Morgunblaðið - 08.09.2014, Page 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2014
Nýstárlegt og glæsilegt útlitið kemur á óvart, en þú verður fyrst verulega hissa þegar þú kemur inn í bílinn og finnur hversu rúmgóður hann er.
Fóta- og höfuðrýmið í þessum fyrsta hlaðbaki sinnar tegundar frá Škoda er nefnilega það mesta sem fyrirfinnst í þessum stærðarflokki bíla.
Skyggða sóllúgan, sem hægt er að fá sem aukabúnað, og stór afturrúðan auka svo enn frekar á frelsistilfinninguna. Þegar við þetta bætast
allar góðkunnu „Simply Clever“ lausnirnar frá Škoda er útkoman bíll sem á engan sinn líka. Sestu inn og njóttu þess að láta fara vel um þig.
Nýr ŠKODA Rapid Spaceback
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · www.skoda.is
5 stjörnur í árekstrar-
prófunum EuroNcap
Eyðsla frá 4,4 l/100 km CO2 frá 114 g/km
114g
4
,4
Nýr ŠKODA Rapid Spaceback kostar aðeins frá:
3.080.000,-
m.v. ŠKODA Rapid Spaceback 1.2TSI, 86 hestöfl, beinskiptur.
SIMPLY CLEVER
UPPLIFÐU
RÝMI
Bjóðum nokkra
sýningarbíla
á sérkjörum
Morgunblaðið/Þórður
Samhentar systur Helga Dögg og Aðalheiður Flosadætur og brjóstagjafabolurinn Gjöf sem fæst í Móðurást.
þvottavél á ullarprógrammi með
ullarþvottaefni, það er stór kostur
fram yfir handþvott.“
Þráðurinn í merinóullinni sem
þær nota er 20 míkrómetrar en til
samanburðar er mannshár 100
míkrómetrar. Þess vegna klæjar
ekki undan merinóullinni.
Þora að taka meiri áhættu
þegar fram líður
Fyrsta upplagið að bolunum
var lítið þar sem efnið er bæði dýrt
í innkaupum og mikill flutnings-
kostnaður fylgir að flytja efni frá
Nýja-Sjálandi. Fyrst voru fram-
leiddir sjö bolir í þremur litum.
Næsta upplag voru bolirnir 20.
Þær tóku niður pantanir áður en
þeir voru sendir í framleiðslu.
„Við erum bara venjulegar
konur og eigum ekki til háa upp-
hæð inn á bankabók til að leggja
inn í fyrirækið í fyrstu atrennu,“
segir Helga Dögg spurð út í fram-
tíðaráform. Hún segir þær taka eitt
skref í einu og hafi skynsemina að
leiðarljósi. Hún bætir við að næsta
upplag verði eflaust stærra. „Þegar
við sjáum hversu vel þetta gengur
þá þorum við að taka meiri áhættu
og stærri skref.“
Bolirnir eru íslensk framleiðsla
og hönnun þó að efnið sé aðkeypt.
Saumastofa sér um framleiðsluna.
Stefnan er sett á að stofna fyr-
irtæki í kringum reksturinn þegar
hann verður umsvifameiri. Með
hærri veltu verður þörf á skráningu
fyrirtækis, en enn sem komið er er
veltan ekki of há.
Allt annað en eðlisfræðin
„Þetta er ótrúlega gaman og
skemmtilegt að gera eitthvað allt
öðruvísi en vanalega. Allt í einu er
maður kominn á fullt í vöruþróun
og fatahönnun,“ segir Helga Dögg
og bætir við að henni þyki þessi
heimur heillandi þar sem systir
hennar Aðalheiður er öllum hnútum
kunnug.
„Þetta gengur nokkuð vel, mun
betur en ég gerði ráð fyrir til að
byrja með. Við erum mjög ólíkar en
lærðum mikið af foreldrum okkar í
samskiptum,“ segir Aðalheiður um
samstarfið með systur sinni. For-
eldrar þeirra eru Flosi Karlsson og
Aldís Ívarsdóttir.
Hún bendir á að eflaust myndi
þetta ekki ganga svona vel nema af
því að þær eru jafn ólíkar og raun
ber vitni. Helga Dögg er víst lunkn-
ari í fyrirtækjarekstri og í sam-
skiptum. Aðalheiður einbeitir sér að
hönnuninni.
„Okkar sterku hliðar eru hvor
á sínum endanum. Það er líklega
kostur. Þetta hefði ekki gengið ef
hún væri alveg eins og ég,“ segir
hún og hlær.
Vildu ekki skila bolunum
Þarfir kvenna með barn á
brjósti voru hafðar að leiðarljósi í
hönnuninni. „Sniðið er aðsniðið,
kvenlegt og bogadregið að neðan
sem hentar vel ef maður er með
smá maga,“ segir Aðalheiður. Bol-
irnir eru með þrefalt lag yfir
brjóstin til að vernda þau betur.
Þeim konum sem fengnar voru
til að prófa bolina og leggja mat á
þá, líkaði svo vel við þá að þær
vildu ekki skila þeim þótt þær væru
hættar brjóstagjöf.
„Þá fundum við að markaður
væri fyrir slíkar flíkur sem væru
flottar og hlýjar í senn. Þess vegna
ætlum við að framleiða klæðilegan
fatnað sem er töff en lítur ekki út
fyrir að þú sért á leið í fjallgöngu.“
Ný lína frá Hlýleg fyrir konur,
sem ekki eru með barn á brjósti, og
einnig karlmenn er því væntanleg.
Fyrir jólin 2014 er von á nokkrum
flíkum fyrir konur.
Ennfremur er markmiðið sett
á að taka þátt í Hönnunarmars
2015 og vera einnig með fatnað fyr-
ir karlmenn.
Bolur Þessi er framleiddur í þremur
litum og í öllum stærðum.
Merinóullin sem notuð er í fram-
leiðslu á bolunum hlýju er flutt inn
frá Nýja-Sjálandi og kemur af sam-
nefndu sauðfjárkyni sem gefur af
sér þessa eftirsóknarverðu ull.
Sauðfjárkynið er einkum ræktað
vegna eiginleika ullarinnar og er
upprunnið á Spáni. Í merinóullinni
er togið lítið en þelið mjúkt, hrokk-
ið og silkikennt. Í ull íslensku kind-
arinnar er þelið mjög lítið til
samanburðar við ull þeirrar nýsjá-
lensku.
Silkikennd ull
MERINÓULL FRÁ NÝJA-SJÁLANDI
Í kápu Þessi er eflaust mjúk viðkomu og
framleiðir töluvert af merinóull.