Morgunblaðið - 01.07.2014, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 2014
Þorvaldur Jónsson,
framkvæmdastjóri N4 á
Akureyri, lést á heimili
sínu að kvöldi laugar-
dagsins 28. júní eftir
baráttu við krabbamein.
Hann varð fimmtugur í
síðasta mánuði.
Þorvaldur fæddist í
Ólafsfirði 17. maí 1964.
Foreldrar hans eru Jón
Þorvaldsson og Sigrún
Jónsdóttir. Bróðir Þor-
valdar er Helgi, fæddur
1962. Þorvaldur lauk gagnfræðaprófi
frá Gagnfræðaskólanum í Ólafsfirði
árið 1980 og varð stúdent frá Verk-
menntaskólanum á Akureyri 1985.
Hann varð viðskiptafræðingur frá
Háskóla Íslands 1991.
Eiginkona Þorvaldar er Harpa
Viðarsdóttir, fædd 1964. Foreldrar
Hörpu voru Viðar Helgason og Birna
Eiríksdóttir, bæði látin. Börn Þor-
valdar og Hörpu eru Jón Viðar, f.
1989, Karen Birna, f. 1993, og Sigrún
Stella, f. 1994. Eiginkona Jóns Viðars
er Anna Rósa Halldórsdóttir og eru
synir þeirra Eiður Bekan, f. 2010, og
Egill Ernir, f. 2013.
Unnusti Karenar Birnu
er Valþór Ingi Ein-
arsson.
Þorvaldur Jónsson
var kunnur íþrótta-
maður. Á yngri árum
náði hann mjög góðum
árangri á skíðum og
varð oft Íslandsmeistari
í göngu, stökki og nor-
rænni tvíkeppni. Hann
lék knattspyrnu um ára-
bil í meistaraflokki með
æskufélagi sínu, Leiftri, í öllum deild-
um Íslandsmótins og nokkra Evrópu-
leiki. Þorvaldur lék líka með KA og
Breiðabliki auk þess sem hann lék
handbolta með meistaraflokki KA. Þá
var Þorvaldur snjall kylfingur.
Þorvaldur vann hjá útgerðar-
fyrirtækinu Þormóði ramma-Sæberg
á Ólafsfirði áður en hann flutti til
Akureyrar. Eftir það stofnaði hann
fyrirtækið Extra ásamt bróður sín-
um. Það fyrirtæki varð síðar að N4,
sem Þorvaldur stýrði til dauðadags.
N4 gefur út sjónvarpsdagskrá og
rekur sjónvarpsstöðina N4.
Andlát
Þorvaldur Jónsson
VERTU
VAKANDI!
blattafram.is
93% þolenda þekkja þann
sem beitir þá kynferðislegu
ofbeldi!
Áþreifanleg vellíðan EDDA
HEILDVERSLUN
Stofnsett 1932
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími: 525 8210
eddaehf@eddaehf.is • www.eddaehf.is
82
ÁRA
EDDA Heildverslun
Draumur um góða nótt
Heildverslun með lín fyrir:
• hótelið
• gistiheimilið
• bændagistinguna
• veitingasalinn
• heilsulindina
• hjúkrunarheimilið
• þvottahúsið
• sérverslunina
Gæði og glæsileiki
Heildverslunin Edda hefur um áratuga
skeið sérhæft sig sem innflytjandi á líni.
Mörg af stærstu hótelum landsins jafnt
sem minni nota allt lín frá okkur.
Bjóðum einnig upp á lífrænt lín.
40%
afsláttur
af völdum
vörum
Bæjarlind 6, sími 554 7030
www.rita.is
ÚTSALAN
er hafin
v/Laugalæk • sími 553 3755
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Vertu vinur okkar
á Facebook
Útsalan
er hafin
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið laxdal.isSkoðið laxdal.is/yfirhafnir
STÓRÚTSALA
YFIRHAFNIR
VATNSVARÐAR
REGNKÁPUR
SVARTAR LAKK
30% afsláttur
Héraðsdómur
Reykjavíkur hef-
ur dæmt 27 ára
karlmann í 16
mánaða fangelsi
fyrir frelsissvipt-
ingu, líkamsárás,
hótanir, þjófnað
og húsbrot. Var
honum einnig
gert að greiða fórnarlambi sínu 1,5
milljónir króna í miskabætur og all-
an sakarkostnað vegna málsins.
Maðurinn sem á töluverðan sak-
arferil að baki var ákærður fyrir að
hafa hinn 11. mars 2012 veist með of-
beldi og hótunum að ungri konu og
að hafa meðan á atlögunni stóð mein-
að henni útgöngu úr læstu herbergi í
eina og hálfa klukkustund. Átti þetta
sér stað á þáverandi heimili árásar-
mannsins.
Ógnað með opnum skærum
Reif maðurinn ítrekað í konuna,
hrinti henni, reif í hár hennar, dró
konuna á hárinu, sló hana nokkrum
sinnum með flötum lófa í andlitið og
sparkaði einu sinni í hægra hné
hennar. Hinn dæmdi hótaði einnig
fórnarlambi sínu lífláti fengi hann
ekki að hafa við hana kynmök. Ógn-
aði maðurinn konunni með opnum
skærum. Af atlögunni hlaut konan
m.a. skurðsár á hægri fótlegg,
eymsli, þrota og punktablæðingar
framan og ofan við vinstra eyra,
bólgu, húðblæðingar og eymsli á
vinstra eyrað og bak við eyrað, hár-
los, minnkaða hreyfigetu og eymsli í
hálsi og herðum. Maðurinn neitaði
sök fyrir dómi og sagði að hún hefði
enga áverka borið þegar hún yfirgaf
íbúðina. Framburður brotaþola er
hins vegar sagður trúverðugur.
Dæmdur
fyrir of-
beldisverk
Svipti konu
frelsi í íbúð sinni
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
– með morgunkaffinu