Morgunblaðið - 01.07.2014, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.07.2014, Blaðsíða 16
FRÉTTASKÝRING Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Norvík-samsteypan, sem er í eigu Jóns Helga Guðmundssonar og fjöl- skyldu, kom nýverið með tæpar 140 milljónir króna til landsins í gegnum fjárfestingarleið Seðlabanka Ís- lands. Þetta staðfestir Brynja Hall- dórsdóttir, framkvæmdastjóri Nor- víkur, í samtali við Morgunblaðið. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er fjármununum meðal ann- ars ætlað að skjóta sterkari stoðum undir rekstur byggingavöruverslun- arinnar Byko, sem er að fullu í eigu Norvíkur, en rekstur verslunarinnar hefur gengið heldur erfiðlega á undanförnum árum. Samsteypan gaf út skuldabréf til tíu ára að fjárhæð 139,4 milljónir króna í lok júnímánaðar, en stjórn Byko samþykkti útgáfuna á fundi sínum um miðjan mánuðinn. Fjárfestingarleið Seðlabanka Ís- lands gengur út á að fjárfestar komi með gjaldeyri til Íslands og skipti honum fyrir krónur og fjárfesti hér á landi til lengri tíma. Gulrótin fyrir fjármagnseigendur er að þeir fá um 20% afslátt af krónunum miðað við skráð gengi Seðlabankans. Markaðurinn að taka við sér Eins og áður sagði á Norvík bygg- ingavöruverslunina Byko að fullu, en erlend starfsemi samsteypunnar snýr aðallega að timburiðnaði og flutningastarfsemi. Guðmundur H. Jónsson, sem hættir sem forstjóri Byko í dag, seg- ir að byggingavörumarkaðurinn sé heldur að taka við sér. „Það er meira að gerast á markaðinum. Við finnum aðeins fyrir aukinni eftirspurn hjá okkur, bæði á einstaklings- og fag- mannamarkaðinum, og er hljóðið betra í viðskiptavinunum,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið. Tími sé kominn til, enda hafi þessi atvinnugrein farið hvað verst út úr hruni bankanna haustið 2008. Guðmundur segist ekki ætla að hætta afskiptum sínum af félaginu, heldur taki hann nú við starfi stjórnarformanns. Eftir mikla upp- stokkun í rekstri félagsins á undan- förnum árum telur hann félagið nú komið á þann stað að heppilegt sé að nýr maður taki við keflinu. Rekstur Byko hefur gengið brösuglega á undanförnum árum, rétt eins og hjá helstu keppinautum verslunarinnar á byggingavöru- markaðinum. Félagið tapaði 391 milljón króna árið 2012, samanborið við 352 milljóna króna tap árið áður. Samtals var 743 milljóna króna tap á árunum tveimur. Hlutafé fé- lagsins var aukið um 500 milljónir króna í árslok 2012 og var eiginfjár- hlutfallið 26,6%. Velta félagsins dróst lítillega saman milli ára, um 2%, og nam 10,3 milljörðum króna. Umsvifin mikil erlendis Umsvif Norvíkur eru umtalsverð á alþjóðlegum mörkuðum, þar á meðal í Lettlandi og Finnlandi. Fé- lagið á þó nokkuð af erlendum eign- um, svo sem BYKO-LAT, sem sér- hæfir sig í því að vinna og flytja út timbur frá Lettlandi og Rússlandi til landa í Evrópu og Asíu, VIKA WOOD, sem er stærsta sögunar- mylla Lettlands, sögunarmylluna Jarl Timber í Svíþjóð, timburfyrir- tækið Nowrood, sem er með nokkrar starfsstöðvar í Rússlandi, og Contin- ental Wood, sem er einn stærsti inn- flytjandi timburs til Bretlands. Í febrúar á þessu ári var tilkynnt um kaup SÍA II, framtakssjóðs í rekstri sjóðsstýringarfyrirtækisins Stefnis, og hóps fjárfesta á hluta af innlendri starfsemi Norvíkur í gegn- um Festi hf., sem varð nýtt móður- félag hinna seldu félaga. Með kaupunum tók Festi yfir rekstur Kaupáss, sem rekur matvöruverslanir undir merkjum Krónunnar, Nóatúns og Kjarvals, Elko, Intersport, auglýsingastof- unnar Expo og vöruhótelsins Bakk- ans. Haft var eftir Jóni Helga í tilkynn- ingu að það væri mat fjölskyldunnar að komið