Morgunblaðið - 30.09.2014, Qupperneq 9
www.guinot.com
HYDRADERMIE
• Húðin fær aukinn
raka og mýkt
• Þéttir húð og gefur
fallega áferð
• Árangur sést strax eftir meðferð
Andlitsmeðferð
Snyrtistofur: www.guinot.is
Guinot sérhæfir sig í
árangursríkum andlits-
meðferðum og snyrti-
vörum sem viðhalda
árangri meðferða.
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2014
Kjartan Sveinsson
byggingatæknifræð-
ingur lést á Landspít-
alanum í Fossvogi laug-
ardaginn 27. september
síðastliðinn, 88 ára að
aldri. Hann fæddist 4.
september 1926 á Búð-
areyri við Reyðarfjörð,
sonur Sveins Jónssonar
verslunarmanns og
Guðnýjar Pálsdóttur
húsfreyju.
Kjartan lauk gagn-
fræðaprófi 1945. Hann
lærði húsasmíði hjá
Tómasi Vigfússyni
byggingameistara 1946-1950 en
haustið 1950 fór hann til Svíþjóðar
og nam við lýðháskóla í boði Nor-
ræna félagsins. Árið 1952 hóf hann
nám í byggingatæknifræði við Katr-
ineholms Tekniska skola í Svíþjóð,
sem hann lauk 1955.
Kjartan hóf störf á teiknistofu
Húsameistara Reykjavíkur 1955,
þar sem hann vann meðal annars
með Einari Sveinssyni og Gunnari
Ólafssyni. Þar starfaði hann í sex ár
en stofnaði eigin teiknistofu 1961 og
rak hana í 43 ár. Eftir hann liggja
teikningar að um það bil 5.000 ein-
býlishúsum og raðhúsum og 10.000
íbúðum í fjölbýlis-
húsum. Þá teiknaði
hann Hótel Örk í
Hveragerði og fjölda
skóla ásamt skrifstofu-
og iðnaðarhúsnæði.
Kjartan var afar far-
sæll í starfi og eft-
irsóttur hönnuður og
þekktur fyrir þann stíl
sem einkennir mörg
húsa hans. Hafa þau
meðal annars verið
kölluð Kjartanshús, en
hann varð einna fyrst-
ur manna hér á landi til
að skreyta einbýlishús
með súlum.
Kjartan og eftirlifandi eiginkona
hans, Hrefna Kristjánsdóttir, ráku
saman Bón- og þvottastöðina í Sól-
túni í 37 ár, frá 1969-2006, þegar þau
seldu fyrirtækið.
Kjartan var mikill skautamaður
og keppti meðal annars við kan-
adíska hermenn í skautastökki á
yngri árum og hafði sigur. Eftirlif-
andi börn Kjartans eru Þórarinn,
Álfheiður og Arndís en fósturdóttir
Kjartans er Sigfríð Þórisdóttir.
Útför Kjartans verður gerð frá
Hafnarfjarðarkirkju kl. 15 föstudag-
inn 3. október.
Andlát
Kjartan Sveinsson
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Flottir bolir
Verð kr. 8.900 | Str. M-XXXL
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið laxdal.is
BUXUR - BUXUR
fyrir allar konur
w
Niðurmjóar - Beinar
Mörg snið - Margir litir
GERRY WEBER - GARDEUR
LAGERSALA
Brjáluð
gleðisprengja
Mikið úrval
af fatnaði
á kr.
1.500
2.000
3.000
4.000
5.000
Kíktu
það borgar sig
Bonito ehf. • Friendtex • Praxis
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.friendtex.is •www.praxis.is
Opið mánudag - föstudag 11:00-17:00, lokað laugardaga
Þriðjudag – föstudag
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið laxdal.is/yfirhafnir
Vatnsheldar
vetraryfirhafnir
m/hettu
Eldgosið við Holuhraun hefur vakið at-
hygli víða um heim og margar myndir
birst af gosinu og hrauninu í dagblöð-
um og netmiðlum. Á meðfylgjandi
gervitunglamynd sést hvernig fjögurra
kílómetra langur taumur, um tveir fer-
kílómetrar að flatarmáli, bætist við
hraunið og rennur eins og eldtunga frá
gosgígunum. Myndin var tekin í há-
deginu í gær og má ætla af henni að
hraunbreiðan sé ekki undir 46 ferkíló-
metrum að flatarmáli.
Gosið hefur nú staðið í rúman mán-
uð og hefur virkni þess verið nokkuð
stöðug undanfarna daga. Þá eru eng-
ar teljanlegar breytingar á skjálfta-
virkni á umbrotasvæðinu aðrar en
þær að skjálftar sem mældust í gær
voru nokkru færri en dagana á undan.
Stærsti skjálftinn í gær var 5,5 stig og
varð hann við suðaustanverða öskju
Bárðarbungu. Hann er einn af fjórum
skjálftum af þessari stærð sem mælst
hafa við megineldstöðina frá því jarð-
hræringar hófust um miðjan ágúst.
Frá miðnætti í gær og fram á kvöld
mældust þrjátíu skjálftar í Bárðar-
bungu og fimmtán í ganginum
Jarðvísindastofnun/MODIS/NASA
Gígarnir og hraunelfurin
sjást í gegnum skýjaglufu