Morgunblaðið - 30.09.2014, Page 14
VI
TINN
2014
VITINN
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
„Bæjarbúar hafa tekið þessu fram-
taki óskaplega vel. Margir hafa létt
undir með okkur með því að láta
okkur fá alls konar huti og húsgögn
til starfseminnar. Fyrirtæki í bæn-
um hafa líka stutt okkur,“ segir
Björt Sigfinnsdóttir, forsvarsmaður
Lunga skólans á Seyðisfirði. Skólinn
hóf sína fyrstu reglulegu önn í haust
eftir velheppnaða tilraunakennslu í
vor. Eru nú rúmar tvær vikur liðnar
af tólf vikna tímabilinu sem starf-
semin tekur á hverri önn.
Hugmyndin að skólanum spratt
upp úr samnefndri listahátíð ungs
fólks í bænum. Sú hátíð hefur frá
árinu 2000 dregið þúsundir gesta til
Seyðisfjarðar á hverju sumri.
Lunga er lýðháskóli með
áherslu á listir, sköpun og mann-
rækt og sérstöðu hvers einstaklings.
Innblástur er sóttur til KaosPilot
háskólans í Danmörku.
„Við förum djúpt í
tilfinningar og upplif-
anir nemenda,“ segir
Björt. Hún segir að í
nemendahópnum
sé mjög frjór jarð-
vegur fyrir slík
vinnubrögð. „Það
er alveg ótrúlegt að
fylgjast með því hve
hópurinn hefur náð að
hristast vel saman á
þessum dögum sem liðnir
eru frá því að við byrjuðum,“
segir hún. Björt segir nemendur
mjög ánægða og jákvæða.
Lunga skólinn er ekki ókeypis.
Hver önn kostar rúmlega hálfa millj-
ón og verða nemendur að greiða
skólagjöldin úr eigin vasa, því skól-
inn er ekki lánshæfur í opinbera
kerfinu. „En við bjóðum upp á
greiðsludreifingu og nemendurnir
hafa náð að kljúfa þetta,“ segir Björt.
Í gjöldunum er innifalin gisting á
staðnum. Kennslan, sem er á ensku,
fer fram í félagsheimilinu
Herðubreið, en gist er í
gamla spítalanum sem
nýlega hefur verið
endurbyggður.
Menntamálaráðu-
neytið hefur veitt
skólanum styrk til
að komast yfir erf-
iðasta hjallann í
upphafi. Forsvars-
menn skólans hafa
hins vegar áhuga á því
að starfsemin verði leidd í
lög og skólinn fái stuðning eins
og aðrar menntastofnanir.
Nemendur Lunga skólans eru í
haust ellefu auk tveggja lærlinga.
Um helmingur er Íslendingar en
hinir eru frá Ítalíu, Bandaríkjunum
og fleiri löndum. Fastir kennarar –
eða hópstjórar eins og þeir kjósa að
kalla sig – eru þrír. Þá koma nokkrir
stundakennarar að skólanum, m.a.
frá útlöndum. Hópurinn í kringum
skólann er því um tuttugu manns.
Skólinn er því farinn að skipta máli
Áhersla skólans er á
listir og mannrækt
Nýr lýðháskóli dregur fjölda fólks til Seyðisfjarðar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Forsvarsmenn F.v. Lasse Høgenhof, Björt Sigfinnsdóttir og Jonatan Spejlborg. Þau eru fastráðin við skólann.
AUSTURLAND2014Á FERÐ UMÍSLAND
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Þar sem áður var seld matvara,
fatnaður og búsáhöld er nú unnið að
listum og sköpun í víðasta skilningi.
Vöruhúsið er ný sköpunarsmiðja á
Höfn í Hornafirði, hún er í gamla
Kaupfélagshús-
inu og þar geta
allir sem áhuga
hafa fengið að-
stöðu og tækja-
búnað til list- eða
nýsköpunar.
„Það má
segja að þetta
hafi allt byrjað
með nýrri aðal-
námskrá grunn-
skólanna,“ segir
Vilhjálmur Magnússon sem veitir
Vöruhúsinu forstöðu. „Í henni er
lögð meiri áhersla á skapandi grein-
ar og verklegt nám í skólastarfi en
áður. Við fórum um landið, sáum
hvernig aðrir eru að gera þetta og í
kjölfarið fórum við að móta starfið.“
Stafræn hönnunarsmiðja
Vöruhúsið er rekið af sveitarfé-
laginu Höfn og Framhaldsskólanum
í Austur-Skaftafellssýslu. Vil-
hjálmur segir aðalmarkmið Vöru-
hússins vera að auka vægi skapandi
greina í samfélaginu. Núna felist
starfsemin aðallega í því að taka á
móti þeim sem vilji leggja stund á
listir eða handverk, einnig eru þar
kenndar list- og hönnunargreinar á
framhaldsskólastigi og þá er þar
Fab lab, stafræn hönnunarsmiðja
með tækjum til að búa til nánast
hvað sem hugurinn stendur til. Fab
lab-smiðjurnar, sem er stytting á
enska heitinu Fabrication labora-
tory eru víða um heim, nokkrar eru
starfandi hér á landi og er talsvert
samstarf og þekkingarmiðlun
þeirra á milli.
