Morgunblaðið - 01.07.2014, Side 22

Morgunblaðið - 01.07.2014, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 2014 ✝ Edda Þórarins-dóttir fæddist í Reykjavík 14. ágúst 1936. Hún lést á Landspítalanum Vífilsstöðum 21. júní 2014. Foreldrar Eddu voru hjónin Þór- arinn Björnsson, póstfulltrúi frá Borgarfirði, f. 8.10. 1900, d. 24.7. 1959, og Ingiveig Eyjólfsdóttir, hús- freyja frá Keflavík, f. 31.7. 1902, d. 12.2. 1985. Líffræðilegir for- eldrar hennar voru Ólafur Ólafs- son veitingamaður frá Akranesi, f. 1897, d. 1965, og Helga Sigurð- ardóttir húsfreyja frá Ísafjarðar- djúpi, f. 1901, d. 1987. Börn Ólafs og Helgu og systkini Eddu voru: Elín, f. 1923, d. 2009, Magnús, f. 1925, d. 2011, Þórdís, f. 1926, d. 1995, Þorgeir, f. 1927, d. 2010, Sigurður Ingvi, f. 1929, Jensína, f. 1931, d. 2006, Guðrún, f. 1932, d. 1997, og Soffía, f. 1934, d. 2013. Hinn 4. júní 1960 giftist Edda Gunnari Friðjónssyni framreiðslumanni frá Reykjavík, f. 11.6. 1937. Þau slitu samvistir. Börn þeirra eru 1) Ingiveig, ferðamálafræðingur og leið- sögumaður, f. 9.11. 1960. 2) Þór- hávegum hafðar. Þórarinn, fað- ir hennar, var einn af stofn- endum Tónlistarfélagsins í Reykjavík og spilaði jafnframt á fiðlu í Hljómsveit Reykjavíkur. Edda gekk í Austurbæjarskól- ann og lauk framhaldsnámi við Gagnfræðaskóla verknáms árið 1953. Hún starfaði lengst af hjá Pósti og síma, fyrst á Póst- málaskrifstofunni í gamla Land- símahúsinu og síðar á pósthús- inu í Pósthússtræti. Edda lagði stund á píanónám í Tónlistarskólanum í Reykjavík og þótti efnileg. Hún hafði yndi af tónlist og söng. Hún elskaði ferðalög og átti þess kost að ferðast víða um heiminn hin síð- ari ár með dóttur sinni. Í maí 1959 fetaði Edda í fót- spor móður sinnar, Ingiveigar Eyjólfsdóttur, og gekk í Odd- fellowregluna, í Rebekkustúku nr. 1, Bergþóru. Hún var virk í Oddfellowstarfinu og færði það henni mikla gleði. Það var Eddu og fjölskyld- unni mikið áfall þegar hún að- eins 29 ára gömul greindist með iktsýki. Á þeim tíma var sjúk- dómurinn lítt þekktur og fátt um lyf til að meðhöndla hann. Edda var meðlimur í Gigt- arfélagi Íslands og fylgdist vel með rannsóknum og þróun gigt- arsjúkdóma alla sína tíð. Útför Eddu fer fram í dag, 1. júlí 2014, frá Hallgrímskirkju í Reykjavík og hefst athöfnin kl. 15. arinn Gunnarsson, tölvutæknimaður, f. 17.9. 1964, kvæntur Álfhildi Sylvíu Jóhanns- dóttur, dagforeldri, f. 26.8. 1964. Börn þeirra eru: Jóhann Gunnar, lögfræð- ingur, f. 18.9. 1987, í sambúð með Guð- rúnu Ástríðardótt- ur nema; börn þeirra eru Írena Rún og Ásta Sylvía; Daníel Ingi, f. 15.3. 1989, verslunarmaður, í sambúð með Elsu Einarsdóttur, skrifstofu- manni; Edda Þórunn, f. 20.9. 1996, nemi. 3) Friðjón Björgvin, framkvæmdastjóri, f. 2.10. 1976, kvæntur Hörpu Hlynsdóttur, matvælafræðingi, f. 4.8. 1977. Börn þeirra eru: Arna Björg, f. 10.12. 2004; Bríet María, f. 19.8. 2008, og Agnes Inga, f. 24.8. 2013. Edda ólst upp í Reykjavík og bjó lengst af á Karlagötu 11 í húsi sem foreldrar hennar byggðu árið 1937. Hin seinni ár var hún búsett í Bláhömrum 4 í Reykjavík. Hún ólst upp við ást- ríki foreldra sinna á miklu menningarheimili þar sem klassísk tónlist og listir voru í Í dag kveð ég ástkæra móður mína, Eddu. Ég er fyrst og fremst þakklátur fyrir þann góða tíma sem við fengum sam- an á þessari jörð en einnig allar góðu minningarnar um góða móður og vinkonu. Móðir mín ól upp þrjú börn en þegar hún var 29 ára fékk hún liðagigt. Hún tók því eins og hverju öðru hundsbiti, hélt sínu lífi áfram með stuðningi