væri að kynslóðaskiptum í fyrirtækinu. Kaupás varð til í maí árið 1999 með samruna verslana Nóatúns, Kaupfélags Árnesinga og klukku- búðanna 11-11. Norvik keypti félagið síðan árið 2003. Norvík kemur með 140 milljónir króna til landsins  Nýtir sér fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands  Rekstur Byko gengið erfiðlega Tap Byggingavöruverslunin Byko, sem er sú stærsta á landinu, tapaði 391 milljón króna árið 2012, samanborið við 352 milljóna króna tap árið áður. Morgunblaðið/Golli Hættur sem forstjóri » Guðmundur H. Jónsson lét í gær af störfum sem forstjóri Byko. Hann hefur gegnt for- stjórastarfinu í þrjú ár. » Í bréfi til starfsmanna verslunarinnar sagði hann að þó svo að hart hefði verið í ári hjá félaginu hefði tekist með góðri samvinnu að „koma BYKO sterku út úr erfiðasta árferði frá stofnun félagsins“. » Sigurður Pálsson, fram- kvæmdastjóri vörustjórnunar- sviðs Byko til tveggja ára, mun taka við forstjórastarf- inu. 16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 2014 STUTTAR FRÉTTIR ● Eiginfjárstaða heimila hefur farið stöðugt batnandi undanfarið. Til marks um það fækkaði heimilum með neikvæða stöðu í fasteign úr rúmlega 25 þúsund í tæplega 18 þúsund á árunum 2011 og 2012, auk þess sem meðalstaða þeirra batnaði umtals- vert. Greiningardeild Arion banka segir að eiginfjárstaðan muni að öllum lík- indum sýna áframhaldandi bata, enda hafi fasteignaverð hækkað um- talsvert umfram verðlag á árinu 2013. Eiginfjárstaða batnar með hækkandi verði ● Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur skipað í nefnd til að meta hæfni umsækjenda um stöðu seðlabankastjóra. Nefndina skipa Guðmundur Magn- ússon, fyrrverandi rektor Háskóla Ís- lands, tilnefndur af samstarfsnefnd há- skólastigsins, Ólöf Nordal lögfræð- ingur, tilnefnd af bankaráði Seðlabanka Íslands, og Stefán Eiríksson, lög- reglustjóri og lögfræðingur, sem skip- aður er án tilnefningar og er hann jafn- framt formaður hennar. Ný nefnd til að meta hæfni umsækjenda IFS greining mælir með því að fjár- festar haldi hlutabréfum sínum í verslunarfyrirtækinu Högum. Greiningarfyrirtækið telur að rétt- mætt virði hlutar í Högum sé nú 45,2 krónur og er markgengið eftir níu til tólf mánuði 48,4 krónur á hlut. Markaðsgengi Haga er hins vegar 44,8 krónur á hlut, að því er fram kemur í nýrri greiningu fyrirtækis- ins. Hagar skiluðu uppgjöri fyrir fyrsta fjórðung rekstrarársins fyrir helgi. IFS segir að árið hafi farið heldur rólega af stað með 2,8% tekjuvexti og gerir greiningarfyrir- tækið ráð fyrir að tekjur hækki meira á síðari fjórðungum ársins, meðal annars með aukinni neyslu landsmanna og metfjölda ferða- manna. Bent er á að Hagar hafi öfunds- verða stöðu á dagvörumarkaði, sem hafi styrkst á liðnum misserum. Að mati IFS er ekki heiglum hent að keppa við félagið í verði vegna mik- illa og hagkvæmra innkaupa þess og sterks efnahags. kij@mbl.is Morgunblaðið/Heiddi Hagkaup Hagnaður Haga á tímabilinu 1. mars til 31. maí nam 939 millj- ónum króna. Hagnaðurinn var 837 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Haldi bréfum sínum í Högum  Hagar í öfundsverðri stöðu á markaði                                      ! " !" #$" $#% " $% "%#  % &'()* (+(    ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5   $ !  !$! #  $"% $%  "%  $% #$  ! $$ !$$ # $"% $"  "%%$  %!" ! $$% Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á MOSFELLSBAKARÍ Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík s. 566 6145 | mosfellsbakari.is Ert þú búin að prófa nýja lágkolvetnabrauðið okkar? Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.