokkun og handrúningi
upp á gamla mátann. „Við munum
eingöngu taka þátt í vélrúningnum.
Þetta er tvískipt mót, tveir okkar
keppa á fyrra mótinu sem verður í
dag en hinir tveir keppa á seinna
mótinu á laugardaginn, hinu eig-
inlega heimsmeistaramóti. Við ætl-
um að sjálfsögðu að gera okkar
besta og við erum með þrefaldan Ís-
landsmeistara í liðinu, hann Julio.
Þetta verður hörð keppni, rúmlega
tvö hundruð keppendur taka þátt
og megnið af þeim er menn sem
vinna við rúning allt árið um kring,
en við Íslendingarnir vinnum ekki
við þetta nema sex til átta vikur á
ári. Við förum fyrst og fremst af
forvitni, til að sjá hvernig þetta fer
fram, skoða og upplifa,“ segir
Trausti og bætir við að Lilja Grét-
arsdottir kona Julios sé túlkur í
ferðinni.
Tækni sem fólk beitir við rún-
inginn, er ólík eftir því hvaðan úr
heiminum það er. „Julio klippir til
dæmis öðruvísi en við Íslending-
arnir, hann hefur annað lag og held-
ur kindinni öðruvísi en við. Hann
teygir meira á skrokk kindanna
þegar hann er að rýja, opnar þannig
ullina betur frá skrokknum og beitir
klippunum öðruvísi en við. Hann
Lagni er það sem
skiptir máli í rúningi
Fjórir rúningsmenn flugu sl. þriðjudag til Írlands sem fulltrúar Íslands til að taka
þátt í heimsmeistarakeppni í rúningi. Allir starfa þeir við rúning hluta úr árinu
og einn liðsmaðurinn er þrefaldur Íslandsmeistari. Starf rúningsmanns krefst fé-
lagslegrar hæfni og tilþrifin hafa heillað marga konuna í gegnum tíðina.
Ljósmynd/Kristín Heiða
Vorverk Trausti í fjárhúsinu með tveimur af þremur börnum sínum, hér
nokkuð þreytt í sauðburðinum eins og gjarnan vill vera á þessum árstíma.
Ljósmynd/Tjörvi Bjarnason
Landsliðið Hér eru þeir mættir til Írlands garparnir og reiðubúnir til
átaka. Guðmundur lengst til vinstri, þá Julio, Hafliði, Reynir og Trausti.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Næstkomandi laugardag, 24. maí kl.
14, verður boðið upp á náttúrugöngu
um Elliðaárdalinn þar sem náttúran
og lífríki Elliðaánna verður skoðað.
Gangan ber yfirskriftina Dagur far-
fiskanna. Lagt verður upp frá Gerðu-
bergssafni og gengið niður að Elliða-
ám. Boðið upp á hressingu í safninu
að göngu lokinni. Allir eru velkomnir í
gönguna sem tekur um klukkutíma
og er þátttaka ókeypis. Gerðubergs-
safn er við Gerðuberg 3-5 í Breið-
holti. Náttúrufræðingur leiðir göng-
una.
Reykvíkingar deila höfuðborg sinni
með ótal lífverum allt frá hröfnum til
hunangsflugna, selum til birkitrjáa. Í
Reykjavík er mikið af náttúrulegum
svæðum þar sem búsvæði þessara
lífvera er að finna bæði á þurru landi,
í ám og stöðuvötnum og í hafinu.
Vefsíðan www.gerduberg.is
Morgunblaðið/Ómar
Krummi Einn af borgarbúum.
Fjölskrúðug náttúra handan
við hornið í borginni okkar
Kjarval
Gildir 22.-25. maí verð nú verð áður mælie. verð
SS grískar grísahnakkasneiðar.......................... 2.038 2.398 2.038 kr. kg
SS grískar lambatvírifjur................................... 2.798 3.298 2.798 kr. kg
EF. Bernaisesósa, 180 ml................................. 299 329 299 kr. stk.
