Morgunblaðið - 22.05.2014, Síða 28

Morgunblaðið - 22.05.2014, Síða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014 Í grein Esterar Rutar Unnsteins- dóttur, spendýravist- fræðings, í Frétta- blaðinu 1. maí sl. setur hún fram þá fullyrð- ingu að æti sem veiði- menn leggja út frá haustdögum og fram á vor stuðli að fjölgun refsins og ungir, ósjálfbjarga refir eigi bjargar von vegna þessa útlagða ætis. Mig langar til að leggja orð í belg í þessa umræðu en vil þó þakka greinarhöfundi fyrir greinina, málefnaleg skoðanaskipti eiga alltaf rétt á sér. Ekki er ég nú neinn sérfræðingur á þessu sviði en hef þó komið tölu- vert nálægt meindýraeyðingu, bæði á tófu og mink, ásamt vini mínum Sigurði Ásgeirssyni frá Framnesi sem féll frá 17. apríl 2008. Framboð á æti fyrir refinn er gríðarlegt og fyrir því liggja ýmsar ástæður. Ég fór mikið með ám og vötnum í Rangárvallasýslu á árunum 1987 og fram undir 2000 en á þeim tíma var staðið vel að eyðingu á villi- mink á þessu svæði. Það var alls ekki óalgengt á þessum árum að þegar gengið var með Rangánum, öðrum vatsföllum sem þær sameinast og í þær falla, fyndust þrjú til fjögur sjálfdauð hross á hverju ári. Áætla má að í einum skrokki af hrossi liggi þúsundir dagsmáltíða fyrir ref og vargfugl. Mig grunar að þetta sé óbreytt enn þann dag í dag enda all- víða ófært að fjarlægja skrokka sem þessa og má nefna til dæmis að sl. haust komu gangnamenn á Rang- árvallaafrétti að hræi hests sem gef- ist hafði upp í hestaferð og drepist við Torfahlaup . Skrokkurinn hefur verið skilinn eftir og þar hefur nú einhver tófan átt vonarbita í friði á nýliðnum vetri. Þar sem heimaslátr- un á lögbýlum fer fram er úrgang- inum sumstaðar komið fyrir í skor- um eða hann grafinn grunnt. Í þann sláturúrgang kemur gerjun og hiti þannig að jarðvegurinn frýs ekki og þetta er tóf- unni aðgengilegt fram eftir vetri og sama má segja um svæði þar sem miklar gæsaveiðar fara fram, þar eru bring- urnar skornar úr fugl- inum og hinu hent. Ekki aka allir þessum úr- gangi á sorpeyðing- arstöð heldur er honum komið þægilega fyrir í jörð þar sem lítið ber á en þefvísi tófunnar er óbrigðul og er hún fastheldin á æti sem hún getur vitjað án þess að nokkur verði henn- ar var. Breytt veðurfar undanfarna vetur, sérstaklega sunnanlands, hef- ur einnig gert álft og gæs bærilegra að hafa vetursetu nálægt ströndum sunnanlands og þar með aukið fæðu- val tófunnar. Í aldanna rás var fénaði beitt á jörð snemma vors, bændur fóru um jarðirnar kvölds og morgna með smalahundinn sem óspart var sigað á tófuna ef hún lét sjá sig meðan á sauðburði stóð. Þetta, ásamt smölun til rúnings, hafði þau áhrif að tófan hafði ekki frið til að taka grenjastæði nema í eyðibyggðum. Ég tel að fjölg- un tófunnar sé mikið áhyggjuefni en agn sem veiðimenn setja út vegi þar ekki þungt. Ég tel að ástæðan sé breytt veðurfar, landfriðun, skóg- rækt og uppgræðsla örfokalands. Sátt ríkir meðal flestra landsmanna um að græða skuli upp landið þó það skapi hagsælla lífsviðurværi fyrir tófuna. Þetta og fleira þarf að hafa í huga þegar rætt er um fjölgun tóf- unnar en ég læt hér við sitja. Er veiðimönnum um að kenna að tófunni fjölgar? Eftir Viðar Jónsson Viðar Jónsson »Umfjöllun um að fjölgun tófu megi rekja til fleiri þátta en þess að veiðimenn setji út æti til að lokka tófuna. Höfundur er húsasmíðameistari. Töluvert hefur verið rætt um