Morgunblaðið - 08.09.2014, Page 32
MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 251. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Hraunið rennur út í Jökulsá
2. Veikir vegna útblásturs
3. Dáleiðandi myndband af gosinu
4. Kobbi kviðrista loksins fundinn?
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Alheimsupplestur til stuðnings
uppljóstraranum Edwards Snowdens
verður í kvöld kl. 20.30 á Loft Hostel.
Á sama tíma munu rithöfundar um
heim allan og fylgismenn tjáningar-
frelsis lesa upp texta Snowdens. Les-
arar eru m.a Kristín Helga Gunnars-
dóttir, Sjón, Katrín Jakobsdóttir,
Steinunn Ólína og Sindri Freysson.
Morgunblaðið/Kristinn
Alheimsupplestur til
stuðnings Snowdens
Darren Aro-
nofsky, leik-
stjóri kvik-
myndarinnar
Noah, sem tek-
in var að hluta
hér á landi, má
vart vatni halda
á tísti sínu í
netheimum yfir íslensku kvikmynd-
inni Vonarstræti sem nú er sýnd á
kvikmyndahátíðinni í Toronto: „Frá-
bærir íslenskir leikarar í mjög góðri
mynd sem dregur af næmleika upp
mynd af því hvernig líf fólks skarast.“
Aronofsky hrósar
Vonarstræti í hástert
Bandarískur
uppistandshópur
frá New York’s
Funniest mun
koma fram á
þriggja daga uppi-
standshátíð,
Reykjavik Com-
edy Festival, í
Hörpu í október.
Þetta eru þau
Andrew Schulz, Ricky Velez og James
Adomian. Miðasala á hátíðina hefst
næstkomandi fimmtudag.
Bandarískir uppi-
standarar á hátíð hér
Á þriðjudag Suðaustan 8-13 m/s með rigningu og síðan skúrum,
en þurrt að kalla um landið norðaustanvert. Hiti 8 til 16 stig.
Á miðvikudag Suðvestan 5-10 og rigning, einkum sunnantil, en
áfram skúrir vestanlands. Hiti breytist lítið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 5-13 á morgun og rigning, en
léttir til austanlands. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast norðaustanlands.
VEÐUR
„Mér finnst ég hafa tekið
framförum sem markvörður
og vona að það komi til með
að nýtast í þessari keppni,“
segir Hannes Þór Halldórsson
landsliðsmarkvörður. „Mér
finnst ég hafa vaxið um nokk-
ur prósent á öllum sviðum, og
nýt mín vel í þessu umhverfi
úti í Noregi. Þetta hefur gert
mér gott. Það er auðveldara
að bæta sig þegar maður hef-
ur ekkert annað að hugsa um
en fótbolta.“ »2
Framfarir sem
nýtast vonandi
Úrslitaleikir Evrópumóts karla í
körfuknattleik á næsta ári, þar sem
Ísland verður í fyrsta skipti á meðal
þátttakenda, verða líklega spilaðir í
fjórum löndum. Í dag verður kosið um
hvar mótið verður haldið en það átti
að fara fram í
Úkraínu. Hann-
es Jónsson, for-
maður KKÍ, tek-
ur þátt í
atkvæða-
greiðslunni
og mun þar
styðja
bæði
Frakka og
Finna en
segir óráð-
ið hvaða
önnur lönd
verði fyrir val-
inu hjá sér. »1
Úrslitakeppni EM haldin
í fjórum löndum?
Patrekur Jóhannesson, þjálfari
Hauka, segir að sitt lið eigi mögu-
leika á að slá út Rússana í Dinamo
Astrakhan þrátt fyrir tveggja marka
tap í fyrri leiknum á heimavelli í gær.
„Ég stend enn við það, tvö mörk
skilja að sem er ekkert í handbolta.
