Morgunblaðið - 22.05.2014, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014
Náttúruleg umhirða munns og tanna!
Tannkremin frá Weleda hreinsa tennurnar á árangursríkan hátt
Tannholdið styrkist með jurtablöndum og slímhimnur munnholsins
haldast ferskar. Tannkremin innihalda engin auka-bragðefni.
Í samhljómi við mann og náttúru. Lesið meira um lífrænar vörur á
www.weleda.is
Útsölustaðir Weleda eru apótek og heilsuverslanir um allt land.
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/weledaísland
Í dag, fimmtudaginn 22. maí, verð-
ur haldin vegleg Miðborgarvaka í
miðborg Reykjavíkur. Verslanir
verða opnar til kl. 22:00 og fjöl-
margt skemmtilegt verður í boði:
léttar veitingar hjá mörgum, lifandi
tónlist hjá öðrum auk sértilboða og
skemmtilegheita af ýmsum toga
eins og vera ber á þessum iðandi
árstíma, eins og segir í tilkynningu.
„Brúðkaup, fermingar, afmæli
og útskriftir í flestöllum fjöl-
skyldum og kjörið að sameina nota-
lega kvöldstund í miðborginni og
gjafakaup handa ástvinum. Setjast
síðan og njóta veitinga á ein-
hverjum hinna fjölmörgu veit-
ingastaða miðborgarinnar, en alls
eru á fjórða hundrað verslanir og
veitingahús í miðborginni,“ segir
ennfremur í tilkynningunni.
Verslanir opnar
til klukkan 22 á Mið-
borgarvöku í kvöld
Þáttur gjafsóknarnefndar snýr að
fjárhæð gjafsóknar sem var tak-
mörkuð við 500.000 kr. en Páll hefur
þurft að bera töluvert meiri kostnað
vegna málsins. Umboðsmaður Al-
þingis segir að synjun gjafsóknar-
nefndar á greiðslu hærri upphæðar
hafi ekki verið í samræmi við lög.
Mælst er til þess að mál Páls verði
tekið upp hjá nefndinni, sem fellur
undir innanríkisráðuneytið. Í skrif-
legu svari ráðuneytisins segir að það
muni að sjálfsögðu taka álit umboðs-
manns alvarlega. Óski Páll eftir því
við ráðuneytið að mál hans verði tek-
ið til skoðunar á ný og honum veitt
gjafsókn muni ráðuneytið taka það
mál til meðferðar.
Fékk ekki skýr svör
Í álitinu segir að umboðsmaður Al-
þingis telji að Embætti landlæknis
hafi ekki veitt Páli skýr svör um með
hvaða hætti yrði tekið á máli hans
hjá embættinu. Anna María Kára-
dóttir, lögfræðingur hjá embættinu,
segir að embættið hafi ekki talið sig
hafa lagaheimildir til að upplýsa ein-
staklinga um þau eftirlitsúrræði sem
það hefur samkvæmt lögum til að
grípa til gagnvart einstaka heilbrigð-
isstarfsmönnum. „Þessi einstakling-
ur er, samkvæmt lögum um land-
lækni og lýðheilsu, ekki aðili að
málinu heldur einungis viðkomandi
heilbrigðisstarfsmaður,“ segir Anna
María. „Ef landlæknir á að upplýsa
borgarana um slík íþyngjandi úrræði
gagnvart einstaka heilbrigðisstarfs-
mönnum þarf að gera lagabreyting-
ar.“
Löggjafans að skoða málið
Anna María segir að það sem at-
hyglisverðast sé í áliti umboðsmanns
Alþingis sé að þar sé talið tilefni til að
vekja athygli Alþingis og heilbrigð-
isráðherra á að tilhögun eftirlits Per-
sónuverndar og Embættis landlækn-
is með lögum um sjúkraskrár sé ekki
nægilega skýr. Jafnframt er vakin
athygli á þeirri óvissu sem virðist
vera uppi um hvort landlæknir eða
Persónuvernd eigi að kæra brot á
lögum um sjúkraskrá til lögreglu
þegar mál komi til beggja stjórn-
valda. „Það er því löggjafans að
skoða hvort kveða þurfi á um þessi
mál með skýrari hætti,“ segir hún.
