Morgunblaðið - 30.09.2014, Síða 21
UMRÆÐAN 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2014
Við eigum afmæli í dag
Þökkum öllum okkar viðskiptavinum fyrir samfylgdina og viðskiptin
Við leggjum metnað okkar í að veita viðskiptavinum
okkar vandaða og persónulega þjónustu
Alpha
Skeifunni 17, 477 7777
Sylvía G. Walthersdóttir
Löggiltur fasteignasali
820-8081
sylvia@remax.is
Brynjólfur Þorkelsson
820-8080
binni@remax.is
Davíð Ólafsson
Löggiltur fasteignasali
897-1533
david@remax.is
Guðmundur Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali
899-9600
ghs@remax.is
Haukur Halldórtsson
Löggiltur fasteignasali
695-9990
haukurhalldors@remax.is
Hörður Sverrisson
Löggiltur fasteignasali
899-5209
hordur@remax.is
Einar Birgisson
Sölufulltrúi
661-9032
einar@remax.is
Halldór Kristján Sigurðsson
Sölufulltrúi
695-4649
hks@remax.is
Haukur Hauksson
Sölufulltrúi
699-2900
haukur@remax.is
Hörður Björnsson
Sölufulltrúi
660-8002
hb@remax.is
María Kristín Jónsdóttir
Sölufulltrúi
821-7676
maria@remax.is
Salvör Þ. Davíðsdóttir
Sölufulltrúi, MBA
844-1421
salvor@remax.is
Sunna Rós Baxter
Sölufulltrúi
823-2266
sunnabaxter@remax.is
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Sölufulltrúi
862-1914
thordis@remax.is
Ein helsta krafa
eldri borgara í kjara-
málum í dag er krafan
um að kjaragliðnun
sú, sem aldraðir og
öryrkjar urðu fyrir á
krepputímanum, verði
leiðrétt. Með kjaragl-
iðnun er átt við það
að lífeyrir aldraðra og
öryrkja hækkaði
minna en lægstu laun
en samkvæmt lögum á lífeyrir að
hækka til jafns við hækkun neyslu-
vísitölu og taka mið af hækkun
launa.
Á kreppuárunum eftir banka-
hrunið var lífeyrir aldraðra og ör-
yrkja frá Tryggingastofnun fryst-
ur. Lægstu laun hækkuðu hins
vegar um 16% árin 2009 og 2010.
En á sama tímabili hækkaði líf-
eyrir aldraðra og öryrkja frá al-
mannatryggingum ekki um eina
krónu. Síðan hafa lægstu laun
hækkað mun meira en lífeyrir. Líf-
eyrir aldraðra og öryrkja er ígildi
launa. Þess vegna er það ósvífið að
frysta kaup lífeyrisþega á sama
tíma og önnur laun hækka.
Mikil kjaragliðnun
Kjaranefnd Félags eldri borgara
í Reykjavík telur að kjaragliðnunin
sé það mikil sl. 5 ár að hækka
þurfi lífeyri strax um a.m.k. 20% til
þess að jafna metin. Flokksþing
Framsóknarflokksins ályktaði á
þessa leið um þetta mál fyrir þing-
kosningarnar 2013: Lífeyrir aldr-
aðra og öryrkja verði hækkaður
vegna kjaraskerðingar þeirra (og
kjaragliðnunar) á krepputímanum.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins,
sem haldinn var fyrir kosningarnar
2013, fjallaði einnig
um málið. Þar var eft-
irfarandi samþykkt:
Ellilífeyrir sé leið-
réttur strax til sam-
anburðar við þær
hækkanir, sem orðið
hafa á lægstu launum
síðan í ársbyrjun 2009.
Hér var um alveg
skýr kosningaloforð að
ræða hjá báðum
stjórnarflokkunum.
Þeir lofuðu að leið-
rétta kjaragliðnunina.
En efndir hafa engar orðið enn.
Ekki er að finna eina krónu í fjár-
lagafrumvarpinu fyrir 2015 til leið-
réttingar á kjaragliðnun kreppu-
tímans. Svo virðist því sem
stjórnarflokkarnir ætli að humma
þetta kosningaloforð fram af sér.
Eða með öðrum orðum: Svo virðist
sem stjórnarflokkarnir ætli að
svíkja þetta kosningaloforð.
Engar nýjar kjarabætur
í fjárlagafrumvarpinu
Ekki eru í fjárlagafrumvarpinu
fyrir 2015 nein framlög til nýrra
kjarabóta aldraðra og öryrkja. Að-
eins er í frumvarpinu eðlileg leið-
rétting vegna fjölgunar bótaþega
lífeyristrygginga milli ára, vegna
endurmats útgjalda og vegna
hækkunar á frítekjumarki lífeyr-
issjóðstekna ellilífeyrisþega sam-
kvæmt samkomulagi, sem stjórn-
völd gerðu við Landssamtök
lífeyrissjóða 2010.
Bætur hækka um næstu áramót
um 3,5% í samræmi við hækkun
vísitölu neysluverðs. Lægstu laun
hækkuðu um 5% við gerð síðustu
kjarasamninga. Talið er að laun
muni hækka um 5-6% næsta ár.
Það er því ljóst, að 3,5% hækkun
lífeyris nær ekki hækkun lægstu
launa. Er þetta í samræmi við af-
stöðu stjórnvalda fyrr og nú gagn-
vart öldruðum og öryrkjum, þ.e. þá
stefnu að klípa alltaf af bótum
aldraðra og öryrkja og halda kjör-
um þeirra niðri.