notkun spjald- tölva í skólastarfi á síð- ustu misserum og fylgst er náið með þeirri þróun í skólum Seltjarnarness. Leikskóli Seltjarnarness frumvöðull Leikskóli Seltjarn- arness fékk fyrstu spjaldtölvurnar að gjöf frá fé- lagasamtökum í bænum. Þær voru strax nýttar við sérkennslu enda sýndi sig að þær hentuðu sérstaklega vel fyrir börn sem þurfa á sérstakri örvun að halda. Þessar fyrstu spjald- tölvur hafa skilað góðum árangri og bætti bæjarfélagið því við spjald- tölvukostinn á leikskólanum og eru nú spjaldtölvur á öllum deildum. Reynslunni verður svo miðlað áfram frá leikskólanum í sérkennsluna í grunnskólanum svo að samfella verði í notkun þeirra fyrir þau börn sem á þurfa að halda. Þróunarverkefni grunnskólans Í framhaldi af góðri reynslu og áhuga kennara á spjaldtölvunotkun var sett af stað þróunarverkefni í Grunnskóla Seltjarnarness. Stofn- aður var stýrihópur til að þróa verk- efnið og fengnar 10 spjaldtölvur að láni hjá Nýherja. Þráðlausa netið í skólanum var endurbætt svo tækni- legar forsendur væru fyrir hendi en skjávarpar eru staðalbúnaður í kennslustofum. Markmið verkefnisins var að gefa kennurum og þroskaþjálfum tæki- færi til að skoða þá möguleika sem notkun spjaldtölva í kennslu og þjálf- un hefur upp á að bjóða. Vilji er til að þróa verkefnið stig af stigi svo þessi tækni nýtist sem best við skólastarfið og bætt verði við spjaldtölvum eftir því hvernig verkefninu miðar áfram. Það nægir ekki að spjaldtölvuvæða, ef það er ekki gert með markvissum hætti og skoðað vandlega hvernig hyggilegt sé að nýta þessa áhuga- verðu tækni. Stýrihópurinn var í samstarfi við stýrihóp tilraunaverkefnis með spjaldtölvur í Reykja- vík, auk þess sem þau kynntu sér hvað væri til af kennsluefni á mark- aðnum fyrir spjaldtölv- ur. Heimsóttir voru skólar sem hafa tekið spjaldtölvur í notkun og kannað námsumhverfi fyrir spjaldtölvur. Í niðurstöðum hóps- ins kom fram að umtals- verð þekking safnaðist upp á þeim tíma sem verkefnið stóð yfir. Vilji er til að stýrihópurinn starfi áfram innan skólans og verði með í ráðum um frekari ákvarðanir er lúta að notkun spjaldtölva. Margir kenn- arar eru langt komnir í að nýta sér þá möguleika sem spjaldtölvurnar hafa upp á að bjóða en nauðsynlegt er að styðja þá starfsmenn sem vilja auka færni sína í notkun spjaldtölva. Nýjar spjaldtölvur Þetta þróunarverkefni er spenn- andi og verður unnið áfram að því stig af stigi. Ljóst er að til þess að fylgja þróuninni í samfélaginu verður í kennslustarfinu að taka tillit til framfara í upplýsingatækni. Mörkuð verður stefna á sviði upplýsingatækni fyrir leik-, grunn- og tónlistarskóla bæjarins. Í niðurstöðum hópsins var lagt til að bætt yrði við spjald- tölvukost skólans og voru grunnskól- anum nú nýverið afhentar 25 nýjar spjaldtölvur, þ. á m. spjaldtölvur er hafa hugbúnað sem tekur mið af nemendum sem þurfa sérstakan stuðning. Bætast þær við tölvukost skólans og munu vonandi nýtast vel í þróun á rafrænum kennsluháttum, þannig að skólarnir á Seltjarnarnesi verði áfram í fremstu röð. Upplýsingatækni mikilvæg í þróun skólastarfs Eftir Sigrúnu Eddu Jónsdóttur »Vilji er til að stýrihóp- urinn starfi áfram innan skólans og verði með í ráðum um frekari ákvarðanir er lúta að notkun spjaldtölva. Sigrún Edda Jónsdóttir Höfundur er formaður skólanefndar Seltjarnarness. Nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosn- inganna