Morgunblaðið - 01.07.2014, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.07.2014, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 2014 Kostnaður íslenska bankakerfisins hefur um langt skeið verið mun hærri en eðlilegt getur talist í sam- anburði við sam- keppnislöndin. Sam- fara minni umsvifum eftir hrun og auknum kröfum er lagt harðar að stjórnendum fjár- málafyrirtækja að uppfylla kröfur eigenda um arð- semi. Upplýsingatækni er einn af stærstu kostnaðarliðum í íslenskri bankastarfsemi. Kostnaður við upplýsingatækni nemur tæplega fjórðungi af rekstrarkostnaði stóru bankanna. Að viðbættum rekstrarkostnaði minni fjármála- fyrirtækja má reikna með að kostnaður bankakerfisins vegna upplýsingatækni hafi eftir hrun numið um 16 til 17 milljörðum króna árlega (Rit nr. 1/2011 Sam- keppniseftirlitið). Noti lausnir frá traustum alþjóðlegum fyrirtækjum Í þessari grein er bent á leiðir sem gætu flýtt fyrir lækkun upp- lýsingatæknikostnaðar bankakerf- isins. Hér er sérstaklega horft til þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað í tækniumhverfi banka hér- lendis, þegar greiðslumiðlunar- og greiðsluuppgjörskerfi Íslands voru færð í umsjá Greiðsluveitunnar, sem er í eigu Seðlabanka Íslands. Eignarhald þessara mikilvægu bankakerfa landsins var þá að- skilið frá öðrum kerfum sem bankar og aðrar fjármálastofnanir nota í sínum rekstri. Með þessum aðskilnaði kerfanna er fyr- irkomulagið sambærilegt við það sem gerist annars staðar á Norð- urlöndum. Þannig er íslenskum bönkum gert kleift að velja staðl- aðar, alþjóðlegar lausnir og sam- nýta með öðrum norrænum bönk- um. Þannig má skipta út lausnum sem þarfnast endurnýjunar og eru þungar í rekstri. Lykillinn að hagræðingu í bankakerfinu er samkeppni, en hér sem annars staðar gilda hin almennu lögmál samkeppninnar. Til að bankar geti lækkað rekstr- arkostnað upplýsinga- tæknikerfa þurfa þeir að hafa um fleiri kosti að velja þegar kemur að rekstri þeirra. Hagræðing og þar með lækkandi rekstr- arkostnaður getur náðst með samnýt- ingu þjónustu og lausna með öðrum fjármálastofnunum. Þá er það lykilatriði að bankar hafi úr að velja lausn- um og þjónustu frá fleiri en einum aðila. Samkeppni er nauðsynleg svo hagræðingin skili sér ekki ein- göngu í vasa þjónustuaðila sem eru með yfirburði á markaði. Nauðsynlegt er að bankar vandi vel fjárfestingar í nýjum tækni- lausnum og taki ekki áhættu við að aðlaga lausnir sjálfir, þegar aðrar sambærilegar lausnir fást með minni tilkostnaði. Bankar eiga að einbeita sér að banka- starfsemi og nýta sér aðgengi að þjónustu og þekkingu fyrirtækja sem bjóða lausnir á ásættanlegu verði. Heillavænlegast er að ís- lenskir bankar eins og aðrir nor- rænir bankar færi sig í lausnir sem þróaðar eru af traustum al- þjóðlegum fyrirtækjum sem sjá um að lausnirnar fylgi alþjóð- legum kröfum stofnana og eft- irlitsaðila, ásamt kröfum framtíðar til tækni. Íslenskir bankar eiga að líta út fyrir landsteinana, og þá sérstaklega til hinna Norður- landanna, þar sem þróunin er til- færsla úr eigin kerfum yfir í lausnir sem samnýttar eru með öðrum norrænum bönkum. Bankar á Norðurlöndum lækka kostnað vegna upplýsingatækni Á Norðurlöndum eiga