Matarskattur stórhækkaður
Mestu tíðindi fjárlagafrumvarps-
ins og tekjuöflunarfrumvarps í
tengslum við það eru tillögur um
hækkun virðisaukaskatts á mat-
væli. Lagt er til, að virðisauka-
skattur, sem lagður er á matvæli,
hækki úr 7% í 12%. En á móti
lækki almennur virðisaukaskattur
úr 25,5% í 24%.Vörugjöld falla nið-
ur. Alþýðusamband Ísland gagn-
rýnir hækkun á matarskatti og tel-
ur að hún bitni verst á þeim lægst
launuðu. Hagfræðingur ASÍ bendir
á, að þeir lægst launuðu noti tvö-
falt meira af tekjum sínum í mat-
arkaup en þeir hæst launuðu eða
21% af tekjum sínum en þeir hæst
launuðu noti aðeins 10% tekna
sinna til matarkaupa. Hækkun
barnabóta sem mótvægisaðgerð
gagnast ekki eldri borgurum og ör-
yrkjum. Aðeins 30% öryrkja hafa
börn á framfæri sínu. Vegna hækk-
unar matarskattsins hefði verið
eðlilegt að hækka lífeyri aldraðra
og öryrkja á móti. Góð mótvæg-
isaðgerð hefði einnig verið sú ráð-
stöfun að hækka skattleysismörkin
eins og LEB og FEB hafa farið
fram á. Hækkun skattleysismarka
hefði gagnast öldruðum og ör-
yrkjum vel og láglaunafólki yf-
irleitt.
Stjórnin hefur lítið
sem ekkert gert
Fulltrúar stjórnarflokkanna tala
mikið um það að ríkisstjórnin hafi
gert einhver ósköp fyrir aldraða
og öryrkja. En það eina sem rík-
isstjórnin hefur gert fyrir þessa
hópa er eftirfarandi: Frítekjumark
vegna atvinnutekna aldraðra var
hækkað úr 40 þús. á mánuði í 110
þús. kr. á mánuði. Það kostar 275
millj. kr. á ári. Og útreikningi
grunnlífeyris var breytt á ný og
hætt að reikna lífeyrissjóðs-
greiðslur með tekjum. Það kostar
1.575 millj. kr. á ári. Alls eru þetta
1.850 millj. kr. á ári. Annað gerði
stjórnin ekki að eigin frumkvæði
fyrir lífeyrisþega. Skerðing tekju-
tryggingar rann út af sjálfu sér,
þar eða lögin þar um voru tíma-
bundin og giltu til síðustu ára-
móta. Minni skerðing tekjutrygg-
ingar kostar 2,5 milljarða á ári. En
þrjár aðrar skerðingar frá 1. júlí
2009 hefur stjórnin ekki leiðrétt.
Og mesta kjaraskerðingin, kjaragl-
iðnunin, er óleiðrétt. Stjórnin get-
ur því hætt að guma af afrekum
sínum í málum aldraðra og ör-
yrkja. Hún valdi að gera það sem
kostaði lítið sem ekki neitt. T.d.
má búast við að kostnaður við
breytt frítekjumark vegna atvinnu-
tekna aldraðra komi allur til baka í
ríkiskassann í auknum sköttum af
vinnu aldraðra.
Vonandi leiðréttir þingið fjár-
lagafrumvarpið lífeyrisþegum í
hag.
Lífeyrir aldraðra hækki um 20%
Eftir Björgvin
Guðmundsson
»Ekki eru í fjárlaga-
frumvarpinu fyrir
2015 nein framlög til
nýrra kjarabóta aldr-
aðra og öryrkja. Aðeins
er í frumvarpinu eðlileg
leiðrétting …
Björgvin Guðmundsson
Höfundur er formaður kjaranefndar
Félags eldri borgara.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Butler hjá Bridsfélagi
Reykjavíkur
Jón Baldursson og Sigurbjörn
Haraldsson skoruðu mikið síðasta
spilakvöld, 65 stig, og hafa tekið for-
ystu í mótinu.
Staðan eftir annað kvöld af fjórum:
Jón Baldursson – Sigurbjörn Haraldss. 100
Hrólfur Hjaltason – Oddur Hjaltason 75
Kristján Blöndal – Hjördís Sigurjónsd. 74
Jöfn keppni á Suðurnesjum
Vetrarstarfið hófst sl. miðvikudag
með eins kvölds tvímenningi. Ekki
eru allir komnir í vetrargírinn og var
spilað á fjórum borðum. Keppnin var
jöfn og spennandi og lauk með sigri
Gunnlaugs Sævarssonar og Arnórs
Ragnarssonar sem skoruðu 53. Jó-
hannes Sigurðsson og Guðjón Svavar
Jensen voru með 51 sem og Gunnar
Guðbjörnsson og Sigurjón Ingi-
björnsson. Feðgarnir Bjarki Dags-
son og Dagur Ingimundarson urðu
að láta sér nægja fjórða sætið með
50.
Spilaður verður eins kvölds tví-
menningur nk. miðvikudag kl. 19 í fé-
lagsheimilinu á Mánagrund.
Ársþing Bridssambandsins
Ársþing BSÍ verður haldið í hús-
næði Bridssambands Íslands sunnu-
daginn 19. okt. og hefst klukkan 13.
Félög innan hreyfingarinnar hafa
setu- og atkvæðisrétt á þinginu sam-
kvæmt kvótaútreikningi skilagreina
en áheyrnarfulltrúar eru velkomnir
að sitja þingið.
Formenn eru beðnir um að senda
útfyllt kjörbréf eða tölvupóst með
nöfnum á þeim fulltrúum sem sitja
eiga þingið á bridge@bridge.is
Ef einhver hefur hug á að sitja
þingið án þess að vera fulltrúi félags,
sendi viðkomandi inn umsókn með
tölvupósti.