Í áliti umboðsmanns Alþingis seg-
ir að Persónuvernd hafi átt að leysa
úr máli Páls eftir að hann vísaði því
þangað. Spurður um hvort málsmeð-
ferð Persónuverndar hafi verið
ábótavant segir Þórður Sveinsson,
lögfræðingur hjá Persónuvernd, svo
ekki vera. „Við álítum okkur hafa
unnið úr málinu á eins vandaðan hátt
og okkur var unnt. Umboðsmaður
Alþingis kemur með þessar ábend-
ingar og við skoðum þær að sjálf-
sögðu. Auðvitað getur það alltaf
gerst að hann hafi aðra sýn en við-
komandi stjórnvald og þá er sjálf-
sagt að skoða hvort breyta eigi verk-
lagi. En það er þá löggjafans.“
Gagnrýnir vinnubrögð fjög-
urra opinberra stofnana
Umboðsmaður Alþingis leggur til breytt vinnulag Lagabreytingar gæti þurft
Morgunblaðið/Kristinn
Embætti landlæknis Í álitinu segir meðal annars að Embætti landlæknis
hafi ekki veitt Páli skýr svör um með hvaða hætti yrði tekið á máli hans.
Meistaradegi Verkfræðistofnunar
Háskóla Íslands verður fagnað í
dag, fimmtudag, þegar nemendur í
verkfræði og tölvunarfræði kynna
lokaverkefni sín til MS-gráðu.
Meistaradagurinn fer fram í bygg-
ingunni VR-II kl. 12-16.
Um fjölbreytt og hagnýt verkefni
er að ræða sem m.a. eru unnin í
samstarfi við stærstu fyrirtæki og
stofnanir landsins. Verkefnin fjalla
m.a. um áhrif loftslagsbreytinga á
vindorkunýtingu við Búrfell, mat á
mögulegri framleiðslu vindorku og
kostnaðargreining vindorkukerfis í
Búrfelli, jarðskjálftadempara fyrir
brúargerð, súrefnisbúskap í fjörð-
um sem hafa verið þveraðir með
brúm, gæða- og áhættustýringu
reksturs lífeyrissjóða á Íslandi og
fyrstu vistferilsgreiningu sem gerð
hefur verið á framleiðslu áls á Ís-
landi.
Fjölbreytt verkefni
á Meistaradegi í HÍ
Umboðsmaður
Alþingis heyrir
undir verksvið
stjórnskipunar-
og eftirlits-
nefndar Alþing-
is. Ögmundur
Jónasson, þing-
maður VG og
formaður
nefndarinnar,
segir þessar tilteknu álitsgerðir
umboðsmanns Alþingis ekki hafa
komið inn á borð nefndarinnar og
því hafi þær ekki verið teknar þar
til athugunar.
Spurður um hvort hann telji að
álitið gefi tilefni til að endur-
skoða þurfi lög um þau embætti
sem þar er um fjallað segir Ög-
mundur ekki hægt að segja til um
það fyrr en málið hafi komið til
umfjöllunar.
Ekki komið
inn á borð
ENGIN UMFJÖLLUN ENN
Ögmundur
Jónasson
Oddastefna 2014,
árlegt málþing
Oddafélagsins,
verður haldið
laugardaginn 24.
maí kl. 13:15 til 17
í Þjóðminja-
safni Íslands.
Erindi flytja: sr. Guðbjörg Arn-
ardóttir í Odda, Helgi Þorláksson
prófessor, Rögnvaldur Guðmunds-
son, formaður SSF, Borghildur Ósk-
arsdóttir, Þór Jakobsson og Guð-
mundur G. Þórarinsson,
Í kaffihléi skrafa Oddastefnugestir
saman um fortíð og framtíð Odda á
Rangárvöllum.
Ráðstefnan er öllum opin.