Rauð vínber .................................................... 799 949 799 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 22.-24. maí verð nú verð áður mælie. verð
Nautagúllas (kjötborð)..................................... 1.898 2.398 1.898 kr. kg
Nautainnralæri (kjötborð) ................................ 2.898 3.598 2.898 kr. kg
Lambainnralæri (kjötborð) ............................... 2.598 3.498 2.598 kr. kg
Fjallal. skyndigrill ............................................ 2.200 2.549 2.200 kr. kg
Fjallal. lambalærissneiðar, kryddað................... 2.393 2.769 2.393 kr. kg
Fjallal. lambasirloin, kryddað............................ 2.126 2.465 2.126 kr. kg
Dr. Oetker Tradizionale, frosin pitsa ................... 589 698 589 kr. stk.
FK grísakótilettur, kryddaðar ............................. 1.298 1.398 1.298 kr. kg
FK grísahnakki, kryddaður ................................ 1.298 1.398 1.298 kr. kg
Krónan
Gildir 22.-25. maí verð nú verð áður mælie. verð
Lambalæri ...................................................... 1.398 1.498 1.398 kr. kg
Lambalæri kryddað ......................................... 1.398 1.598 1.398 kr. kg
Lambalærissneiðar New York ............................ 1.998 2.198 1.998 kr. kg
Lambafille m/fiturönd ..................................... 3.998 4.498 3.998 kr. kg
Grísasíðu pörusteik ......................................... 898 998 898 kr. kg
Freyju Mix 400 g ............................................. 496 679 496 kr. pk.
Prins Póló kassi 56x18 g.................................. 999 1998 998 kr. pk.
Nóatún
Gildir 23.-25. maí verð nú verð áður mælie. verð
Lamba lærissneiðar úr kjötborði ....................... 2.098 2.398 2.098 kr. kg
Lambalærissneiðar, krydd., úr kjötb. ................. 2.098 2.398 2.098 kr. kg
Grísahnakki, úrb. sneiðar, úr kjötb. ................... 1298 1.698 1.298 kr. kg
ÍM kjúklingalundir ............................................ 2.498 2.798 2.498 kr. kg
Laxaflök, beinhr., úr fiskborði............................ 2.164 2.598 2.164 kr. kg
Grillbakki, kryddað grænmeti............................ 629 699 629 kr. pk.
Helgartilboðin
Þrívíddarprentun hefur verið þekkt
og notuð í 20 ár en nú fyrst er hún að
verða aðgengileg hinum almenna
notanda. Í þínar hendur er verkefni á
Listahátíð þar sem unnið verður með
þrívíða sköpun og tækni. Þátttak-
endur eru Jón Helgi Hólmgeirsson
vöruhönnuður, Embla Vigfúsdóttir
leikjahönnuður, Ólafur Ómarsson,
viðmóts- og hugbúnaðarhönnuður,
og Kolbeinn Hugi Höskuldsson mynd-
listarmaður. Í tilkynningu segir að
verkefnið Í þínar hendur sé lifandi
vinnustofa þar sem könnuð verður sú
bylting í framleiðsluferlinu sem þrí-
víð prenttækni kann að leiða til.
Vinnustofan gengur út á þverfaglega
samvinnu lista og vísinda þar sem
nýir möguleikar frá hugmynd til
framkvæmdar með þrívíddarprentun
eru kannaðir. Allt ferlið er sýnilegt
þeim sem koma og heimsækja vinnu-
stofuna, hvernig hugmynd verður til,
hvernig samvinna byggir ofan þekk-
ingu eða möguleika og hvernig tækn-
in framkallar svo útkomu ferlisins
með þrívíðri prentun að lokum. Gest-
ir sýningarinnar munu geta lagt sitt
af mörkum og útkoman/verkið fer
aftur á þróunarstigið.
Verkefnið verður í Spark Design og
vinnustofan hefst í dag kl. 18, en
lokahófið verður 5. júní.
Lifandi vinnustofa
Allskonar Með þrívíddarprentun verð-
ur hægt að framleiða hvað sem er.
Bylting í þrívíðri
prenttækni