sér nú stað miklar breytingar á því hvernig bankar haga sínum upp- lýsingatæknimálum. Æ fleiri bankar færa sig nú úr sérsmíð- uðum kerfum yfir í að kaupa að- gengi að lausnum sem þeir greiða fyrir eftir notkun. Þannig ná bankar að minnka upplýsinga- tæknikostnað umtalsvert. Áhugavert er að skoða hvernig þessi þjónusta er sótt til annarra landa. Þannig nýta fjölmargir sænskir bankar sér þessa þjón- ustu frá þjónustuaðilum í Dan- mörku og Noregi. Í dag stendur íslenskum bönkum til boða að- gengi að lausnum frá norrænum þjónustufyrirtækjum og samnýta þannig lausnir með öðrum sam- bærilegum norrænum fjármálafyr- irtækjum. Þetta á við um allar þær grunnlausnir banka sem eftir standa, þegar greiðslumiðlun og greiðsluuppgjör var fært til Greiðsluveitunnar. Lausnir eins og lánakerfi, innlánakerfi, veðtrygg- ingarkerfi, greiðslumiðlun, við- skiptamannaupplýsingar, netbanki o.fl. Þetta eru staðlaðar alþjóð- legar lausnir sem notaðar eru af fjölda banka um allan heim. Jafn- framt er mikil þekking á þeim til staðar á Íslandi. Með tilkomu Greiðsluveitunnar geta íslenskir aðilar einnig boðið þessar lausnir í samkeppni, fái hún að njóta sín. Þannig hafa ís- lenskir bankar í dag mun fleiri valkosti þegar kemur að endurnýj- un sinna upplýsingakerfa. Mik- ilvægt er að samkeppnin fái að njóta sín, því með minnkandi sam- keppni verður til aðili með yf- irburðastöðu á markaði sem með tíð og tíma ryður í burtu öðrum aðilum sem í dag þjóna íslenskum fjármálafyrirtækjum. Með sam- keppnina að vopni eiga íslenskir bankar nú þegar að hefja það hag- ræðingarstarf sem beðið hefur verið eftir og stuðla þannig að þjóðhagslegri hagkvæmni í efna- hagslífinu. Hagræðing í bankakerfinu næst með samkeppni Eftir Hinrik A. Hansen » Íslenskir bankar geta valið staðl- aðar, alþjóðlegar bankalausnir, samnýtt þær með öðrum nor- rænum bönkum og lækkað þannig rekstr- arkostnað umtalsvert. Hinrik A. Hansen Höfundur er framkvæmdastjóri erlendrar starfsemi Applicon, dótturfyrirtækis Nýherja. Ýmsir hafa sl. ár haft fremur ógæfu- legt viðhorf til lækna landsins. Hafa þau viðhorf þó rénað með fækkun í stéttinni vegna landflótta og töfum á end- urmönnun tengdri óafsakanlegum kjör- um og aðbúnaði. Ekki er þörf að tíunda skortinn á aðstöðu, húsakynnum og tækjum. Sum mjög gagnleg tól eru ekki einu sinni í umræðu hérlendis, til að mynda svonefnt PET-skann, sem nú þarf að fá gert í Danmörku og er því undirnýtt og rándýrt. Kjör lækna eru oft talin mjög þokkaleg, ef ekki til ofurlauna, jafnvel af ráðamönnum og -konum. Sannleikurinn er hinsvegar sá að heildarlaun lækna ná háum upp- hæðum vegna nokkurra þátta sem launafólk almennt myndi aldrei láta bjóða sér að hugsa um tvisvar. Þannig eru oft meira en hálf mánaðarlaun byggð á löngum vinnutíma, mest á vöktum. Þessum vöktum má hafna eftir 55 ára ald- urinn, en slíkt er ekki gerlegt nú vegna ekki bara lakra kjara án þeirra, heldur og vegna skorts á yngri kollegum til að standa vakt- ina. Öldrun sérfræðinga er hröð sl. 5-10 ár, útlært fólk kemur ekki heim og yngri heimkomnir fulln- uma læknar hrekjast af landi til að geta hvorutveggja nýtt sér þekk- ingu sína og til að þrauka. Enginn læknir vinnur 8 tíma á dag, á