Fátt er Vöruhúsinu óviðkom-
andi. Þar er t.d. framköllunarher-
bergi, aðstaða til fatahönnunar,
smíðastofa, textílstofa, keramikofn,
aðstaða til hljóðupptöku, tónlistar-
herbergi og málm- og rafsuðurými.
Allir geta sótt um þessa aðstöðu. Að
auki er félagsmiðstöð barna og ung-
linga á Höfn, félagsmiðstöðin
Þrykkjan, með aðsetur í Vöruhús-
inu.
Fjölbreyttari kennsla
Á næstu mánuðum stendur til
að færa í Vöruhúsið verklegar
greinar í grunnskólanum á staðn-
um. „Stefnan er að bjóða upp á fjöl-
breyttari kennslu í verklegum
greinum en gengur og gerist,“ segir
Vilhjálmur. „Við viljum mennta
unga fólkið okkar betur og reyndar
alla þá sem áhuga hafa, á þessum
sviðum. Í Vöruhúsinu samþættum
við skólann, einstaklinga og fyrir-
tæki.“
Sköpunin er við völd í
gamla Kaupfélagshúsinu
Ljósmynd/Vilhjálmur Magnússon
Sköpun Í Vöruhúsinu er aðstaða til fjölbreyttrar listsköpunar, meðal ann-
ars myndlistar, og stendur aðstaðan opin öllum þeim sem hafa áhuga.
Vilhjálmur
Magnússon
Tónlist Í Vöruhúsinu eru fjögur æf-
ingaherbergi fyrir hljómsveitir.
Kennsla í náttúru- og samfélags-
greinum er óhefðbundin austur á
Bakkafirði. Bylgja Dögg Sigur-
björnsdóttir kennari og María
Guðmundsdóttir skólastjóri stigu
skref til breytinga sem hefur gef-
ist afar vel, að sögn Bylgju.
Hentum bókunum!
Við kennsluna er ekki notast við
bækur. „Við hentum bókunum!“
segir Bylgja Dögg við Morg-
unblaðið og brosir. „Við kennum
krökkunum sjálfstæð vinnubrögð
með þessum hætti. Við kennum í
lotum; við byrjuðum á því að
spyrja hvað þau héldu að ætti að
gera í náttúru- og samfélags-
fræðigreinum, þau settu saman
lista og réðu námsefninu í fyrstu
lotu, við í þeirri næstu og svo koll
af kolli.“
Í fyrstu lotu vetrarins var farið
yfir eldgos og jarðskjálfta og ekki
að undra, enda líklegasta algeng-
asta umræðuefnið hér á landi um
þær mundir. „Þau fá verkefni,
eiga að afla sér upplýsinga sjálf og
koma þeim svo frá sér og leiðirnar
til þess eru margar; það getur ver-
ið leikrit, stuttmynd eða hvað sem
er. Það er algjörlega undir krökk-
unum komið.“
Alls eru 11 kennslustundir í
þessum greinum í viku hverri.
Hver lota stendur í tvær til þrjár
vikur, og í lok hverrar er bæjar-
búum boðið í heimsókn og krakk-
arnir kynna verkefnin.
Dugleg að skapa
Bæði börn og kennarar hafa
gaman af þessari leið. „Krakkarnir
draga fram margt sem okkur
hefði líklega ekki dottið í hug; þau
eru dugleg að skapa. Þetta er líka
mjög góð leið fyrir tvítyngdu
börnin, sem eiga erfitt með að lesa
langa, þunga texta á íslensku.“
Á Bakkafirði eru nokkur börn
Pólverja og einnig börn sem eru
Hentu bókunum
til að kenna sjálf-
stæð vinnubrögð
Kennarar sem fara sínar eigin leiðir
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Una sér vel Hjónin Bylgja Dögg Sigurbjörnsdóttir, kennari á Bakkafirði,
og Jón Marinósson. Stelpan þeirra heitir Ronja Sjöfn Jónsdóttir.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2014