Morgunblaðið - 01.07.2014, Page 19

Morgunblaðið - 01.07.2014, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 2014 Á háum hjólhesti Stúlka hjólar á fullorðinshjóli niður Bankastræti, með hjálm og hanska eins og vera ber. Árni Sæberg Ákvörðun sjávar- útvegsráðherra um flutning Fiskistofu frá Hafnarfirði til Akur- eyrar er gjörræðis- skref sem hafa mun þveröfug áhrif við yfir- lýstan tilgang og vinna gegn skynsamlegri dreifingu opinberra starfa utan höfuðborg- arsvæðisins. Þessi hreppaflutningur opin- berrar stofnunar þar sem nú vinna um 40 starfsmenn er sá stórtækasti sem dæmi eru um í seinni tíð. Um hliðstæða gjörninga einstakra ráð- herra fyrr á árum sagði ég fyrir hálfum öðrum áratug: „Núverandi handahóf þar sem einstakir ráð- herrar skáka með illu eða góðu ein- stökum stofnunum á sínu valdsviði út á land snýst fyrr en varir gegn landsbyggðinni. Ólíkt ráðlegra er að hlúa að svæðisbundinni starfsemi, fjölga meðal annars störfum á sviði rannsókna, mennta- og heilbrigð- ismála þar sem þeirra er augljós þörf og draga um leið úr yfirbygg- ingu hins opinbera í höfuðstaðnum.“ (DV, 6. júní 2000) Tilefnið þá var m.a. umdeildur flutningur Land- mælinga Íslands upp á Akranes 1999, en að honum stóðu sem ráðherrar Össur Skarphéðinsson 1993 og síðan Guð- mundur Bjarnason. Grundvallarmistök í skipan stjórnsýslu Flumbrugangurinn sem nú er endurvakinn gefur tilefni til að rifja upp nokkur grundval- lamistök sem gerð hafa verið í stjórnsýslu hér- lendis síðasta ald- arþriðjung og varða af- nám sýsluskipunar og verkaskiptingu ríkis og sveitarfé- laga. Upp úr 1980 var mikið rætt um að koma á fylkja- eða hér- aðaskipan hérlendis, svipaðri þeirri sem tekin hafði verið upp annars staðar á Norðurlöndum. Um slíka skipan tókst ekki pólitísk samstaða hérlendis í tíð þáverandi rík- isstjórnar Framsóknar- og Sjálf- stæðisflokks 1986, samhliða setn- ingu nýrra sveitarstjórnarlaga. Við meðferð þess máls á Alþingi flutti ég breytingartillögur sem gerðu m.a. ráð fyrir eftirfarandi: „Sett skal á fót nýtt stjórnsýslustig, hér- uð, milli ríkis og sveitarfélaga til að treysta byggð í landinu, koma á virku lýðræði og dreifa valdi frá ríki til landshluta.“ (Þingskjal 545, breytingartillögur við 54. mál á 108. löggjafarþingi) Tillögunum fylgdi sérstakur kafli um skiptingu lands- ins í átta héruð með héraðsþingum sem kosið væri til beinni kosningu á viðkomandi svæði samhliða sveit- arstjórnarkosningum. Tillögur þess- ar voru felldar og þess í stað sett inn óljós ákvæði um héraðsnefndir og byggðasamlög, sem samstarfsvett- vang fyrir sveitarstjórnir. Jafnhliða var tekið til við að knýja á um stækkun og fækkun sveitarfélaga. Forsendur dreifðrar stjórnsýslu Nýtt stjórnsýslustig hefði leyst mikinn vanda og orðið þýðing- armikil viðspyrna í byggðamálum. Um það sagði ég í áður tilvitnaðri blaðagrein: „Með fimm fylkjum fengist svæðaskipting sem auðvelda myndi stórum landfræðilega dreif- ingu opinberrar stjórnsýslu, sem ekki næst nema að takmörkuðu leyti á grunni sveitarfélaga. Fylkin væru nægilega stórar einingar til að byggja upp stjórnsýslu ríkisins á öll- um helstu málasviðum og hún fengi um leið bakhjarl í fylkisþingunum. Núverandi viðleitni til að flytja stofnanir hins opinbera sem gegna miðstöðvarhlutverki frá Reykjavík út á land leysir lítinn vanda og vinn- ur um margt gegn skynsamlegri stjórnsýslu. Miklu vænlegra er að hlúa að svæðisbundinni uppbygg- ingu í helstu málaflokkum og færa með því þjónustuna nær fólkinu. Það yrði jafnframt til að fjölga sér- menntuðu fólki á landsbyggðinni.