Morgunblaðið - 22.05.2014, Síða 11
Ljósmynd/Tjörvi Bjarnason
Flinkur Þrefaldi Íslandsmeistarinn Julio (fremst á mynd) sigraði í rúningskeppni á Kex hosteli í vor.
lærði rúning í sínu heimalandi, Úrú-
gvæ, og hann vann þar við rúning
áður en hann flutti til Íslands. Al-
gengasta aðferðin er sú sem kennd
er við Nýja-Sjáland og hún er lang-
mest notuð hér á landi, slík aðferð
hefur verið kennd hér frá því á átt-
unda áratugnum.“
Í góðu líkamlegu formi
Þegar Trausti er spurður að
því hvort rúningsmaður þurfi að
vera sterkur og hvort margar konur
vinni við vélrúning, segir hann sum-
ar konur að sjálfsögðu rýja sjálfar
sitt fé. „Heiða Guðný Ásgeirsdóttir í
Skaftafellssýslu er eini kvenkyns
rúningsmaðurinn hér á landi sem ég
veit til að starfi við rúning. Rún-
ingsstarfið krefst fyrst og fremst
lagni við að halda kindinni á réttum
punktum. Ef hún liggur rétt og
finnur ekki til á meðan hún er rúin,
þá þarf rúningsmaðurinn ekkert
endilega að vera sterkur, en hann
þarf vissulega að vera í þokkalega
góðu líkamlegu formi. Það skiptir
líka miklu máli að standa rétt, vera
ekki í skóm með hæl heldur flat-
botna svo staðan á hryggnum og
niður í fætur sé rétt, og að maður
beygi sig í mjöðmum frekar en baki.
Ef menn beita sér rétt þá geta þeir
enst lengi í starfinu, hinn nýsjá-
lenski Darrel hafði verið að klippa í
átján ár þegar hann kom hingað
fyrst fyrir margt löngu og hann er
enn að klippa.“
Bæði raunir og gleði
Trausti byrjaði að klippa fyrir
sextán árum og hefur gert það ár-
lega allar götur síðan. Hann segir
starf rúningsmannsins skemmtilegt
en líka nokkuð sérstakt. „Ég hef
stundum sagt í gríni og alvöru að
rúningsmaður þurfi að vera sál-
fræðingur og vera tilbúinn að koma
inn á heimili og vera opinn fyrir því
sem þar mætir honum. Hann þarf
að hlusta á það sem brennur á þeim
sem hann heimsækir, bæði raunir
og gleði. Þegar maður er úti í fjár-
húsi með fólki og inni á heimili þess,
þá kynnist maður því hraðar og
meira en annars væri. Þetta er
ákveðin nánd í stuttan tíma og hver
bóndi er með sína sérvisku, maður
þarf að vera fljótur að lesa mann-
inn, til að vita hvað má og hvað
ekki, hvernig maður á að haga sér.
Rúningsmenn eru orðnir svo fáir að
það er mikil ánægja hjá fólki að fá
þá til sín, fólk verður svo glatt og
þakklátt. Það er einmitt kosturinn
við þetta starf, manni finnst maður
alltaf vera að gera vel fyrir fólk.
Þetta er þjónustustarf og maður
verður að hugsa það sem slíkt svo
þetta gangi upp,“ segir Trausti sem
klippir tvö til þrjú hundruð kindur á
dag ef féð er í snoði eða haustull, en
hundrað til hundrað og fimmtíu ef
þær eru í alull.
Ágangur kvenna
Gera má ráð fyrir að ungar
heimasætur gleðjist þegar rúnings-
menn koma á bæinn og þær fá að
fylgjast með þeim dagana langa
svitna við rúninginn. Þegar Trausti
er spurður að því hvort svo karl-
mannlegt starf sem rúningsmanns-
starfið er, verði ekki til þess að þeir
þurfi að verjast ágangi kvenna,
hlær hann við og svarar: „Þær hafa
nú kannski ekki leitað á mann akk-
úrat í starfinu, en ég náði vissulega
í mína konu í kjölfar þess að ég kom
hingað í Austurhlíð að rýja á sínum
tíma. Ég heillaði hana væntanlega
upp úr skónum með tilþrifunum í
rúningnum. Nú erum við bæði
bændur hér og eigum þrjú börn.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014
erhlutverkþitt að sjá umbókhaldið?- snjallar lausnir
Kynntu þér lausnina á www.navaskrift.is
545 3200 navaskrift.is sala@wise.isGold Enterprise Resource Planning
Silver Independent Software Vendor (ISV)
TM
Borgartún 26, Reykjavík » Hafnarstræti 93-95, Akureyri
sími: 545 3200 » wise@wise.is » www.wise.is
Fullbúin viðskiptalausn í áskrift
- Microsoft Dynamics NAV
Verð frá kr.