ástvina sinna og fjölskyldu, þótt sjúkdómurinn væri henni þungbær. Árið 2011 greindist hún með krabbamein og þrátt fyrir hetjulega baráttu hennar fram á síðasta dag dugði það ekki til. Mamma tók veik- indum sínum ætíð af miklu æðruleysi, svo eftir var tekið. Hún er okkur sem eftir stöndum mikil og sterk fyrirmynd. Nú hefur mamma bæst í hóp þeirra er vaka yfir okkur hinum og leiðbeina í ferðalagi okkar gegnum lífið. Ef einhver er efni í góðan engil, þá er það mamma mín. Ef ekki er laust pláss í því, þá var hún ofboðslega góð hús- móðir og góður kokkur, nokkuð sem alls staðar kemur að góðum notum. Svo má hún líka alveg fá smáfrí, hún á það skilið. Mamma elskaði barnabörnin sín og barnabarnabörnin. Hún var svo glöð að hafa fengið að kynnast þeim öllum. Eins og allir vita, sem þekkja til okkar, erum við bræðurnir óhemju stríðnir og þykjum hafa ágætis húmor. Við höfum alla tíð tengt þetta gen við móður okkar en hún var mikill húmoristi og gerði í því að æsa upp í okkur prakkaraskap- inn. Mamma gat hlegið enda- laust að hrekkjum okkar en það sem var líka svo skemmtilegt var húmorinn sem hún hafði fyr- ir sjálfri sér. Mamma vissi að með því að hlæja og gera alltaf gott úr hlutunum væri hægt að komast í gegnum alls kyns erf- iðleika. Þetta er ein af mikilvæg- ustu lexíunum sem hún skilur eftir sig. Mamma elskaði okkur systkinin og tók okkur eins og við erum. Þegar hún hafði eitt- hvað við okkur að athuga kallaði hún það að siða okkur til. Systk- ini mín, sem nú eru orðin há- öldruð, voru nú bara siðuð til fyrir stuttu. Ég var alltaf í uppáhaldi hjá mömmu, enda yngstur og alltaf svo góður. Mamma sagði það reyndar oft að tíminn sem hún gekk með mig hefði verið sá besti í hennar lífi þar sem hún hefði verið al- veg verkjalaus þennan tíma. Ég hef að sjálfsögðu alltaf tekið þessu sem svo að ég hafi verið og sé mikill verkjastillir og gleðigjafi. Ég mun minnast móður minnar sem sterkrar konu sem tók öllu mótlæti af hörku og krafti, hún naut lífsins lystisemda, elskaði að ferðast og borða góðan mat, drekka góð vín og hlæja í faðmi góðra vina og ættingja. Hún elskaði börn og dýr, Jessicu Fletcher, Mat- lock, Poirot og Derrick. Hún elskaði lestur góðra bóka, áhorf góðra kvikmynda og krossgátur. Hún var afbragðspenni og ræðumaður góður. Hún var vin- mörg og góð heim að sækja. Hún var gull af manni. Læknar mömmu voru Jón Þorsteinsson og Gerður Gröndal. Ég vil þakka bæði Jóni og Gerði fyrir þá vináttu og umhyggju sem þau sýndu mömmu alla tíð. Hún lýsti því oft hve ánægð hún væri með læknana sína. Ég vil einnig þakka læknum, hjúkrunarfræð- ingum, sjúkraliðum og öðru starfsfólki Landspítala Hring- braut og Vífilsstöðum fyrir frá- bæra umönnun og þá umhyggju sem þau sýndu móður minni í veikindum hennar. Ég vil að lokum þakka Guði fyrir að gefa mér yndislega móður, sem ég mun sakna meira en orð fá lýst. Friðjón B. Gunnarsson. Elsku mamma mín, þú varst fyrirmyndin mín í lífinu, klett- urinn minn, helsti ráðgjafi og besti vinur. Þú kysstir á sárin og baðst mér Guðs blessunar. Ég sakna þín óumræðilega mik- ið. Megi ljósið, kærleikurinn og blessun Guðs umvefja þig um ei- lífð og englar Guðs vaka yfir þér. Þar til við hittumst á ný. Hvað er mýkra en móðurhöndin kær og mildara en hún að lækna sárin. Og nú er þungur harmur hugann slær já hver á þá að strjúka burtu tárin. Þó hlýja móðurhöndin væri smá, hún hafði styrk að miðla öllu góðu. Það munu fáir greina götu þá né ganga í spor sem nettir fætur tróðu. Fjölskyldan þín eftir stendur ein þá eins