Morgunblaðið - 01.07.2014, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 2014
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Bogfimi á Íslandi byrjaðihjá Íþróttafélagi fatlaðraí Reykjavík fyrir fjörutíuárum, eða árið 1974. Við
höfum verið með bogfimi hér allar
götur síðan félagið var stofnað en
við héldum einmitt upp á afmælið í
lok maí með því að opna nýjan úti-
bogfimivöll við íþróttahús félags-
ins,“ segir Þórður Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Íþróttafélags fatlaðra
í Reykjavík, og bætir við að Elísa-
bet Vilhjálmsson, frumkvöðull að
bogfimiíþróttinni á Íslandi, hafi bar-
ist ötulega fyrir því að fá útibog-
fimivöll. „Þegar fyrrverandi félagar
úr ÍFR opnuðu Bogfimisetrið í
Kópavogi fyrir nokkrum árum fór
þetta að vera alvörualmennings-
íþrótt, því aðstaðan batnaði mikið
við það. Alla tíð hafa margir ófatl-
aðir æft bogfimi hjá okkur og það
voru einmitt slíkir strákar sem
heilluðust svo af þessari íþrótta-
grein að þeir stóðu fyrir því að opna
aðstöðuna í Kópavogi. Við það varð
alger sprenging í vinsældum íþrótt-
arinnar.“
Brennandi áhugi og þolin-
mæði kemur fólki langt
Þórður segir að bogfimi henti
einkar vel fyrir fatlaða. „Á einum af
mörgum ólympíuleikum veraldar
var það fatlaður einstaklingur sem
skaut ör af boga og kveikti ólympíu-
eldinn, sem sýnir hvað hann hefur
náð mikilli færni í sinni grein. Fatl-
aðir hafa margir hverjir sem stunda
þetta hér náð gríðarlega góðum
árangri. Fatlaðir og ófatlaðir
stunda bogfimi saman, þeir sem eru
Bogfimi hentar
fötluðum mjög vel
Áhugi á bogfimi hefur vaxið mjög mikið undanfarin ár á Íslandi en í lok maí var
tekinn í notkun nýr útibogfimivöllur og við það varð sprenging í íþróttinni. Þeir
sem æfa með keppni í huga æfa á hverjum degi, en almennt æfir fólk þrisvar til
fjórum sinnum í viku. Í þessu sem öðru skapar æfingin meistarann.
Morgunblaðið/Golli
Skotmörk Huga þarf nákvæmlega að skotmörkunum í keppnum.
Pressphotos/Hoski
Vígsla Jón Gnarr borgarstjóri vígði útivöllinn á afmælinu og skaut ör.
Nú þegar fólk er á faraldsfæti í
sumarfríinu sínu flaska margir á
því að ætla sér of mikið á of stutt-
um tíma. Orkan fer þá kannski öll í
stressið að komast frá einum stað
til annars. Og þegar staldrað er
stutt við á hverjum stað nær fólk
yfirleitt ekki að kynnast staðnum,
fólkinu og umhverfinu af neinu
viti. Til er samfélag sem kallast
„Slow Travel“, eða að ferðast
hægt/í rólegheitum, og gengur út
á það að gefa sér tíma til að njóta
á ferðalögum. Á síðunni slowtrav-
.com er hægt að fræðast um fyr-
irbærið, fá alls konar ráð og
ábendingar um staði, ábendingar
um bækur sem nýtast þeim sem
vilja ferðast í rólegheitum en ekki
á harðahlaupum. Lagt er upp úr
því að staldra lengur við á hverjum
stað og kynnast öll því sem er í
nærumhverfinu.
Vefsíðan www.slowtrav.com
Að njóta Á ferðalögum er heillavænlegt að gefa sér tíma til að njóta.
Að ferðast í rólegheitum
Ljósmynd/norden.org
Litli húsdýragarðurinn í Slakka í
Laugarási hefur glatt margt barnið í
gegnum tíðina og nú er hann orðinn
21 árs. Í tilefni afmælisins ætlar Helgi
Sveinbjörnsson, eigandi garðsins, að
opna tvöfalda ljósmyndasýningu í
Slakka á morgun, miðvikudag, kl. 18.
Annars vegar er um að ræða ljós-
myndir sem spanna sögu Slakka frá
upphafi og er hún í gamla bænum, og
hins vegar eru ljósmyndir af íslenskri
náttúru sem Gunnar Steinn Úlfarsson
(Made by Iceland) hefur tekið og eru
þær í salnum. Slakki er á facebook:
www.facebook.com/slakki.
Endilega …
… kíkið á sýn-
ingu í Slakka
Merkúra Hún tekur á móti gestum.
Ein sigursælasta hjólreiðakona allra
tíma kemur hingað til lands til að taka
þátt í hjólreiðakeppninni Alvogen
Midnight Time Trial, sem haldin verð-
ur næstkomandi fimmtudag, hinn 3.
júlí. Hanka Kupfernagel er margfaldur
heimsmeistari í hjólreiðum og mun á
fimmtudag etja kappi við 100 fljót-
ustu hjólreiða-karla og konur lands-
ins, þar á meðal Birnu Björnsdóttur,
sem sigraði á tímatökumótinu í fyrra,
og Maríu Ögn Guðmundsdóttur, sem
var valin hjólreiðakona Íslands árið
2013. Einnig mun Þjóðverjinn Richard
Geng keppa á mótinu, en hann er fyrr-
verandi atvinnumaður í hjólreiðum og
mjög sigursæll í íþróttinni.
Mótið er nú haldið í annað sinn og
hefur fjöldi fólks skráð sig til keppni.
Keppnin er tileinkuð réttindum barna
og renna þátttökugjöld óskert til
neyðarsöfnunar UNICEF til hjálpar
börnum í Suður-Súdan. Rásmark er
við Hörpu og þaðan er hjólað eftir
Sæbraut að gatnamótum við
Laugarnesveg og til baka að enda-
marki við Hörpu. Snúið er við á keilum
og er keppnishringurinn um 5,5 km
langur.
Heimsmeistarinn Hanka Kupfernagel tekur þátt á fimmtudag
Ísland laðar
að fólk utan
úr heimi til
að keppa í
hjólreiðum
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD
FAXAFENI 14 - 108 REYKJAVÍK - S. 525 8200 - Z.IS -
ÚRVA
L - G
ÆÐI
- ÞJÓ
NUST
A