er ekki úr vegi að fara yfir hvernig frammistaða kjörinna fulltrúa í Reykjavíkurborg hefur verið á því kjör- tímabili sem nú er að líða. Hafa þeir hlust- að á vilja íbúanna eft- ir að hafa hvatt til aukins íbúa- lýðræðis í borginni? Í september sl. voru þeim Degi B. Eggertssyni, formanni borgarráðs, og félögum hans í meirihluta borg- arstjórnar Reykjavíkur afhentir und- irskriftalistar með nöfnum 69.790 manns undir yfirskriftinni „Hjartað í Vatnsmýri“ þar sem skorað er á Reykjavíkurborg og Alþingi að tryggja óskerta flugstarfsemi í Vatnsmýri til framtíðar. Er þetta stærsta undirskriftasöfnun og vilja- yfirlýsing sem komið hefur fram hér á landi. Þessi vilji er svo staðfestur í skoðunarkönnun MMR í apríl sl. þar sem 71,2% Reykvíkinga (80,7% lands- manna) vilja hafa Reykjavíkurflugvöll áfram í Vatnsmýri. Í nýsamþykktu aðalskipulagi Reykjavíkur má sjá að Dagur B. og félagar hafa kosið að gefa íbúalýðræð- inu langt nef og haft að engu vilja yf- irgnæfandi meirihluta íbúa Reykja- víkur (og landsins alls) um óskerta flugstarfsemi í Vatnsmýri, heldur kosið að stunda jarðýtu-pólitík þar sem þeirra eigin vilja og skoðun er rudd braut í aðalskipulaginu. Reykjavíkurflugvöllur er gríð- arlega mikilvægur sem samgöngu-, sjúkra- og almannavarnamiðstöð fyrir landið allt sem sést best á því að þegar staðsetning fyrir nýjan Landspítala var ákveðin við Hringbraut var ein af grunnforsendunum nálægð hans við samgöngumiðstöð og sjúkraflug. En í skýrslu nefndar um uppbygg- ingu Landspítala – háskólasjúkrahúss (LSH) við Hringbraut frá apríl 2004 er í 10. kafla fjallað um samgöngur við LSH og þar segir m.a.: „Mikilvæg for- senda fyrir staðarvali við Hringbraut var að sýnt þótti, að þar væri hægt að tryggja gott aðgengi ökutækja og sjúkraflugs“ og síðan segir: „Hlutverk LSH er m.a. að vera þungamiðja í ís- lensku heilbrigðiskerfi, en þangað verður leitað ef fjölmenn slys verða jafnframt því sem einstaklingar með smærri vandamál fá þar þjónustu.“ Þá er í skýrslunni fjallað um sam- göngumiðstöð sem þjóni flugi, lang- ferðabílum og strætisvögnum og þar með hagsmunum Landspítalans til að uppfylla skyldur sínar við lands- byggðina. Í gegnum tíðina höfum við und- irritaðir sem störfum sem flug- stjórar hjá Landhelgisgæslu Íslands ítrekað orðið vitni að því hve miklu máli skiptir, fyrir fársjúkt og mikið slasað fólk, að hafa greiðan og hindr- analausan aðgang að Landspít- alanum í öllum veðrum og hafa að- flugstæki- og ljós Reykjavíkurflug- vallar þar oft skipt sköpum. Úr því að Dagur B. og félagar hafa kosið að gefa íbúalýðræði og vilja meirihluta íbúa Reykjavíkur (og landsins alls) langt nef hvað varðar áframhaldandi rekstur Reykjavík- urflugvallar í Vatnsmýri er hér með skorað á þennan meirihluta íbúa að hafa þessa staðreynd í huga er þeir greiða atkvæði sitt í kosningunum 31. maí nk. Dagur B. og undir- skriftirnar 69.790 Eftir Benóný Ásgrímsson og Jakob Ólafsson Benóný Ásgrímsson » „Hlutverk LSH er m.a. að vera þunga- miðja í íslensku heil- brigðiskerfi, en þangað verður leitað ef fjöl- menn slys verða jafn- framt því sem ein- staklingar með smærri vandamál fá þar þjón- ustu.“ Höfundar eru flugstjórar. Jakob Ólafsson LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 Stjarna fyrir nýstúdentinn 14 karata gull kr. 19.500 Silfur kr. 6.900 Hálsmen og prjónn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.