Morgunblaðið - 08.09.2014, Qupperneq 27
gríðarlega öflugir og elsti leik-
arinn er Margrét Guðmundsdóttur
sem er rúmlega áttræð, kraftmikil
og flott kona og mikill listamað-
ur.“
Aðrir listrænir aðstandendur
eru Frosti Friðriksson sem hann-
ar leikmyndina, Garðar Borgþórs-
son sem hannar hljóð og ljós og
Þórunn María Jónsdóttir sem
hannar búninga. „Ég er svo lán-
söm að hafa þessa hæfileikaríku
og reyndu listamenn með mér í
hópnum og svo er ég ekki síður
heppin með börnin mín og stjúp-
syni sem leggja gjörva hönd á
plóg. Í þeim hópi eru grafískur
hönnuður, ljósmyndari, kvik-
myndagerðarmaður og myndlist-
arnemi.“
,,Það er góð tilfinning að eiga
fyrstu frumsýningu vetrarins í
Tjarnarbíói sem er staður sjálf-
stæðu atvinnuleikhópanna. Það er
heljarkraftur í leikhúsinu okkar
sem nýtur þess nú að hafa gert
þriggja ára samning við borgina.
Við erum líka þakklát Þjóðleikhús-
inu sem lánaði okkur húsnæði og
leikara fyrir leiksmiðjuvinnu síð-
astliðinn vetur, til þess að þróa
handritið.“ Auðlind hefur farið af
stað með söfnunarátak fyrir sýn-
inguna á hópfjármögnunarsíðunni
Karolinafund.com til að ná endum
saman og borga laun. „Við fengum
styrki sem nægja þó ekki fyrir
fullum launakostnaði og ákváðum
því að láta á það reyna hvort við
gætum safnað meiri peningum.
Þetta söfnunarátak hefur gengið
þokkalega fram að þessu,“ segir
Hrund.
Kennir innflytjendum ís-
lensku í gegnum leiklist
Hrund, sem er bókmenntafræð-
ingur að mennt og hefur meðal
annars starfað sem gagnrýnandi,
segist harðákveðin í að halda
áfram að skrifa fyrir leiksvið.
„Þegar ég fór að skrifa fyrir al-
vöru komst ég að því að það er
rétt sem ég hafði þó aldrei trúað
almennilega á, að persónur kalla á
mann og lifa sínu eigin lífi í höfð-
inu á manni. Ég sá nýlega setn-
ingu á facebook sem er ekki klisja
heldur sannleikur: Ritstífla höf-
undar er þegar ímynduðu vinirnir
hætta að tala við hann.
Það skemmtilegasta sem ég geri
er að skrifa en ég verð líka að
eiga fyrir brauðinu og þess vegna
er kennsla mitt aðalstarf. Ég hef
síðustu árin kennt leiklist í Álf-
hólsskóla í Kópavogi. Mig langaði
til að þróa hugmyndir mínar í
leiklistarkennslu í grunnskólum og
það hefur gengið vel. Ég er líka
að kenna innflytjendum íslensku í
gegnum leiklist og nýti þar þær
aðferðir sem ég þekki úr leiklist-
arkennslu. Þar eru ótal mögu-
leikar, hægt er að nota spuna og
samtöl og setja upp litla leikþætti.
Það getur verið stórmál fyrir fólk
að standa fyrir framan hóp og tjá
sig, ég tala nú ekki um þegar
móðurmálið er annað. En þegar
viðkomandi er kominn í hlutverk
leikarans og verður einhver annar
en hann sjálfur þá uppgötvar hann
að það er ekki svo erfitt að standa
frammi fyrir öðrum. Það á reynd-
ar almennt við um fólk sem vill
losna við hömlur og feimni, að góð
aðferð til þess er að ímynda sér að
maður sé einhver annar.“
Morgunblaðið/Kristinn
» Þeir sem frétta afefni leikritsins
segja mér að þeir
þekki það af eigin
reynslu eða hjá öðr-
um; að fólk þrái alltaf
að eiga góð samskipti
en eigi oft erfitt með
það af einhverjum or-
sökum, stundum jafn-
vel vegna óvináttu
milli fjölskyldumeð-
lima.
„Leikkonur sögðu við mig: Það væri dásamlegt að fá
kvenleikskáld sem skrifar fyrir okkur. „Skrifaðu fyrir
okkur!“ og ég var sammála þeim um þetta,“ segir Hrund.
MENNING 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2014
ÁLÞAKRENNUR
Viðhaldslitlar
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu
er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0.9 mm áli og tærast ekki,
ryðga né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, gráar, rauðbrúnar og ólitaðar.
Seljum einnig varmaskiptasamstæður, loftræstistokka og tengistykki.
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202
Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is
www.hagblikk.is
HAGBLIKK ehf.
★★★★ – SGV, Mblamlet
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Róðarí (Aðalsalur)
Þri 16/9 kl. 20:00 Sun 28/9 kl. 20:00 Sun 12/10 kl. 20:00
Mið 24/9 kl. 20:00 Lau 4/10 kl. 20:00
Trúðleikur (Aðalsalur)
Sun 14/9 kl. 14:00 Sun 28/9 kl. 14:00
Sun 21/9 kl. 14:00 Sun 12/10 kl. 14:00
Kameljón (Aðalsalur)
Fös 12/9 kl. 20:00 Lau 27/9 kl. 20:00
Sun 21/9 kl. 20:00 Sun 5/10 kl. 20:00
Petra (Aðalsalur)
Fim 11/9 kl. 20:00
- með morgunkaffinu