Það er bara hálfleikur í einvíginu,“
sagði Patrekur en liðin mætast aftur í
Rússlandi næsta sunnudag. »4
Telur Hauka enn geta
slegið Rússana út
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Líney Sigurðardóttr
lineysig@simnet.is
Hænur og eggin þeirra eru áhugamál
nokkurra Þórshafnarbúa sem hafa
sótt um leyfi fyrir hænsnakofa í görð-
um sínum. Leyfið hefur fengist, hafi
næstu nágrannar hænsnanna ekkert á
móti þessum nýju nágrönnum. Leyfið
takmarkast við hænur en hanar eru
ekki velkomnir því ekki eru allir hrifn-
ir af því að vakna eldsnemma að
morgni við hanagal.
Engar hænur hafa verið á Þórshöfn
í allmarga áratugi þar til fyrir fáum ár-
um að íbúar á dvalarheimilinu Nausti
fengu hænsnakofa og nokkrar hænur í
garðinn til sín. Heimilisfólk þar hefur
annast hænurnar af mikilli natni og nú
hefur heldur betur fjölgað í hópnum.
Mikil frjósemi
Í vor var fengin útungunarvél á
Naustið og klakið gengur vel. Heim-
ilisfólkið á dvalarheimilinu hefur ær-
inn starfa við að hugsa um fiðrað ung-
viði en þrettán ungar hafa nú skriðið
úr eggjum og eru á tveimur „vöku-
deildum.“ Elsti íbúinn á Nausti og
reyndar sá elsti í öllu sveitarfélaginu
er Ingveldur Haraldsdóttir frá Þor-
valdsstöðum í Bakkafirði, að verða 97
ára gömul. Hún annast yngstu kjúk-
lingana sem aðeins voru dagsgamlir
þegar Morgunblaðið bar að garði. Þeir
búa í litlum kassa í herbergi hennar,
sem kallast núna vökudeild I. Umönn-
unarstörfin láta henni vel enda alvön
að sjá um ungviði frá sinni tíð í sveit-
inni en tæpt ár er síðan Ingveldur
flutti að heiman og á Naustið.
Hugmyndin að kjúklingaeldinu á
dvalarheimilinu kviknaði þegar mat-
ráðurinn þar lauk námi í matartækni
og ákveðið var að útskriftargjöfin yrði
hænur, þar sem hún var að flytja í
sveit. Útungunarvél var fengin að láni
og nú tísta litlir ungar á tveimur
„vökudeildum“ hjá heimilisfólkinu á
Nausti. Búið er að panta alla ungana
þrettán sem eru á Nausti en von er á
fleiri ungum í útungunarvélinni. Ung-
arnir eru mislitir því þeir eru upp-
runnir frá íslenskum landnámshænum
og einnig frá norskum hænsnastofni,
sem gefur af sér brún egg.
Byrjaði allt í einu að gala
Nágrannar Naustsins fylgdu svo í
kjölfarið fyrir skömmu og fengu sér
hænur en eitthvað þurfti að endur-
skoða þann hænsnastofn því ein „hæn-
an“ þar fór allt í einu að gala.
Hamingjusömum hænum er enn að
fjölga á Þórshöfn en þessa dagana
vinna smiðir að smíði tveggja hænsna-
húsa sem bíða þess að hýsa góðar
varphænur. Að sögn smiðanna ætti að
fara mjög vel um hænurnar því vand-
að er til smíðinnar og einangrunin í
hæsta gæðaflokki fyrir væntanlegar
úrvalshænur. Matarafgangar í ruslinu
munu svo heyra sögunni til, því þeir
fara allir beint í hænsnadallinn en ný-
orpin egg í eldhúsið í staðinn.
Ala kjúklinga á elliheimilinu
Íslenskar hæn-
ur nýtt áhugamál
íbúa á Þórshöfn
Morgunblaðið/Líney
Smiðirnir Þórður Ragnar og Kristján eru með tvö hænsnahús í smíðum. Atli Berg og Kristín móðir hans sitja í kof-
anum og bíða eftir góðum varphænum, en þessi sex ára snáði ætlar að hugsa vel um þær.
Á vökudeildinni Kristín Thorberg, hjúkrunarforstjóri á Nausti, og Ingveld-
ur Haraldsdóttir, hlúa að dagsgömlum kjúklingum í herbergi Ingveldar.
Hún er að verða 97 ára gömul og er elsti íbúi Langanesbyggðar.