og nakin björk í köldum heimi. Það skjól og ást sem alltaf frá þér skein þó enn er kjölfestan í tómum geymi. Það er sem hafi slokknað leiðarljós sem leiðarstjarna hverfi í myrku kafi. Sem hafi fölnað, kulnað kærleiksrós sem kveikur ankersfestar slitnað hafi. Sumir vildu sjálfsagt fylgja þér til sumarlands að baki lífs og gröfum. En við sem lifum erum ennþá hér og eigum því að hlíta þessum töfum. Og jafnvel þó að enn sé allt svo hljótt, við eigum ljós í minninganna sjóðum. Við getum alltaf ylinn þangað sótt frá æsku og bernsku hlýjum dögum góðum. Og guð á himnum hann mun gæta þín og hann mun líka þerra sorgartárin. Hann mun þér líka leyfa móðir mín að leggja hönd á dýpstu tregasárin. Og þú munt líka horfa himni frá og hafa gát á framtíð þinna barna. Og sendir kveðju er svefninn lokar brá að sætta okkur við þinn bústað þarna. Og guð á himnum hann mun gæta þín, hann kann að meta störf þín hér á jörðu. Hann kallar til sín bestu börnin sín og ber þau út úr jarðarlífi hörðu. Hann leiðir þau í ljósið upp til sín og ljúfur engill brautina þér vísar. Vertu sæl, nú guð mun gæta þín og greiða þína för til Paradísar. (Guðný Jónsdóttir.) Þín Ingiveig. Elsku dásamlega tengdamóð- ir mín er látin. Okkar kynni hófust ansi snemma eða þegar ég á nítjánda ári var í sambandi við son henn- ar, Þórarin, sem í dag er eig- inmaður minn og besti vinur. Ég man þegar ég sá tengda- móður mína fyrst, svo stressuð og óörugg. Þess þurfti ég nú ekki, þar sem strax beið mín frá fyrstu kynnum hlýr faðmurinn. Á árum áður komum við okk- ur oft fyrir í kósí sjónvarpsher- berginu og horfðum á marga frábæra þætti saman ég og Edda, en það var ekki nóg að horfa á einn þátt í seríunni, þeir urðu alltaf tveir eða þrír, spenn- an var svo mikil að við gátum ekki hætt. Auðvitað urðum við að hafa súkkulaðið okkar og kókið, annars var stemningin ekki næg. Það var svo margt sem við gátum talað saman um og ég gat sagt henni frá öllu, alltaf skildi hún mann. Hugsa sér að eignast tengdamömmu og vinkonu í sama pakkanum, hversu frábært er það! Eitt af því sem hún fékk aldr- ei nóg af voru pönnukökur, sem var það síðasta sem ég bakaði fyrir hana og færði henni. Hún bakaði svo góðar tertur, sem biðu stundum þegar þreyttir ferðalangar komu heim. Hún elskaði að heyra ferða- sögurnar og tala um sín eigin skemmtilegu ferðalög. Hún ferðaðist mikið með Ingiveigu, dóttur sinni, sem var henni svo mikil gleði og ánægja. Þegar við Þórarinn eignuð- umst okkar fyrsta barn var það eins og prins aldarinnar hefði fæðst. Hún hjálpaði mér í und- irbúningnum, hringdi oft, kom oft að kíkja, tók þvott í leiðinni og straujaði. Þótt ég segði að hún þyrfti alls ekki að gera þetta tók hún ekki annað í mál. Hún var ávallt tilbúin að hlusta og gefa mér ráð þegar ég, óörugg móðirin, leitaði til henn- ar, svo mikil stoð og stytta. Hún var svo mikil amma og gaf sig alla í hlutverkið. Þær voru ófáar stundirnar sem Edda, dóttir okkar, hringdi í hana, bara að leita ráða, segja henni frá atburðum dagsins eða öðrum málum. Stundum var farið í sumarbú- staðaferðir og það voru frábærir tímar sem við nutum þess að vera saman og gera fullt af skemmtilegum hlutum. Hún gat verið svo mikill grallari og hló oft manna hæst þegar verið var að segja frá ein- hverjum prakkarastrikum, en svo þóttist hún ekkert hafa gert, ef einhver grunaði hana, og hló. Edda hafði gaman af því að spila hér áður en núna seinni ár þegar fjölskyldan hittist á jólum og tekið var upp spurningaspilið ákvað hún að fylgjast bara með okkur. Það gat