“ Meingölluð kjördæmaskipan Ekki bætti úr skák kjördæma- skipanin sem innleidd var með lög- um nr. 24 árið 2000 og við búum enn við. Þá urðu m.a. til þrjú risastór landsbyggðarkjördæmi, þvert á gömul stjórnsýslumörk og þáver- andi starfssvæði landshlutasamtaka sveitarfélaga sem náð höfðu að festa sig í sessi. Jafnframt var Reykjavík skipt upp í tvö gervikjördæmi til að þóknast tölfræðikúnstum höfunda þessa furðuplaggs. Ég var í hópi ör- fárra þingmanna sem vöruðu við þessum gjörningi en líklega er nú flestum, sem láta sig varða íslenska stjórnskipan, orðið ljóst, hversu illa var hér að verki staðið. Ásamt þá- verandi stjórnarflokkum lagði ný- stofnuð Samfylking blessun sína yfir þennan gjörning. Með honum voru m.a. höggvin sundur umdæmi sveit- arstjórnarsambanda á Norðurlandi og Austurlandi og þannig bætt gráu ofan á svart varðandi sveitarstjórn- arstigið sem grunn fyrir skyn- samlega valddreifingu. Snúum frá villu vegar Fleirum en mér hlýtur að vera ráðgáta hvað fær ráðherra til að standa fyrir þessum nýjustu hreppaflutningum. Sjálfur hefur sjávarútvegsráðherra ekki sett fram nokkur frambærileg rök, en segist þó um leið skilja áhyggjur viðkom- andi starfsmanna. Þótt stjórnskipan okkar sé meingölluð, eins og hér hefur verið að vikið, eru fjölmörg svæðisbundin verkefni og stofnanir á vegum ríkis og sveitarfélaga úti um land sem stjórnvöld gætu nú þegar stutt við með fjárveitingum og mannafla, m.a. til að bæta úr nið- urskurði í kjölfar hrunsins. Nátt- úrustofur í landshlutunum geta strax bætt við sig verkefnum sem og þekkingarsetur víða um land, að ekki sé minnst á grunnþjónustu heilbrigðisstofnana. Langvinn átök um vanhugsaða hugmynd eins og flutning Fiskistofu eru það sem landsbyggðin þarf nú síst á að halda. Eftir Hjörleif Guttormsson » Langvinn átök um vanhugsaða hug- mynd eins og flutning Fiskistofu eru það sem landsbyggðin þarf nú síst á að halda. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Um hreppaflutninga opinberra starfsmanna og ótæka stjórnskipan Líklega verður að við- urkenna að lífeyrismál þykja almennt ekki sérlega spennandi viðfangsefni, þó að við sem störfum að þess- um málum eigum bágt með að skilja það. Ungt fólk á það til að missa meðvitund um leið og minnst er á líf- eyrismál en svo þegar nálg- ast fer lífeyrisaldur er eins og kvikni ljós. Oft er þá orð- ið of seint að gera eitthvað í málunum. Staðreyndin er sú að því fyrr sem hugað er að því að leggja fyrir til efri áranna, þeim mun betra. Ein- staklingur sem leggur 4% af 300 þúsund króna mánaðarlaunum í viðbótarlífeyrissparnað og fær 2% mótframlag frá launagreiðanda fær 18 þús- und krónur í séreign mánaðarlega. Við- komandi leggur hins vegar sjálfur aðeins til um 7.500 krónur