Morgunblaðið - 30.09.2014, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2014
Fulltrúar Lionsklúbbsins Freys af-
hentu Slökkviliði höfuðborg-
arsvæðisins nýlega nýtt Lucas
hjartahnoðtæki til afnota í sjúkra-
bílum.
Fram kemur í tilkynningu að
tækið spennist utan um sjúklinginn
og hnoðar hann með tjakki sem
gengur niður á brjóstið. Þannig
veitir það jafnt og stöðugt hjarta-
hnoð sem getur aukið lífslíkur sjúk-
lings sem þarf að flytja milli staða,
oft á tíðum við erfiðar aðstæður.
Guðmundur Jón Helgason, for-
maður Freys, sagði þegar hann af-
henti tækið, að þeir félagarnir von-
uðu að þeir þyrftu aldrei á þessu
tæki að halda en óskuðu þess ein-
læglega að það kæmi að góðum not-
um.
Jón Viðar Matthíasson, slökkvi-
liðsstjóri, tók við tækinu fyrir hönd
slökkviliðsins og sagði að sambæri-
legt tæki hjá SHS hefði létt mönn-
um verulega starfið.
Lionsfélagar hófu söfnun þegar
þeir heyrðu að SHS vantaði hjarta-
hnoðtæki. Þar með er búið að
tækjavæða tvær af þremur stöðvum
SHS.
Lionsmenn söfnuðu
fyrir hjartahnoðtæki
Gjöf Félagar í Lionsklúbbnum Frey ásamt forsvarsmönnum Slökkviliðs höf-
uðborgarsvæðisins við hjartahnoðtækið sem Lionsmenn söfnuðu fyrir.
Stefnt er að því að flestir geti séð um
miðjan október hversu mikið höf-
uðstóll íbúðalána þeirra lækkar
vegna aðgerða
ríkisstjórn-
arinnar. Þetta
segir Tryggvi Þór
Herbertsson,
verkefnastjóri
höfuðstólslækk-
unarinnar.
„Það er sú
tímasetning sem
við höfum verið
að miða við ef allt
gengur sam-
kvæmt áætlun,“ segir hann. „Þá fer
fram svokölluð birting og þá eiga all-
flestir að geta séð hvernig þetta
verður.“ Hann segir að einhver þús-
und tilfella séu flóknari viðfangs
vegna fjölskyldusögu og/eða við-
skiptasögu. Fólk hefur kannski skil-
ið, gengið í hjónaband, selt eignir
o.s.frv. Slík mál gætu tafist.
„Við erum auðvitað að reyna af
öllu afli að stuðla að því að hægt
verði að birta sem mest,“ segir
Tryggvi. Stefnt sé ennfremur að því
að aðgerðirnar verði komnar end-
anlega til framkvæmda um áramótin
og þá verði hægt að sjá lækkanirnar
á greiðsluseðlum. Fólk hafi að há-
marki þriggja mánaða umhugs-
unartíma frá birtingu til þess að
samþykkja niðurstöðuna.
Lækkun
ljós í næsta
mánuði
Tryggvi Þór
Herbertsson
Nokkur þúsund
tilfelli eru flókin
Von er á lifrarbólgu C lyfinu Sovaldi
til landsins bráðlega, samkvæmt
upplýsingum frá framleiðandanum.
Eins og sagði frá í Morgunblaðinu
í síðustu viku bíða lifrarbólgu C
sjúklingar hér á landi eftir að hingað
komi nýtt lyf við sjúkdómnum sem
læknar hann á áhrifaríkari og ein-
faldari hátt en hingað til hefur verið
hægt að gera. Lyfið er hið fyrr-
nefnda Sovaldi og kemur frá banda-
ríska líftæknifyrirtækinu Gilead.
Lyfið hefur gilt markaðsleyfi á Ís-
landi og það er Gilead sem er mark-
aðsleyfishafinn. Þegar markaðsleyfi
hefur verið gefið út þarf markaðs-
leyfishafinn að fá samþykkt verð og
greiðsluþátttöku hjá lyfjagreiðslu-
nefnd. Gilead hefur ekki enn sótt um
það til nefndarinnar.
Samkvæmt upplýsingum frá Gi-
lead er fyrirtækið skuldbundið til að
gefa Sovaldi út á Íslandi eins fljótt
og auðið er. Hins vegar, eins og á við
flest lyf, fylgir Sovaldi ákveðinni út-
gáfureglu og endurgreiðsluröð í
Evrópu. Nákvæm tímasetning um
komu Sovaldi til Íslands er háð verði
og viðræðum um endurgreiðslu í
öðrum Evrópulöndum.
Sovaldi kem-
ur eins fljótt
og auðið er
Síldveiðiskip Síldarvinnslunnar,
Beitir og Börkur, héldu til veiða á
föstudagskvöld og á laugardag að
afloknu stuttu hléi. Starfsfólk fisk-
iðjuversins fékk því gott helgarfrí
og allmargir starfsmenn sóttu sjáv-
arútvegssýninguna, segir á heima-
síðu fyrirtækisins. Beitir kom til
hafnar í Neskaupstað í fyrrinótt
með 900 tonn af nánast hreinni síld.
Hálfdan Hálfdanarson skipstjóri
segir á heimasíðunni að aflinn hafi
fengist í fimm holum í Reyðarfjarð-
ardýpi 30-50 mílur frá
Norðfjarðarhorni. „Þetta verður
ekki styttra og þar að auki er þetta
stór og góð síld sem þarna fæst,“
sagði Hálfdan.
Fengu góða síld í
stuttum túr Beitis
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is HEYRNARSTÖ‹IN
Nýja Beltone First™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu og prófaðu, það er engu líkt!
Snjallara
heyrnartæki
Beltone First™
Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.