vaktlausum degi. 2-3 klukkustundir eru algeng viðbót daglega, ekki er hægt að ganga frá óloknum verkum, þau bíða manns og hlaðast upp og enda í ólestri. Þetta bitnar mest á skjólstæð- ingum, en ekki síður á andlegri heilsu og álagi okkar. Vaktir undirritaðs í núverandi föstu starfi eru 6 til 7 sólarhringar á mánuði. Ýmist er þá 24 tíma vakt, með 8 klukkustunda vinnu- degi eftir vakt (amk., sjá að ofan), eða helg- arvakt þar sem vaktin hefst að morgni föstu- dags en lýkur að morgni mánudags, við upphaf dagvinnu mánudagsins. Í öðrum störfum innan heilbrigðisgeir- ans hefur upplifunin verið enn tímafrekari. Þannig hefur reynslan sl. ár af nokkrum stöðum, sem eru nokkuð dæmigerðir fyrir ástandið almennt, verið frá að vera annan til þriðja hvern dag á vakt og jafnvel á dag- legum vöktum allan ársins hring. Ef ofurlaun lækna eru athuguð í ljósi þessarra staðreynda eru þau mögur. Ef slegið er upp dæmum fyrir aðra starfshópa með slíka vinnuskyldu í huga er útkoman vísbending um afar slök kjör lækna, nálægt því að skilgreina megi starfið sem láglaunastarf með engum eða mjög takmörk- uðum verkfalls- og almennum rétt- indum hins hefðbundna launa- markaðar. Því miður virðist sem föst laun lækna hafi fallið enn frekar með hinni ánægjulegu fjölgun kvenna í stéttinni sl. áratug. Hvers vegna er áleitin spurning, sem ekki er hægt að finna svör við auðveld- lega, en sjálfsagt á þar ójafnrétti launa kvenna almennt og ákvarð- anataka um laun lækna af karl- mönnum nokkurn hlut í skýr- ingum. Virðingarfyllst. Þóknun lækna Eftir Finnboga Karlsson Ólafur Unnar Sigurþórsson » Þannig eru oft meira en hálf mánaðarlaun byggð á löngum vinnu- tíma, mest á vöktum. Höfundur er sérfræðilæknir. Skálholt hefur um aldir verið partur af þjóðarsálinni. Svo er enn eins og sannast hefur á þeim mikla og maklega áhuga sem ópera Gunnars Þórð- arsonar hefur vakið, en í henni er fjallað um ástir í meinum á sjálfu biskupssetrinu, ástir þeirra Ragnheiðar og Daða. Sagt hefur verið að Ragnheið- ur hafi leikið á klavíkord en fátt er þó vitað um tónlistariðkun í Skálholti á öldum áður. Hitt er víst að nú er haf- in í fertugasta sinn ein elsta og um- fangsmesta tónlistarhátíðin á land- inu, Sumartónleikar í Skálholtskirkju, og í þetta sinn er hún ekki af lakara taginu. Í tilefni af fertugsafmælinu ljá norrænir sjóðir, samtök og listamenn hátíðinni lið. M.a. verða Sum- artónleikar vettvangur þriðju EAR- ly-keppninnar, norrænnar sam- keppni ungra tónlistarhópa sem leika forna tónlist á upprunaleg hljóðfæri. Þá er það sérstakt fagnaðarefni að margir þeir sem voru frumkvöðlar Sumartónleikanna koma nú fram. Meðal þeirra er Ann Wallström fiðlu- leikari sem kornung kom í Skálholt, sá og sigraði hjörtu áheyrenda. Síðan hefur hún orðið að einum helsta túlk- anda barokktónlistar í Svíaríki. Ann mun leika til minningar um Helgu Ingólfsdóttur semb- alleikara, stofnanda Sumartónleikanna, bæði að kvöldi 2. júlí og síðdegis hinn 5. júlí. Annar frumkvöðull er hollenski fiðluleikarinn Jaap Schröder, en eng- inn erlendur listamaður hefur lagt hátíðinni jafnmikið lið og hann. Svo eru það frumkvöðl- arnir Bachsveitin í Skál- holti og sönghópurinn góði, Hljómeyki. Stundum