Morgunblaðið - 01.07.2014, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.07.2014, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 2014 Gunnlaugur Bragi Björnsson er nýútskrifaður viðskiptafræð-ingur og vinnur í Arion banka. Hann gegnir ýmsum félags-störfum, svo sem formennsku í Hinsegin kórnum, gjaldkeri Hinsegin daga og situr í stjórn Bandalags íslenskra skáta. Hann var á alþjóðlegu kóramóti hinsegin kóra í Dublin fyrir stuttu. „Áttatíu hinsegin kórar komu víða að úr heiminum til að syngja, sem var mjög skemmtilegt. Við vorum þrjátíu sem fórum frá Íslandi á mótið.“ Gunnlaugur óskar sér góðs veðurs í afmælisgjöf. „Kannski er þetta bara svona í minningunni, en mér finnst eins og það hafi alltaf verið gott veður á afmælisdeginum mínum þegar ég var lítill. Ef veðurguðirnir vilja gefa mér eitthvað í afmælisgjöf, þá er gott veður efst á óskalistanum, en ekki rigning eins og spáð er. Mig vantar ekki neitt þannig að ég væri afar glaður ef veðrið væri bara gott.“ Þá býst hann við krefjandi vinnudegi á afmælisdeginum. „Ég er bankastarfsmaður og það er alltaf mjög mikið að gera fyrsta dag hvers mánaðar, þannig að ég býst við annasömum degi í vinnunni. Annars ætla ég út að borða um kvöldið með góðum vinum.“ Gunnlaugur telur ekki að veðrið muni hafa mikil áhrif á skáta- starfið. „Þótt veðrið sé slæmt þá finna skátarnir alltaf eitthvað að gera. Þetta fylgir því að vera skáti.“ isb@mbl.is Gunnlaugur Bragi Björnsson er 25 ára Vill gott veður „Ef veðurguðirnir vilja gefa mér eitthvað í afmælis- gjöf, þá er gott veður efst á óskalistanum,“ segir Gunnlaugur. Var á kóramóti hinsegin kóra Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. V iktor fæddist í Reykjavík 1.7. 1984 en ólst upp í Kópavogi og býr þar enn. Hann var í Kársnesskóla og Þinghólsskóla, stund- aði nám við Menntaskólann í Kópa- vogi í tvö ár, hóf síðan nám í húsasmíði við Iðnskólann í Reykjavík og lauk þaðan sveinsprófi og lauk stúdents- prófi frá Fjölbrautaskólanum í Breið- holti: „Þessi skólaganga hjá mér tók sinn tíma og ég fór „Krýsuvíkurleiðina“ í stúdentsprófin ef svo má segja, enda var ég mjög upptekinn af fimleikunum á þessum árum. Ég var alltaf í keppn- isferðum og fór í æfingabúðir. Fim- leikarnir voru því númer eitt og tvö en skólinn númer þrjú. Núna stunda ég hins vegar nám í byggingariðnfræði við HR af kappi.“ Á æsku- og unglingsárunum vann Viktor hjá afa sínum og ömmu í Sólar- gluggatjöldum á sumrin og í jólafrí- inu. Á undanförnum árum hefur hann Viktor Kristmannsson húsasmiður og fimleikamaður – 30 ára Morgunblaðið/Ómar Fimleikakappi Viktor varð tíu sinnum Íslandsmeistari í fimleikum, þar af níu sinnum í röð. Fimleikastjarna, úti- vistar- og veiðimaður Mæðgin Viktor, Stella, móðir hans og Róbert, fimleika- og veiðifélagi. Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ 1st Prize in the Classic Category TISSOT LE LOCLE AUTOMATIC CHRONOMETER IN TOUCH WITH YOUR TIME Get in touch at www.tissot.ch

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.