Morgunblaðið - 30.09.2014, Síða 15
fyrir bæjarfélagið. Hann setur svip á
bæjarbraginn, eflir mannlífið og
færir samfélaginu á staðnum tekjur
og atvinnu.
Skólanum hefur verið styrktur
af því að nokkrir þekktir ein-
staklingar hafa tekið sæti í stjórn
hans. Þar má nefna Sigrúnu Höllu
Unnarsdóttur fatahönnuð, Dýra
Jónsson framkvæmdastjóra Vest-
urports, Nínu Magnúsdóttur lista-
konu og stjórnarformann Nýlista-
safnsins, Margréti Pálu Ólafsdóttur
skólastjóra, Guðmund Odd prófess-
or við Listaháskólann og Ólaf Stef-
ánsson handknattleiksmann.
Skólinn var prufukeyrður í
mars og apríl síðastliðnum. Gekk
það vonum framar. Skólann sóttu þá
sautján nemendur frá átta mismun-
andi löndum. Ekkert aldurstakmark
er í skólanum, en hingað til hafa
nemendur flestir verið í kringum tví-
tugt og þrítugt.
Morgunblaðið/Golli
Prufukeyrslan Guðmundur Oddur prófessor í Listaskólanum ræddi við nemendur á vornámskeiðinu.
Morgunblaðið/Golli
Áberandi Lunga, hátíðin og skólinn, setja sterkan svip á Seyðisfjörð.
VITINN 2014
Undir yfirskriftinni Vitinn 2014 verður í hringferðinni
leitað að áhugaverðum vaxtarbroddum í atvinnu
lífinu um land allt. Lesendur eru hvattir til að senda
blaðinu ábendingar á netfangið vitinn@mbl.is.
hollensk í aðra ættina. „Þau finna
sér upplýsingar á netinu á sínu
eigin tungumáli en skrifa svo og
flytja verkefnin á íslensku.“
Ástæða þess að þær Bylgja
Dögg og María ákváðu að leggja
af hefðbundna kennslu í þessum
greinum var til að koma í veg fyr-
ir páfagaukalærdóm, sem stundum
er kallaður svo; þegar eitthvað er
lært utanbókar án þess þó að
muna það til frambúðar.
„Ég áttaði mig á þessu þegar við
vorum á nemendaferðalagi tveim-
ur vikum eftir sögupróf; tvær
stelpur höfðu fengið 10 á prófinu
og mér datt í hug að kanna hvað
þær myndu. Lagði fyrir þær sömu
spurningar og á prófinu og þær
vissu varla um hvað ég var að tala!
Þarna áttuðum við okkur á því að
það væri líklega ekki sérlega
heppilegt að kenna þessi fög eins
og alltaf hefur verið gert. Nú veit
ég að það skilur miklu meira eftir
að kenna eins og við gerum nú.“
Bylgja Dögg er fædd og uppalin
á Vogum á Vatnsleysuströnd og
flutti ekki austur fyrr en 2010.
Halldór Njálsson eiginmaður
prestsins á Skeggjastað, séra
Brynhildar Óladóttur, var með
Bylgju í jarðfræði í Háskóla Ís-
lands á sínum tíma og vissi að hún
hafði tekið að sér forfallakennslu
annað slagið.
„Dásamlegt“
„Halldór hringdi í mig þegar
vantaði kennara hér og spurði
hvort ég hefði áhuga á að koma.
Ég dreif mig á staðinn og fannst
svo gaman að kenna hér að ég
festist. Svo kynntist ég líka Jóni,
manninum mínum, og vil vera hér.
Það er dásamlegt að vera á
Bakkafirði,“ sagði Bylgja Dögg
þegar Morgunblaðið hitti hana að
máli.