hún þó ekki, því þegar spurningin var lesin upp var hún komin með svarið áður en nokkur fékk rönd við reist. Bráðgáfuð og falleg kona að utan sem innan. Ég gæti haldið endalaust áfram, því það er frá svo mörgu að segja, en ég mun geyma það í hjarta mínu. Mikið sakna ég elsku tengda- móður minnar, það var mikið ríkidæmi að taka þátt í lífinu með henni og fyrir það verð ég ávallt þakklát. Megi Guð styrkja börnin hennar og halda þétt utan um þau. Hvíl í friði elsku hjartans Edda mín. Álfhildur Sylvía Jóhannsdóttir. Amma mín, hún Edda Þór- arinsdóttir, var frábær mann- eskja. Þegar ég minnist hennar og minna tíma með henni þá kemur fram í hugann mikill kærleikur og vellíðan. Þrátt fyrir að þjást af liðagigt og öðrum óheppilegum veikind- um var hún amma alltaf hress og kát þegar heimsókn bar við. Brosið hennar var einkennandi og hláturinn sem iðulega fylgdi í kjölfarið vakti hjá manni mikla kátínu. Hún vildi manni alltaf það besta og stóð sig hreint út sagt frábærlega í ömmuhlut- verkinu; það var henni eðlislægt að sjá um okkur barnabörnin, hvort heldur þegar kom að því að fylla maga okkar eða að láta okkur líða vel í sinni viðveru. Af því gefur að skilja að það var Edda Þórarinsdóttir ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR HREIÐAR ÁRNASON, Sóltúni 13, lést á Landspítalanum föstudaginn 20. júní. Útför verður frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn 1. júlí, kl. 15.00. Blóm afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarsamtök. Magnúsína Guðmundsdóttir, Guðmundur Ólafsson, Lára Erlingsdóttir, Sjöfn Ólafsdóttir, Erlingur Hjaltason, Guðrún Ólafsdóttir, Magnús Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, VILHJÁLMUR GUÐNASON, fyrrum bóndi í Litlu-Breiðuvík, til heimilis að Austurbrún 37A, Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 25. júní. Útförin fer fram í Áskirkju föstudaginn 4. júlí kl. 13.00. Hallgerður Stefánsdóttir, Viðar Vilhjálmsson, Guðrún Jóna Melsteð, Vilhjálmur Guðni Vilhjálmsson, Sesselja Ósk Vignisdóttir, Sigurbjörn Stefán Vilhjálmsson, Berglind Scheving, Magnús Vilhjálmsson, afabörn og langafabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ARNAR ÖRLYGUR JÓNSSON, lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund miðvikudaginn 25. júní. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 4. júlí klukkan 15.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á að styrkja Slysavarnarfélagið Landsbjörg. Elísabet Ingólfsdóttir, Ingólfur Örn Arnarsson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Þorlákur Jón Ingólfsson, Indriði Arnar Ingólfsson, Ragnar Steinn Ingólfsson. ✝ Elskuleg eiginkona mín, mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, RAGNHILDUR GUNNARSDÓTTIR, Snorrabraut 56b, lést á Landspítalanum, Fossvogi, sunnudaginn 29. júní. Birgir Ottósson, Gunnar Birgisson, Gylfi Birgisson, Svandís Kristiansen, Unnur Birgisdóttir, Kjartan Birgisson, Halldóra Ingólfsdóttir, Guðlaug Hildur Birgisdóttir, Rúnar Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma okkar, ÞÓRDÍS GUÐRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR frá Hellatúni, lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi á Hellu föstudaginn 20. júní. Jarðarförin fer fram í Oddakirkju þriðjudaginn 8. júlí kl. 14.00. Jakobína Ólafsdóttir, Björk Berglind Gylfadóttir, Albert Örn Áslaugsson, Ólafur Helgi Gylfason, Hrefna Huld Helgadóttir, Sóldís Einarsdóttir, Sigurður Ragnarsson, Einar Kristinsson, barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.