Morgunblaðið - 01.07.2014, Síða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ferðaáform sem virtust möguleg
fyrir fáeinum dögum virðast núna ófram-
kvæmanleg. Besti stjórnandinn er sá sem
aldrei þarf að beita valdi heldur laðar það
besta fram í öðrum án þess.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú vilt gjarna klára verkið, jafnvel
þótt það skemmi fyrir þér vikuna. Fáðu
þína nánustu í lið með þér og þá heppnast
allt vel.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ættir að eiga betra með að
einbeita þér nú þegar þú hefur sett þér
takmark. Mundu að hlutirnir gerast ekki
sjálfkrafa og þú þarft að hafa fyrir þeim.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Bara það að dreyma eitthvað GET-
UR komið einhverju til leiðar, sama hve
skynsemi þín mótmælir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er náttúrlega málið að halda
þannig á spöðunum að ekkert geti komið í
bakið á þér síðar meir. Leyfðu öðrum að
gera slíkt hið sama.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ættir að reyna að hvíla þig eitt-
hvað í dag, því þú hefur satt að segja geng-
ið ansi nærri þér. Haltu það út og fylgdu
því í höfn svo þú fáir þá viðurkenningu sem
þú átt skilið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Reyndu ekki að skjóta þér á bak við
loðnar upplýsingar. Reyndu ekki að sýnast
meiri en þú ert.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér finnst aðrir vilja ráðskast
um of með þín mál. Svo villist hann af leið
og þarf að eyða smávegis tíma í að komast
á þá réttu aftur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú gætir fundið fyrir tilfinn-
ingum í garð einhverrar manneskju sem er
mjög ólík þér. Líklegt er að ungt fólk muni
hlýða á þig og hrífast af því sem þú segir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ættir að einbeita þér að sam-
skiptum við foreldra eða yfirvöld í dag.
Haltu áfram af enn meiri krafti. Gleymdu
ekki að láta þína nánustu finna fyrir ást
þinni og umhyggju.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Láttu hrokann ekki ná yfirhönd-
inni í samskiptum þínum við aðra. Ef þær
eru réttmætar þá breytir þú einfaldlega til.
Sýndu því skilning.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Viðgerðir og endurbætur á heim-
ilinu, flutningar og gestakomur setja svip
sinn á næstu vikurnar hjá þér. Biddu ein-
hvern að kenna þér það sem þú vilt læra.
Enn um bitvarginn ógurlega,“segir Tómas Tómasson og
gaukar að umsjónarmönnum vísu
sem byggist á vígamönnum fyrr
og síðar:
Suarez oft tekur törn
tennur brýnir harðar
ítalskan hjó Axlar-Björn
sem óðar hné til jarðar.
Maður nokkur svekktur mjög
bað Helga Seljan að setja saman
veðurvísu og setti það skilyrði að
Helgi miðlaði því til umsjónar-
manna, sem honum var ljúft að
verða við:
Mikill er sá veðravandi,
virðist lífið gleðisnautt,
því sólskinið á Suðurlandi
sýnist vera ósköp blautt.
Vísnaunnendur geta hrósað
happi, því góðvinur þeirra Pétur
Stefánsson hefur tekið að sér að
halda úti vísnaþætti í Hafn-
arfjarðarblaðinu og Reykjavík-
urblaðinu. Birtist fyrsta vísnast-
undin í vikunni sem leið. Annars
er það tíðinda af Pétri að hann
átti frábæra helgi með einni
ljóðadísinni og orti í einum rykk
sonnettusveig sem birtist í haust,
því þetta er haust- og vetrarsonn-
etta. Hann sendi kveðju á Leir-
inn, póstlista hagyrðinga, af þessu
tilefni:
Mín eru ljóðin mörg og fleyg.
– Maður er orðahagur.
Um helgina orti ég sonnettusveig,
sá var nú aldeilis fagur.
Ármann Þorgrímsson yrkir í til-
efni af „hreppaflutningum“:
Margt er skráð á minninganna blað
mistök verið gerð og jafnvel stór
Gáfnaljósum gleymist stundum að
við getum lært af því sem miður fór.
Svo slær hann á létta strengi og
segir að alltaf megi vona að karlinn
fari að þagna:
Eiga ljóða vinir von
víst má tela þeim í hag
þegar Ármann Þorgrímsson
þegir næstum heilan dag.
Harpa Jónsdóttir sendi ábend-
ingu um að einn staf hefði vantað í
vísu Kristínar í Haukatungu, sem
birtist á miðvikudaginn var. Hún
fær þakkir fyrir það og hér birtist
vísan rétt:
Lifað hef ég langa ævi laus við hroka.