Nú eru 15 börn í grunnskól-
anum á Bakkafirði, þar af eru 11 í
5. til 10. bekk og er kennt saman,
m.a. í vinnustofunum í náttúru- og
samfélagsgreinunum. skapti@mbl.is
Meðal fallegra gripa í Vopna-
fjarðarkirkju er skírnarfontur
sem stendur á útskornum stöpli
og moldunartrog. Gripina fékk
kirkjan báða að gjöf; fontinn og
stöpulinn til minningar um Einar
Björnsson í Holti, sem fórst með
vitaskipinu Hermóði í febrúar
1959, og trogið og reku til minn-
ingar um Einar frænda hans Sig-
urðsson, sem lést í svefni á ung-
lingsaldri, árið 1978.
Stöpullinn undir skírnarfont-
inn er úr smiðju Ríkarðs Jóns-
sonar, myndhöggvara og tré-
skurðarlistamanns. Ríkarður
hannaði gripinn en þýskur
starfsmaður á verkstæði hans í
Reykjavík er sagður hafa skorið
hann út. Það er listilega gert.
Björn Jóhannsson, skólastjóri
og kennari, byggði húsið Holt á
Vopnafirði og bjó þar. Hann var
faðir Einars heitins. Sigurður
sonur Björns og bróðir Einars
býr nú í húsinu ásamt eiginkonu
sinni, Þuríði Eyjólfsdóttur, en
þau áttu Einar yngri.
Í Holti búa nú einnig Anna,
dóttir þeirra hjóna, og Hjalti
Jörgensson maður hennar.
Einar eldri fórst með vitaskip-
inu Hermóði, sem fyrr greinir.
Þá létust alls tólf manns þegar
skipið var á leið frá Vest-
mannaeyjum til Reykjavíkur í af-
takaveðri aðfaranótt miðviku-
dagsins 18. febrúar 1959. Einar
var þá þrítugur.
„Þessi gripir eru meðal þeirra
sem ég segi sérstaklega frá þeg-
ar ég sýni kirkjuna. Mér hefur
lengi þótt athyglisvert hvernig
þeir nafnar og frændur hafa
fylgt Vopnfirðingum frá vöggu
til grafar,“ sagði Ólafur Val-
geirsson, formaður sóknar-
nefndar, í samtali við blaðamann
Morgunblaðins sem skoðaði
kirkjuna á dögunum.
Ólafur segir gripina jafnan
vekja athygli og ekki síður sög-
una af því hvernig þeir eru til-
komnir. skapti@mbl.is
Vopnfirsku frændurnir Einar og Einar
Fylgja íbúum frá
vöggu til grafar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fallegt Skírnarfonturinn á stöpl-
inum, moldunartrogið og rekan.
Vinsæl og fjölsótt listahátíð
LUNGA HALDIN Á SEYÐISFIRÐI Í MEIRA EN ÁRATUG
LungA hátíðin hefur verið haldin á Seyð-
isfirði í meira en áratug. Þetta er listahá-
tíð, einkum sniðin að ungu fólki. Dag-
skráin er fjölbreytt, skapandi vinnustofur,
listsýningar, gjörningar, dans, leiklist og
tónleikar.
Mikil aðsókn er jafnan að hátíðinni.
Þegar hún var haldin í júlí í sumar sem
leið komu á fjórða þúsund gestir til Seyð-
isfjarðar. Sannkölluð vítamínssprauta fyr-
ir bæjarfélag þar sem íbúar eru innan við
sjö hundruð.
LungA Frá fyrstu listahátíð
unga fólksins árið 2000.
Jantzen
Jolene
Tvær tegundir af glæsilegum
hægindastólum með snúning og ruggu.
Ármúla 5 • 108 Reykjavík • Sími 544 8181www.innlit.is
Þekking • Þjónusta
HÆGINDASTÓLAR
GLÆSILEGIR
FRÁ WHITE FEATHERS
4 leðurlitir
2 taulitir
Jantzen & Jolene
Verð:
139.000 áklæddur leðri (4 litir)
98.000 með sterku tauáklæði (2 litir)
20%
Kynninga-
afsláttur
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2014