stendur styr um Skál- holt. Það sýnir að engum stendur á sama um staðinn, kirkjuna og sög- una. Nú er tækifæri til að gleðjast í Skálholti, njóta góðrar tónlistar á fögrum stað á hásumri. Um allt þetta má fræðast nánar á vefsíðunni www.sumartonleikar.is. Það verður tónaveisla í Skálholti allan júlímánuð og fram á versl- unarmannahelgi. Sem fyrr er að- gangur ókeypis. Stórhátíð að hefjast í Skálholti Eftir Þorkel Helgason Þorkell Helgason »Nú er hafin í fertug- asta sinn ein elsta og umfangsmesta tón- listarhátíðin á landinu, Sumartónleikar í Skálholtskirkju. Höfundur er stærðfræðingur og áhugamaður um málefni Skálholts. Fyrir kosningar sagðist Dagur vilja verða borgarstjóri allra Reykvíkinga. Út á það fékk hann í skoðanakönnum aukið fylgi, sem svo dalaði í kosningunum. Hafi þetta verið loforð þá var það svikið um leið og Dagur sagði fram- sóknarkonurnar – sem tóku frá honum fylgi – ekki stjórntækar. Þær eru nefnilega einu fulltrúar þeirra sem ekki vilja henda flugvellinum eða vill Dagur halda fram að þau 7% Reykvík- inga sem kusu þær séu rasistar? Svo eru hin 70% sem undirrituðu bænaskjal um að flugvöllurinn fengi að vera í friði. Ekki er Dag- ur borgarstjóri þeirra. Að útiloka umræðu um flugvöll- inn er gjörningur sem vekur þá spurningu hvort Dagur sé tækur sem stjórnhæfur borgarstjóri. Þessi valdníðsla bætist við fyrri gjörðir hans sem borgarstjóri á bak við tjöldin undir pilsfaldi Gnarrsins. Hann hefur t.d. verið helsti stuðningsmaður þess að byggja Háskóla- sjúkrahús við Hring- braut án þess að reikna dæmið til enda, skemmt um- ferðarflæði í borginni og vanrækt kynn- ingar á nýbyggingum í gömlum hverfum. Svo við höldum okkur við flugvöllinn þá gæti kostað mörg hundruð milljarða að flytja og byggja nýj- an flugvöll. Kostn- aður kemur í ljós þegar og ef Ragna finnur nýtt flugvallarstæði. Ríkið kostar byggingu nýs flug- vallar með skattpeningum allra landsmanna. Eðlilegt er að spurt sé hvort borgarstjórn Reykjavík- ur leyfist að sóa svona sameig- inlegum fjármunum fyrir bygging- arlóðir í mýri. Reikna má með að mest af svæðinu sé botnlaust mýrarfen – miður gott fyrir bygg- ingu húsa og gatna. Hefur verið kannað hver áhrif framræsla mýr- arinnar hefur á vatnsbúskap tjarnarinnar? Allir geta verið sammála um kosti þess að þétta byggð og því rétt að benda Degi á að gott byggingarland afmarkast af Ein- holti, Háteigsvegi, Lönguhlíð og Skipholti. Þar má byggja á bjargi og ekki í mýrarfeni. Húsin eru mest 70 ára gamlir tveggja hæða verkamannabústaðir með fjórum íbúðum. Hér liggur beint við að þétta byggð. Annar reitur með enn eldri húsum afmarkast af Snorrabraut, Njálsgötu og Rauð- arárstíg. Þann reit má stækka að- eins frá Rauðarárstíg inn á Klambratún. Verði sett í skipulag að fjöl- býlishús verði byggð á þessum reitum munu verktakar og fjár- festar – ef að líkum lætur – kepp- ast við að kaupa upp íbúðir á svæðinu og framhaldið kemur af sjálfu sér. Borgarstjórinn „okkar“ Eftir Sigurð Oddsson »Eðlilegt er að spurt sé hvort borgar- stjórn Reykjavíkur leyfist að sóa svona sameiginlegum fjármunum fyrir byggingarlóðir í mýri? Sigurður Oddsson Höfundur er verkfræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.