ef tekið er tillit til skatta, þar sem hann nýtur skattfrelsis í byrjun. Tekjuskattur er ekki greiddur fyrr en við útgreiðslu. Mjór er mikils vísir. Mánaðarleg greiðsla upp á 18 þúsund krónur gæti margfaldast með tímanum. Ef við gefum okkur að árleg ávöxtun sé 3,5% á þessi einstaklingur 6,2 milljónir eftir 20 ára sparnaðartíma. Ef hann nær að leggja fyrir í 40 ár er þessi fjárhæð orðin 18,6 milljónir. Með hærri ávöxtun hækka töl- urnar að sama skapi. Með 7% ávöxtun og 40 ára sparnaðartíma erum við komin upp í 44,7 milljónir. Þetta er auðvitað ekki fast í hendi eins og gefur að skilja en ætti þó að nægja til að vekja fólk til umhugsunar. Mótframlag, skattahagræði og erfanleiki Viðbótarlífeyrissparnaður er eitthvert þægilegasta sparnaðarform sem til er. Launagreiðandinn sér um mánaðarlegar greiðslur launþega auk þess sem hann leggur aukalega fram 2% mótframlag. Þá er ekki greiddur fjármagnstekjuskattur á sparnaðartímanum eins og raunin er með reglulegan sparnað, en þar getur munað verulegum fjárhæðum, ekki síst eftir ný- lega tvöföldun á hlutfalli fjármagns- tekjuskatts. Séreignin er laus við 60 ára aldur en fæst greidd út fyrr komi til ör- orku. Við andlát erfist sér- eignin samkvæmt erfðalög- um og er þá ekki greiddur erfðafjárskattur ef erfingjar eru maki eða börn. Leiðréttingin Ofan á þetta allt saman kemur svo „leiðréttingin“, sem heimilar skattfrjálsa greiðslu viðbótarlífeyris- sparnaðar næstu þrjú árin inn á höfuðstól íbúðalána eða til húsnæðissparnaðar. Skattfrelsið takmarkast við 4% framlag launþega og 2% framlag launagreiðanda og er að hámarki 500 þúsund krónur á ári hjá ein- staklingum og 750 þúsund krónur hjá einstaklingum sem uppfylla skilyrði til samsköttunar. Þeir sem ekki hafa verið að greiða í viðbótarlífeyr- issparnað ættu alvarlega að huga að því að ráða þar bót á, þó ekki væri nema til þess að nýta sér „leiðréttinguna“ og skattfrelsið sem henni fylgir. Ætlar þú að hækka í 4%? Frá og með 1. júlí gefst starfandi ein- staklingum kostur á að leggja 4% af laun- um í viðbótarlífeyrissparnað í stað 2% undanfarin ár. Mótframlag launagreið- enda verður 2% eins og áður. Mikilvægt er að ganga úr skugga um það hjá vörslu- aðila lífeyrissparnaðar eða launagreið- anda að iðgjaldið hækki í 4% ef ætlunin er að nýta skattfrestun að fullu eða skatt- leysi í tengslum við „leiðréttinguna“. Ef samningur um viðbótarlífeyrissparnað miðaðist við 2% framlag á sínum tíma þarf að skrifa undir breytingu á samningi til að nýta 4% heimildina. Rétti tíminn til þess að huga að fjár- hagslegri stöðu, þegar aldurinn færist yf- ir, er í dag. Nú er kjörið tækifæri til þess að gera eitthvað í málunum, nýta sér 4% heimildina frá 1. júlí og „leiðréttinguna“ næstu þrjú árin. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Hugleiðið að nýta 4% heimildina frá 1. júlí Eftir Jón L. Árnason Jón L. Árnason » Viðbótarlíf- eyrissparn- aður er eitthvert þægilegasta sparnaðarform sem til er. Höfundur er rekstrarstjóri Lífeyrisauka, sem er stærsti og fjölmennasti sjóður landsins sem eingöngu býður upp á við- bótarlífeyrissparnað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.