Oddastefna
á laugardag
Veiðifélag Bjarnareyjar í Vest-
mannaeyjum afhendir í dag Nátt-
úruminjasafni Íslands að gjöf eft-
irlíkingu af geirfuglseggi sem
félagið kostaði og breskir sérfræð-
ingar hafa útbúið.
Fram kemur í tilkynningu, að
gjöfin komi sér mjög vel og til
standi að nota eggið í sýningahaldi
Náttúruminjasafnsins sem fyr-
irhugað sé innan tíðar í Perlunni.
Raunverulega eggið seldi Har-
vard-háskóli Finni Guðmundssyni,
fuglafræðingi og starfsmanni Nátt-
úrufræðistofnunar, árið 1954 á að-
eins 500 dali. Ekki er vitað með
vissu um uppruna eggsins, en það
mælist 117,9 mm á lengd og 76 mm
á breidd.
Mynd/Náttúrufræðistofnun
Geirfugl Geirfuglinn sem er í eigu Nátt-
úrufræðistofnunar ásamt eggi.
Gefa eftirlíkingu
af geirfuglseggi
STUTT
Evrópustofa stendur fyrir opnum
fundi um Ísland og sjávarútvegs-
stefnu Evrópusambandsins í dag
klukkan 12-13.30 í Víkinni, sjó-
minjasafni Reykjavíkur.
Gunnar Haraldsson og Bjarni
Már Magnússon, höfundar sjáv-
arútvegskaflanna í Evrópu-
skýrslum vetrarins, fjalla um þessi
mál á fundinum og einnig verða
Kolbeinn Árnason, framkvæmda-
stjóri LÍÚ, og Henrik Bendixen,
sérfræðingur hjá sendinefnd ESB,
meðal frummælenda. Fundurinn
fer fram á ensku.
Ræða um sjávarút-
vegsstefnu ESB
BAKSVIÐ
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Vinnubrögð fjögurra opinberra
stofnana og nefnda eru gagnrýnd í
nýlegu áliti umboðsmanns Alþingis.
Þar er fjallað um mál sjúklings gegn
lækni sem notaði upplýsingar um
greiningu sjúklingsins sér til varnar í
máli fyrir siðanefnd Læknafélagsins.
Lagt er til að þessar stofnanir; Rík-
issaksóknari, Embætti landlæknis,
Persónuvernd og gjafsóknarnefnd,
endurskoði vinnulag sitt. Til að það
megi verða gæti lagabreytinga verið
þörf, að mati lögfræðinga.
Forsaga málsins er sú að sjúkling-
urinn, Páll Sverrisson, kærði lækn-
inn til lögreglu fyrir meðferð, vinnslu
og opinbera birtingu á viðkvæmum
persónuupplýsingum úr sjúkraskrá
hans, en Páll var ekki aðili að áður-
nefndum málarekstri læknisins.
Upplýsingarnar úr sjúkraskránni
birtust svo nafnlaust í umfjöllun
Læknablaðsins um úrskurð siða-
nefndarinnar. Lögregla lét málið
niður falla og þá niðurstöðu staðfesti
ríkissaksóknari. Því undi Páll ekki,
leitaði til umboðsmanns Alþingis og
bað hann um að fara yfir ákvörðun
Ríkissaksóknara og skoða þátt
Landlæknisembættisins, gjafsókn-
arnefndar og Persónuverndar í mál-
inu.
Mælst er til endurupptöku
Umboðsmaður Alþingis skilaði í
byrjun maí þremur álitum um málið.
Þar er mælst til þess að mál Páls
verði tekið upp í innanríkisráðuneyt-
inu og hjá gjafsóknarnefnd. Þar
kemur einnig fram að skýringar rík-
issaksóknara á niðurfellingu málsins
hafi ekki verið fullnægjandi. Veru-
legir annmarkar hafi verið á meðferð
málsins af hálfu embættisins. Ríkis-
saksóknari sagði ekki tímabært að
tjá sig um málið þegar eftir því var
leitað.