Morgunblaðið - 01.07.2014, Side 11

Morgunblaðið - 01.07.2014, Side 11
Morgunblaðið/Golli Einbeittir Á Íslandsmeistaramóti fatlaðra í bogfimi er ævinlega mikil þátttaka og allir einbeittir. í hjólastól sitja en hinir standa,“ segir Þórður og bætir við að árlega sé haldið Íslandsmót í íþróttinni. „Áður var mótið á vegum Íþrótta- sambands fatlaðra en þegar meiri- hluti keppenda var orðinn ófatlaður átti þetta ekki lengur heima innan íþróttasambandsins. Þá var stofnuð sérstök bogfiminefnd ÍSÍ og hún sér um Íslandsmótið. Í fyrra voru á milli sjötíu og áttatíu keppendur.“ Þórður segir að bæði karlar og konur æfi bogfimi en karlarnir séu þó fleiri. „Þetta hentar báðum kynj- um og karlar og konur æfa saman en keppt er í aðskildum flokkum kvenna og karla.“ Þegar Þórður er spurður hvað fólk þurfi að hafa til að bera til að ná góðum árangri í bogfimi segir hann brennandi áhuga og þol- inmæði koma mörgum langt. Ná- kvæmninni sem íþróttin krefst nær fólk svo með æfingunni. Æft undir berum himni Þórður segir að þeir bestu sem æfa með keppni í huga æfi á hverj- um degi, en almennt æfi fólk þrisv- ar til fjórum sinnum í viku. „Við er- um afskaplega ánægð með þennan nýja útivöll sem er sérhannaður fyrir bogfimi, en við höfum æft í Hafnarfirði, á Valbjarnarvelli og hingað og þangað og alltaf inni og aðstaðan verið misjöfn, ekki alltaf salernisaðstaða og fólk þurfti að koma sjálft með skotmörkin sín. Jafnvel var það ekkert vel séð að væri verið að skjóta af bogum og fólk þurfti stundum að passa sig. Fólk er afar ánægt með nýju að- stöðuna og getur nú æft undir ber- um himni við fullkomnar öryggis- aðstæður og skotið af fimmtíu metra færi. Átta einstaklingar geta skotið í einu og völlurinn verður op- inn í allt sumar frá klukkan tvö á daginn til níu á kvöldin fyrir alla áhugasama. Ef rignir þá klæðir fólk sig eftir veðri, það hefur ekki haml- að fólki hingað til að æfa fótbolta úti og hvers vegna ætti það að hamla bogfimifólki? Við búum á Ís- landi.“ „Þetta hentar báðum kynjum og karlar og konur æfa saman en keppt er í aðskildum flokkum kvenna og karla.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 2014 Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík (ÍFR), sem varð 40 ára hinn 20. maí 2014, er elsta íþróttafélag fatlaðra á landinu. Frumherjar að stefnumótun þess voru Sigurður Magnússon sem var framkvæmdastjóri ÍSÍ, Trausti Sigurlaugsson frá Sjálfsbjörg og Guðmundur Löve frá Öryrkjabanda- laginu. Á stofnfundi félagsins var Arnór Pétursson síðan kosinn for- maður þess. Starfsemi félagsins varð strax öflug og stjórn þess sýndi mik- inn stórhug með því að huga fljótlega að íþróttahúsinu sem reis síðan í fyll- ingu tímans. Ekki trúðu allir á það að fatlaðir ættu erindi í íþróttir eins og ófatlaðir, en reyndin varð önnur. Af afreksfólki á ólympíumótum má nefna Hauk Gunnarsson, Ólaf Eiríksson, Kristínu Rós Hákonardóttur og Pálmar Guð- mundsson. Nýr lyftingasalur sem og bætt að- staða fyrir íþróttafólk og leigjendur var tekin í notkun í íþróttahúsinu í mars 2009. Iðkendur í húsinu eru, auk ÍFR, Klettaskóli, Fjölmennt – fullorðins- fræðsla, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, geðsvið Landspítalans og ýmsir aðrir. Í yfir 30 ár hefur það verið baráttu- mál félagsins að fá bogfimivöll utan- húss og varð hann að veruleika á af- mælinu. Völlurinn er 50 metra langur og sex til átta manns geta skotið samtímis. Hann stendur sunnan við íþróttahúsið og hægt er að samnýta aðstöðuna sem er þar fyrir, til dæmis snyrtiaðstöðu. Völlurinn er úti undir berum himni en yfir honum eru skot- hlífar á fjórum stöðum sem loka skotlínunni þannig að ekki er hægt að skjóta örvum út fyrir völlinn. Völlurinn býður upp á allt að 50 metra skotfæri. Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík Sunddrottning Ólympíugullhafinn og garpurinn Kristín Rós Hákonardóttir. Ekki trúðu allir að fatlaðir ættu erindi í íþróttir eins og ófatlaðir Algjör nagli Hjóladrottn- ingin Hanka í fullum skrúða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.