Morgunblaðið - 01.07.2014, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 2014
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
Nýtt hótel var opnað nýverið á
Laugavegi 66-68 í Reykjavík en í
hótelinu eru 66 herbergi og rúmar
það um 150 gesti.
„Í raun og veru eru þetta 65 her-
bergi en okkur þykir það svolítið
svalt að vera með 66 herbergi á
Laugavegi 66. Við tókum því eitt
herbergið og skiptum því niður,“
segir Gunnar Gunnarsson, eigandi
hótelsins.
Framkvæmdir við byggingu hót-
elsins hófust í nóvember á seinasta
ári en þeim lauk síðastliðinn maí.
Ráðist var í miklar endurbætur á
húsnæðinu en skipta þurfti m.a. um
allar innréttingar. „Það sem er
ábyggilega mest áhugavert við þetta
hótel er hversu lítinn tíma það tók að
klára verkið. Við þurftum að rífa allt
út og svo stækkuðum við húsið heil-
mikið með bakhúsi. Húsið var 1.400
m2 en er í dag 2.970 m2 svo óhætt er
að segja að verktakarnir hafi unnið
þrekvirki á þessum stutta tíma,“
segir Gunnar, en aðspurður hvernig
viðtökur viðskiptavina hafi verið,
segir hann: „Þær hafa bara verið
frábærar. Þetta hefur gengið rosa-
lega vel en við byrjum þetta rólega á
meðan við erum enn að fóta okkur.
Það er náttúrlega alltaf þannig að
þegar þú opnar nýtt hótel þá þarftu
að huga að nokkrum smáatriðum.
Við vildum því ekki hafa stútfullt
hótel strax í byrjun ef eitthvað
skyldi koma upp á en almennt séð
hefur allt gengið að óskum,“ segir
Gunnar.
Opna veitingastað í haust
Enginn veitingastaður er á hót-
elinu en gestum hótelsins býðst þó
að snæða þar morgunverð. Stefnt er
að því að opna veitingstað í haust en
ekki er ákveðið með hvaða hætti
hann verður. „Við erum ennþá að
velta því fyrir okkur hvernig þetta
verður en ég á eftir að taka þá
ákvörðun með hótelstjóra og fleir-
um. Það eru margir flottir veitinga-
staðir í bænum og ég ætla mér ekki
að opna veitingastað nema hafa eitt-
hvað nýtt fram að færa,“ segir
Gunnar.
Morgunblaðið/Eggert
Nýtt hótel Ráðist var í miklar endurbætur á húsnæðinu.
Með 66 herbergi
á Laugavegi 66
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Móðurstöð lögreglu á Vesturlandi
verður vel fyrir komið hér í Borg-
arnesi, því staðurinn er miðsvæðis.
Gangi hugmyndir eftir eygjum við
möguleika á því að styrkja löggæslu
hér og fjölga í lið-
inu. Á slíku er
nauðsyn sé horft
til þess mikla
fjölda ferða-
manna sem hér
eiga leið um og
dveljast í sumar-
húsum. Og svo
bætast háskóla-
þorpin á Hvann-
eyri og Bifröst
auðvitað við,“ segir Theódór Þórð-
arson, yfirlögregluþjónn í Borgar-
nesi.
Í þeim tillögum sem innanríkis-
ráðuneyti hefur sett fram, út frá
breytingum á lögreglulögum, er gert
ráð fyrir því að aðalstöð lögreglu á
Vesturlandi verði í Borgarnesi en
sýslumaður fjórðungsins staðsettur í
Stykkishólmi. Þessu fagnar sveitar-
stjórn Borgarbyggðar í ályktun.
Segir að með þessu verði tekin upp
sólarhringsvakt lögreglu í Borgar-
nesi. Á því sé þörf, enda liggi þjóð-
vegur 1 í gegnum sveitarfélagið og
mörg mál sem koma til kasta lög-
reglu tengist vaxandi ferðaþjónustu
á svæðinu.
Theódór Þórðarson telur tillögur
ráðuneytisins skynsamlegar og fag-
legar. Lengi hafi verið þörf á því að
efla lögregluna á Vesturlandi og nú
skapist svigrúm til þess. Vissulega
hafi lögregluembættin á Vesturlandi
haft með sér margvíslegt samstarf
og varðsvæðin séu ekki lengur eins
bundin við sýslu- og sveitarfélaga-
mörk og áður. Að aðalstöðin sé mið-
svæðis sé því eðlilegt, en ólík sjón-
armið sveitarstjórnarmanna um það
séu hins vegar skiljanleg. Rétt sé þó
að halda því til haga að heildarmála-
fjöldi hafi lengi verið mestur á svæði
lögreglunnar í Borgarfirði og Döl-
um, sé litið til alls Vesturlands.
Akurnesingar ósáttir
Á Akranesi er óánægja með að
hvorki höfuðstöðvar lögreglu né
sýslumanns á Vesturlandi verði þar í
bæ. Er tillögu ráðuneytisins mót-
mælt í ályktun bæjarráðs. Er þar
vísað til þess að Skaginn sé fjöl-
mennasta byggðin á Vesturlandi
með um 7.000 íbúa. Því er gerð krafa
um að lögreglustjóraembættið verði
á Akranesi. Liðið þar sé fjölmennt,
sólarhringsvakt á stöðinni og rann-
sóknadeild þar sinni Vesturlandi
öllu. Því sé ekki hægt að sætta sig við
tillögur ráðuneytisins, sem verði
mótmælt af þunga.
Lögreglan vel
sett í Borgarnesi
Akurnesingar vilja
Vesturlandsembættið
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Lögregla Vestlendingar deila um
hvar aðalstöðin eigi að vera.
Theódór
Þórðarson