pr.mán. án vsk
11.900-
Mánaðarlegt gjald veitir aðgang að einu mest selda bókhaldskerfi
landsins ásamt kostnaði við uppfærslu- og þjónustugjöld,
hýsingu, afritun á gögnum, öryggisvarnir og SQL gagnagrunn.
Breytilegur fjöldi notenda eftir mánuðum sem lágmarkar kostnað.
Kerfinu fylgir rafræn sending reikninga, samskipti við RSK og fleira.
Fjöldi sérlausna í boði fyrir þá sem þurfa aukna virkni.
„Naívismi er fjölbreytt mynd-
list. Naívistar eru einfarar í
eðli sínu, yfirleitt svolítið sér-
stakir karakterar. Listamenn-
irnir fylgja fremur eigin til-
finningu og sannfæringu en
hefðbundnum listrænum stíl-
um eða aðferðum og má
segja að tjáning listamann-
anna komi frá hjartanu. Það
er stundum sagt að naív
myndlist einkennist af barns-
legri einlægni sem skili sér
jafnt í óvæntri lita- og frá-
sagnargleði,“ segir Bjarni Sig-
urðsson, eigandi Smiðjunnar
listhúss í Ármúla í Reykjavík,
en í dag kl. 11 hefst þar sölu-
sýning á verkum eftir marga af
þekktustu naív-listamönnum
þjóðarinnar. Á sýningunni eru á
þriðja tug naív-verka eftir Stef-
án V. Jónsson (Stórval), Ísleif Kon-
ráðsson, Eggert Magnússon, Samúel
Jónsson frá Selárdal, Val Svein-
björnsson og Gunnar Guðmundsson.
Stefán Stórval, Samúel frá Selárdal og fleiri naívistar
Morgunblaðið/Einar Falur
Stórval Stefán V. Jónsson, á heimili sínu við Grettisgötu árið 1991. Skrifar
hér vísu um hremmingar sínar í æsku aftan á málverk af Herðubreið.
„Tjáning þessara listamanna
kemur frá hjartanu“
Elstu verkin á sýningunni eru frá fyrri
hluta 20. aldar.
Sýningin stendur til 2. júní og
Smiðjan listhús er í Ármúla 36.
Burstafells-Blesi Eftir Stefán Stórval.
Í vélrúningskeppni eru gefin stig
fyrir hraða, hversu fljótur rúnings-
maðurinn er að rýja hverja kind, en
einnig eru gæði rúningsins metin,
hversu vel kindin er klippt. Ef t.d.
eru sár á kindinni eftir rúninginn, þá
fær viðkomandi rúningsmaður
mínusstig og eins ef það er ull eftir
á henni að rúningi loknum. Saman-
lagður árangur af hraða og gæðum
ræður lokatölunni. Heimsmeistara-
keppnin í rúningi fer nú fram í Gorey
á Írlandi, 17.-24. maí. Keppendur
koma frá 30 löndum, m.a. frá Nýja-
Sjálandi, Suður-Afríku, Ástralíu,
Kanada, Bandaríkjunum, Noregi,
Svíþjóð, Þýskalandi, Bretlandi og Ís-
landi. Gert er ráð fyrir 25.000 gest-
um á þessa fjölskylduvænu hátíð
matar, handverks, tísku og skemmt-
unar, samhliða sjálfri rúningskeppn-
inni.
Facebook: Golden Shears Ireland
Stig fyrir hraða og gæði rúnings
RÚNINGSKEPPNI
Ljósmynd/Kolbrún Sæmundsdóttir
Átök Trausti að rýja hrút í alull með
aðstoð félaga síns, Egils Jónassonar.