Í lítinn skaufa látin moka,
ég loftaði aldrei stórum poka.
Pétur Blöndal
p.blondal@gmail.com
Vísnahorn
Af Suarez, veðri og
hreppaflutningum
Grettir
Í klípu
UPP VAR RUNNINN NÝR DAGUR,
Í NÝRRI BORG, MEÐ NÝTT NAFN
OG NÝ SIÐFERÐISLEG GILDI.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„JÆJA, ÞESSUM BÍLTÚR
ER ALLA VEGA LOKIÐ.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
... allt það litla sem þið
gerið hvort fyrir annað.
KAUPA:
ÖKUSKÓLI
PABBI, ÞARF ÉG AÐ VERÐA
HERSKÁR VÍKINGUR ÞEGAR
ÉG VERÐ STÓR?
ALLS EKKI,
SONUR SÆLL!
ÞÚ YRÐIR TIL DÆMIS
FRÁBÆRT VÍKINGA-
LUKKUDÝR!
BÍP BÍP
BUP BUP
BAP BÍP
BUP
MAÐUR ÝTIR
BARA Á HANN
10.000 SINNUM.
TAKK FYRIR AÐ HRINGJA
Í LÚDÓ-PITSU. EF ÞÚ VILT
PANTA PITSU, ÝTTU Á EINN ...
HVERNIG GETUR
TÖLUSTAFUR EYÐST
AF SÍMATAKKA?
Það er ótrúlegt að lesa um það ífréttum árið 2014 að ung stúlka
á Íslandi megi ekki samkvæmt lög-
um heita Harriet af því að mamma
hennar er íslensk. Faðirinn er
breskur og vildu foreldrarnir og
skírðu dóttur sína í höfuðið á móður
hans, ömmu stúlkunnar. Það fellur
ekki að íslenskri forsjárhyggju og
fyrir vikið heitir Harriet alls ekki
Harriet, heldur Stúlka, í opinberum
bókum hér á landi. Eins og stúlku-
börn sem ekki hefur verið gefið
„ásættanlegt“ nafn.
Til að gæta allrar sanngirni þá má
Harriet raunar heita Harriet hér á
landi, af því faðir hennar er breskur,
svo lengi sem hún heitir að minnsta
kosti einu íslensku nafni líka. Hún
mætti til dæmis heita Harriet Þor-
gerður. Vandinn er á hinn bóginn sá
að Harriet vill alls ekki heita Harriet
Þorgerður. Hún vill bara heita Har-
riet. Það er bara harðbannað.
x x x
Snúum þessu nú aðeins við. Segj-um að íslenskur maður, Jón
Jónsson að nafni, þó ekki söngvarinn
geðþekki, flytji búferlum til Grikk-
lands. Kynnist þar gjörvilegri konu,
Afrodite að nafni, og geti við henni
son. Nú vill Jón auðvitað skíra son-
inn góðu og gildu íslensku nafni,
Jón. Ekki í höfuðið á sjálfum sér,
heldur föður sínum. Afa drengsins.
Víkverji veit lítið um gríska
mannanafnalöggjöf en gefum okkur
að þau lög séu samin af sömu for-
sjárhyggju og íslensku lögin. Jóni
yrði sumsé bannað að skíra son sinn
Jón. Nema þá hann henti inn að
minnsta kosti einu grísku nafni í
leiðinni, svo sem Sokratis. Jón Jóns-
son gengi því ekki en Jón Sokratis
Jónsson væri í fínu lagi. Myndi Jón
Jónsson, það er að segja faðirinn,
fella sig við það?
Myndum við, Íslendingar, fella
okkur við það?
x x x
Þetta er auðvitað alveg arfavit-laust. Hvers vegna getum við
ekki treyst fólki til að velja nöfn á
börnin sín? Umhverfið á að vera eins
afslappað og hugsast getur. Aðeins
ætti að banna nöfn sem beinlínis
geta meitt börn, svo sem Ódámur,
Skrímsli, Lufsa og Viðbjóður.
Annað skal leyft.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Verið með sama hugarfari sem
Kristur Jesús var. (Filippíbréfið 2:5)
Bíla- og vélavörur
...sem þola álagið!
Það borgar sig
að nota það besta!
Viftur
HjólalegusettKúlu- og rúllulegur Hemlahlutir Hjöru- og öxulliðir
Stýrisendar
og spindilkúlurViftu- og tímareimar
Kúplingar- og höggdeyfar
Sími: 540 7000 • www.falkinn.is