Morgunblaðið - 22.05.2014, Page 24

Morgunblaðið - 22.05.2014, Page 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014 FERÐASUMAR 2014 ferðablað innanlands SÉRBLAÐ PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 26. maí. Í blaðinu verður viðburðardagatal sem ferðalangar geta flett upp í á ferðalögum um landið og séð hvað er um að vera á því svæði sem verið er að ferðast um í. –– Meira fyrir lesendur Morgunblaðið gefur út sérblað Ferðasumar 2014 ferðablað innanlands föstudaginn 30. maí. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Laugavegi 25, 101 Reykjavík. Sími 552-7499 | Hafnarstræti 99-101, 600 Akureyri. Sími 461-3006 www.ullarkistan.is Ýmis önnur flott tilboð í búðinni Opið verður til kl 22:00 í kvöld á Laugavegi Léttar veitingar um kvöldið 20%afsláttur af Sportswool ullarfatnaði áMiðborgarvökunni í dag 22. maí vísindin geti þýtt að umhverfisvernd- arsinnar þurfi að berjast harðar fyrir málstað sínum á næstunni. Kreppan fólki ofar í huga Annað sem gæti torveldað um- hverfissinnum að knýja ráðamenn til að taka á ógninni sem stafar af breyt- ingum á loftslagi jarðarinnar er að áhugi almennings á vandanum virðist vera að dvína. Greining sem gerð hefur verið á leit netnotenda á leitarvélinni Google sýnir að æ færri fleta upp orðum sem tengjast hlýnun jarðar og loftslags- breytingum. Áhuginn náði hámarki í kringum árið 2007 þegar heimilda- mynd Al Gore, fyrrverandi varafor- seta Bandaríkjanna, „Óþægilegur sannleikur“ (e. Inconvenient Truth) kom út. Skömmu síðar var stór skýrsla loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna gefin út sem varaði við áhrifum af loftslagsbreytingum. Síðan þá hefur áhuginn á málefninu farið minnkandi hjá netnotendum. „Það er engin ein ástæða fyrir því að almenningur hefur minni áhuga á loftslagsbreytingum. Hins vegar benda rannsóknir vissulega til þess að efnahagsleg málefni, eins og nýleg kreppa, hafi tilhneigingu til þess að yfirgnæfa umhverfismál eins og lofts- lagsbreytingar,“ segir dr. William Anderegg við Princeton-háskóla. Sama rannsókn sýnir þó að fjöl- miðlafár sem varð í kringum tölvu- pósta loftslagsvísindamanna sem lek- ið var árið 2009 hafi ekki haft áhrif á afstöðu almennings. Efasemdamenn reyndu að nota valdar setningar úr póstunum til að sýna fram á að ógnin sem stafaði af hlýnun jarðar væri að- eins gabb. Hamfarir heima fyrir draga úr efasemdum íhaldsmanna  Flóðin í Bretlandi hafa breytt afstöðu efasemdamanna um loftslagsbreytingar Varnir Breskir hermenn byggja upp flóðvarnargarða í vetur. Flóðin í Bretlandi ollu talsverðum usla, sérstaklega á suðurhluta Englands. Vatn hefur flætt inn á þúsundir heimila með tilheyrandi eignatjóni frá því í byrjun desember. Víðtæk áhrif » Vísindamenn sögðu frá því á þriðjudag að tugir þekktra kennileita Bandaríkjanna væru í hættu vegna áhrifa loftslags- breytinga. » Þar á meðal er Frels- isstyttan í New York sögð vera í hættu vegna hækkunar yf- irborðs sjávar. » Í Kína segja vísindamenn nú að jöklar landsins hafi hopað um þúsundir ferkílómetra á undanförnum þrjátíu árum vegna hlýnunar jarðar. BAKSVIÐ Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Mörg af þeim svæðum sem lentu illa í flóðunum á Bretlandseyjum nú í vet- ur og voru undir vatni í fleiri vikur voru helstu vígi þingmanna Íhalds- flokksins. Liðsmenn flokksins hafa í gegnum tíðina lýst efasemdum um loftslagsbreytingar en náttúruham- farirnar hafa nú meðal annars orðið til þess að þeir hafa endurskoðað af- stöðu sína. „Það eru að verða umskipti. Það er minna um að loftslagsbreytingum sé hafnað innan Íhaldsflokksins núna en fyrir sex mánuðum,“ segir John Gum- mer, þingmaður flokksins í lávarða- deildinni og einn aðalráðgjafi ríkis- stjórnarinnar í loftslagsmálum. Skorið á haldreipi efasemda Orsökina rekur Gummer, sem einnig er formaður nefndar sem á að leggja línurnar um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum, til flóðanna en einnig til vísindalegra staðreynda. Þeir sem hafi afneitað því að loftslags- breytingar væru að eiga sér stað hafi misst þau haldreipi sín að hlé hafi orð- ið á hlýnun jarðar og þó að ísinn á norðurskautinu væri að minnka þá stækkaði hann á Suðurskautslandinu á móti. Ný gögn hafa hrakið báðar þessar fullyrðingar. „Áhyggjurnar sem fólk tók ekki trúanlegar fyrir tveimur eða þremur árum virðast vera að verða að veru- leika. Í hvert skipti sem það opnar dagblöð sér það atburði eins og flóðin. Enginn einn atburður sannar kenn- inguna en allir saman gefa þeir sterka vísbendingu um að hlutirnir séu að breytast,“ segir Gummer í viðtali við breska blaðið The Independent. Gummer viðurkennir að engu að síður sé enn veruleg andstaða við hugmyndina um loftslagsbreytingar. Hann varar einnig við því að upp- gangur breska sjálfstæðisflokksins, UKIP, sem er vantrúaður á loftslags- Komm- únistaleiðtoginn Fidel Castro, fyrrverandi for- seti Kúbu, lifði kóngalífi með einkasnekkju og sinni eigin sum- arleyfiseyju í Karíbahafi, að minnsta kosti ef marka má frásögn fyrrverandi líf- varðar hans. Í nýrri bók sinni segir Juan Rei- naldo Sánchez, sem gætti lífs Castro í 17 ár, að forsetinn hafi stjórnað landinu sem persónulegu lénsveldi sínu í líkingu við höfð- ingja á miðöldum eða Loðvík fimm- tánda Frakkakonung. „Andstætt við það sem hann hef- ur sjálfur alltaf sagt þá hefur Fidel aldrei hafnað þægindum kapítal- ismans eða valið að lifa meinlæta- lífi. Þvert á móti er lífsstíll hans eins og kapítalista án nokkurra tak- markana,“ skrifar Sánchez sem lýs- ir Castro sem hrífandi og gáfuðum en einnig stjórnsömum, kaldrifj- uðum og eigingjörnum. KÚBA Segir að Fidel Castro hafi lifað eins og erkikapítalisti Fidel Castro Franska rík- islestarfyr- irtækið SNCF hefur þurft að eyða jafnvirði hátt í átta millj- arða króna til að breikka um 1.300 járnbrautarpalla í landinu eftir að í ljós kom að um 2.000 nýjar lestir sem fyrirtækið hefur pantað eru of breiðar fyrir margar járnbraut- arstöðvar landsins. Yfirmenn lestarkerfisins hafa viðurkennt að þeir hafi ekki farið yfir mælingar sem þeir sem annast járnbrautarteinakerfið létu þeim í té áður en þeir pöntuðu nýju lest- arnar. FRAKKLAND Könnuðu ekki mál lestanna fyrir kaup Ein af nýju og breiðu lestunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.