Morgunblaðið - 01.07.2014, Side 17

Morgunblaðið - 01.07.2014, Side 17
SVIÐSLJÓS Skúli Halldórsson sh@mbl.is ISIS-samtökin hafa lýst yfir stofnun nýs íslamsks ríkis, svokallaðs kalíf- ats, á svæðum undir stjórn þeirra í Sýrlandi og Írak. Krefjast samtökin nú þess að vera aðeins þekkt sem „Hið íslamska ríki“. Segja samtökin að ríkið nái allt frá Aleppó í Norður-Sýrlandi og til Diyala-héraðs í Austur-Írak. Þá segir í yfirlýsingunni að leiðtogi samtakanna muni einnig verða leið- togi hins nýja ríkis og verði héðan í frá þekktur sem Ibrahim kalífi. Átök standa enn yfir í borginni Tíkrit, sem samtökin náðu á sitt vald 11. júní. Öryggissveitir Íraka hófu gagnárás á borgina á laugar- dag og eru Írakar vongóðir um að ná borginni aftur. Rússneskar orr- ustuþotur eru nú komnar til lands- ins, en ekki er að fullu ljóst hver skuli fljúga þeim til orrustu, þar sem Írak býr ekki yfir neinum flug- her að ráði. Kalífat hlaðið ríkri merkingu Íslömsk kalíföt hafa verið við lýði allt frá dauða Múhameðs spámanns á 7. öld og í raun má rekja skiptingu múslima, í hóp sjíta og súnníta, til deilna um hver skyldi verða eftir- maður Múhameðs sem kalífi allra múslima. Síðasta kalífatið leið undir lok árið 1924, kalífat Ottómana. All- ar götur síðan hefur stofnun kalífats verið markmið herskárra súnní- múslima í Mið-Austurlöndum. Kynslóðir súnníta hafa látið sig dreyma um þá stund þegar nýtt kal- ífat rís úr þeirri ringulreið og ör- væntingu sem ríkir í Mið-Austur- löndum, og „múslimar hrista af sér ryk smánar og niðurlægingar,“ líkt og talsmaður samtakanna komst að orði. Þessi stofnun kalífatsins er því hlaðin ríkri merkingu í trúar-, menningar- og sögulegum skilningi. Afdráttarlaus skilaboð Samtökin nota nútímatækni óspart til að koma boðskap sínum á framfæri. Sendu þau í gær frá sér myndband þar sem sjá má jarðýtur leggja í rúst landamærastöðvar sem stóðu á landamærum Sýrlands og Íraks. Þessar aðgerðir eru skýrt tákn um einbeittan vilja samtak- anna til að stofna sitt eigið ríki. Flestir múslimar munu þó aðeins líta á hið nýja kalífat sem lítilsverð- an afrakstur yfirgengilegra blóðsút- hellinga. En því verður ekki neitað að með því að afmá þessi landa- mæri, sem urðu til á skrifborðum nýlenduveldanna, eru gefin afdrátt- arlaus skilaboð sem eru til þess fall- in að laða að alla þá múslima sem vilhallir eru málstaðnum. Kalífat stofnað í Írak  Nær yfir stór landsvæði í Sýrlandi og Írak  Öryggissveitir Íraka reyna að ná Tíkrit á sitt vald  Ýtur leggja landamærastöðvar í rúst  Írak skortir flugmenn AFP Fórnfúsir Sjálfboðaliðar taka þátt í herþjálfun. Þúsundir hafa boðið sig fram í baráttunni gegn ISIS-samtökunum. Löng saga kalífata » Fyrsta kalífatið var stofnað árið 632 eftir dauða Múham- eðs spámanns. » Síðasta kalífatið leið undir lok árið 1924 við hrun veldis Ottómana. » Kalífat hefur einn pólitísk- an og andlegan leiðtoga, kalífann. FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 2014 Íbúar í Hong Kong búa sig nú undir mestu mótmæli borgarinnar í rúman áratug, eftir að niðurstöður voru birtar úr opinberri atkvæðagreiðslu um stjórnarfar. Tæp milljón manns kaus fullt lýðræði í atkvæðagreiðsl- unni og þykir líklegt að það valdi aukinni óánægju með það stjórnar- far sem ríkir nú undir kínverskum yfirvöldum. Í dag fer fram hin árlega 1. júlí ganga, sem markar afmæli þess þegar landsvæðinu var skilað frá Bretum til Kínverja árið 1997. Mun gangan í ár leggja áherslu á að þrýsta á stjórnvöld í Peking til að veita íbúum borgarinnar fullt lýð- ræði til að kjósa sér fulltrúa í stjórn. „Það er augljóst að yfirvöld í Pek- ing eru að grafa undan sjálfræði Hong Kong, og við viljum sýna að við erum óhrædd við þeirra mið- stýrðu kúgun,“ segir Johnson Yeung, einn skipuleggjenda göngunnar í dag. Stjórnvöld í Kína hafa leyft íbúum Hong Kong að halda lýðræðislegar kosn- ingar árið 2017 til að kjósa sér full- trúa. Mun kínversk nefnd þó sjá um að velja þau nöfn sem fá að birtast á kjörseðlinum. Er þetta fyrirkomulag meðal þess sem íbúarnir mótmæla í göngunni í dag. Hvatning Fólk var hvatt til að kjósa. Valdi Kínverja mót- mælt í Hong Kong  Mótmæla ólýðræðislegu stjórnarfari Fjögur hundruð sjóliðar rúss- neska sjóhersins eru nú komnir til Frakklands til að hljóta þjálfun. Mun þjálfunin fara fram í öðru þeirra tveggja herskipa sem Frakkland hyggst selja Rússlandi, þrátt fyrir gagnrýni Bandaríkjanna. Sjóliðarnir munu eyða sumrinu um borð í skipinu til að læra á öll tæki og tól sem það hefur upp á að bjóða. Francois Hollande Frakklands- forseti heldur því fram að við- skiptaþvinganir Evrópuríkja á Rússland nái ekki yfir hern- aðartæki. Segir hann einnig að samningurinn, sem nemur 1,2 millj- örðum bandaríkjadala, sé of stór til að hægt sé að rifta honum. Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur lýst yfir áhyggjum af sölunni, segir hann að í ljósi ástandsins í Úkraínu væri ákjósanlegra að stöðva framgöngu samningsins í bili, jafnvel þótt það hefði áhrif á efnahag Frakklands. Skipið verður afhent í október og það næsta að ári liðnu, en samningurinn var undirritaður árið 2011. Sjóliðar Rússa fá þjálfun í Frakklandi Francois Hollande FRAKKLAND Nýjar rann- sóknir hafa leitt í ljós að Indónesía hefur misst 60 þúsund ferkíló- metra af skógi á síðustu tólf ár- um. Hefur um- fang skógar- höggs aukist það mikið að Indónesía hefur tekið fram úr Brasilíu hvað varðar fjölda trjáa sem höggvin eru á ári hverju. Árið 2011 undirritaði ríkisstjórn landsins stefnuyfirlýsingu sem var til þess gerð að hægja á skógar- höggi í landinu. Vísindamenn segja hins vegar að spilltir stjórnmálamenn séu gjarnir á að selja stór svæði þakin regn- skógum fyrir skjótan gróða. Þeir benda á að þörf sé fyrir eftirlit og aðgerðir til varnar regnskógum landsins. Stjórnvöld í Noregi hafa skuld- bundið sig til að gefa milljarð bandaríkjadala til Indónesíu ef yfir- völd landsins geta sýnt að þeim sé alvara með að vilja stöðva skógar- högg. Hefur Noregur nú þegar eytt 50 milljónum bandaríkjadala í að setja á fót stofnanir í landinu til að vernda regnskógana. Heimsins viðamesta skógarhögg INDÓNESÍA Eftir að David Cameron skoraði á leiðtoga ríkja Evrópusambandsins að halda kosningar um næsta forseta framkvæmdastjórnar sambandsins hafa menn haft áhyggjur af því að gjá hafi myndast á milli Bretlands og hinna aðildarríkjanna. Cameron er yfirlýstur andstæðingur Jean-Claude Junckers, sem hlaut atkvæði allra nema tveggja aðildarríkja í kosning- unni. Hefur Cameron varað við því að Juncker muni stefna að frekari sam- runa innan sambandsins, sem hann telur ógnvænlega þróun. Margir telja Breta einangraða eftir framgöngu Camerons. Joaquin Almunia, varaforseti framkvæmdastjórnar ESB, sagði í viðtali við BBC í gær að Juncker myndi ekki erfa þá andstöðu sem Cameron hefur sýnt honum. Juncker væri vanur stjórnmálum og þó hann væri mikill Evrópusinni þá væri hann á sama tíma maður raunsæis og málamiðlana. Almunia vildi þannig slá á áhyggjur margra um að Junc- ker myndi einskis svífast í frekari sameiningu aðildarríkjanna. Úrsögn Breta óhugsandi Fjármálaráðherra Þýskalands, Wolfgang Schäuble, segir að óhugs- andi sé að Bretar segi sig úr ESB. „Við höfum sömu áherslur í flestum málefnum. Bretland er óaðskiljan- legur hluti af Evrópu, hvort sem litið er til sögu, stjórnarfars, lýðræðis eða menningar,“ segir Schäuble. Engin gjá myndaðist  Margir telja Breta hafa einangrast eftir áskorun Came- rons um forsetakjör  Þjóðverjar vilja Breta innan ESB AFP Umdeildur Juncker verður brátt forseti framkvæmdastjórnar ESB. Ítölsk yfirvöld fundu um 30 lík flótta- manna um borð í fiskibáti sem ítalska strandgæslan stöðvaði. Áhöfn strand- gæsluskipsins fann líkin þegar hún fór um borð til að rýma bátinn eftir að neyðarkall hafði borist um slæmt ástand einhverra farþega, en þar á meðal voru tvær ófrískar konur. Dánarorsök hinna látnu er talin vera köfnun, en alls voru tæplega 600 flóttamenn um borð í bátnum. Var báturinn á leið til Sikileyjar frá Norður-Afríku þegar strandgæslan stöðvaði för hans. Í tilkynningu frá ítalska sjóhernum segir að um helgina hafi hann bjargað meira en fimm þúsund flóttamönnum á leið frá Afríku. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem strandgæslan finnur lík um borð í yfirfullum bátum flóttamanna en aldrei áður hafa jafnmörg lík fundist um borð í einum bát. Fiskibáturinn var dreginn til hafn- ar á Sikiley, en nú hafa yfir 60 þúsund flóttamenn komið til Ítalíu það sem af er ári. Þá bendir allt til þess að flótta- menn verði enn fleiri í ár en 2011, þeg- ar 63 þúsund flóttamenn komu til landsins í kjölfar borgarastyrjaldar í Sýrlandi. AFP Mannþröng Ítalir hafa aldrei fundið jafnmarga flóttamenn um borð í bát. Flóttamenn streyma til Ítalíu  Um 30 köfnuðu um borð í fiskibáti  Sextíu þúsund flóttamenn á árinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.