Morgunblaðið - 30.09.2014, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2014
Systurnar eiga
mjög margar góðar
minningar um afa.
Guðlaug Ósk
segir: Ég man þeg-
ar ég fór með afa í Djúpavík. Við
fórum í berjamó, í fjöru, klifruð-
um upp á fjall, skoðuðum hreiður
og margt fleira. Þar var gaman.
Við skriðum líka undir pallinn í
Leiðhömrunum að leita að stein-
um sem við sögðum að væri fjár-
sjóður. Afi spilaði líka fótbolta
við mig og leyfði mér að vinna.
Í fyrravetur þegar afi var að
keyra mig í skólann og við vorum
komin snemma tók afi mig með
sér í vinnuna í Skautahöllinni og
ég fékk að kveikja á öllum ljós-
unum og skjánum og búa til
kaffi, síðan skutlaði afi mér aftur
í skólann. Þegar mér leið illa var
afi alltaf kominn til að fara með
mér í gönguferð og ræða málin.
Ásdís Anna segir: Þegar við
vorum með afa í bíl, þá var hann
með spurningakeppni. til dæmis
fór hann með ljóð eða málshátt
og spurði svo hvað síðasta orðið
var, eða bað okkur að nefna tvær
tegundir af bílum eða spurði
okkur stærðfræðispurninga og
fleira. Einnig skemmtum við
okkur við að búa til nöfn úr stöf-
um á bílnúmeraplötum. Ég man
hvað var gaman þegar afi sótti
mig í skólann og hversu glöð ég
varð þegar ég sá hann bíða fyrir
neðan stigann.
Á Kanarí var afi að reyna að
svæfa mig og svo sofnuðum við
bæði. Við fórum einu sinni í bíl-
túr frá sumarbústaðnum, afi
keyrði okkur út um allt og sýndi
okkur ýmislegt, gömul hús og
annað. Í dýragarði í sumar sáum
við skilti þar sem stóð að það
mætti ekki opna bílgluggann, þá
hugsuðum við að afi væri ekki
bara búinn að opna gluggann,
✝ Valur Ósk-arsson fæddist
19. janúar 1946.
Hann lést 18. sept-
ember 2014. Útför
Vals fór fram 29.
september 2014.
heldur kominn út og
jafnvel farinn að
gefa dýrunum.
Lilja Rós segir:
Afi fór alltaf með
okkur í Sjóræn-
ingjaskipið. Við sát-
um oft saman í
stólnum inni í afa
herbergi og horfð-
um á Tomma og
Jenna og Simpsons.
Afi leyfði mér að
teikna á gömul fréttablöð og
teiknaði fyrir mig dýr og fólk. Afi
lék stundum við mig með dúkk-
urnar, það var gaman.
Við söknum þín afi okkar.
Snert hörpu mína, himinborna dís,
svo hlusti englar guðs í Paradís.
Við götu mína fann ég fjalarstúf
og festi á hann streng og rauðan skúf.
Úr furutré, sem fann ég út við sjó,
ég fugla skar og líka úr smiðjumó.
Í huganum til himins oft ég svíf
og hlýt að geta sungið í þá líf.
(Davíð Stefánsson frá Fagraskógi)
Guðlaug Ósk, Ásdís Anna
og Lilja Rós.
Send mér eld í anda
eilífðar úr heimi,
Drottinn. Lífs af lindum
ljós þitt til mín streymi.
Grafist gamlar sorgir.
Gleymist dagsins mæða.
Sé mín þrá og sigur
sókn til þinna hæða.
(Einar M. Jónsson)
Okkur langar til að minnast
frænda okkar í örfáum orðum,
önnur af Pálsættinni (föðurætt-
in), hin af Þorsteinsættinni
(móðurættin). Leiðir okkar
þriggja hafa oft legið saman á
lífsleiðinni við ólíkar kringum-
stæður, alltaf skemmtilegar, þar
sem Valur var hrókur alls fagn-
aðar.
Minningar um Val sækja að
okkur, m.a. minningar tengdar
Ströndunum, sem hann sýndi
mikinn áhuga síðustu árin. Hann
var ættaður frá Bassastöðum í
Steingrímsfirði í föðurætt, átti
rætur að rekja í Staðarsveitina á
Snæfellsnesi í móðurætt og
fæddur á Geirmundarstöðum í
Strandasýslu.
Valur hefur alla tíð verið mjög
félagslyndur. Allt frá því að hann
var unglingur hefur gítarinn
aldrei verið langt undan. Hann
var síspilandi, sísyngjandi, frum-
samda texta og aðra texta, og
hélt alltaf uppi fjörinu. Það var
alltaf glatt á hjalla þar sem Valur
var.
Hann fer snemma í Kennara-
skólann og það virðist hafa verið
hans köllun að vera kennari.
Hann hafði orð á því þegar hann
var kominn á eftirlaun að hann
sæi eftir kennarastarfinu.
Á starfsferli sínum sinnti
hann ýmsum störfum í skóla-
starfi, hann var skólastjóri við
heimavistarskóla af gömlu gerð-
inni og kom að stjórnun stærri
skóla á höfuðborgarsvæðinu.
Hann kom að kennslu á flestum
sviðum, m.a. á tölvusviðinu þar
sem hann sérhæfði sig í tölvu-
notkun í grunnskólum. Hann var
mjög fjölhæfur og margt til lista
lagt.
Valur fór ekki í manngreinar-
álit, kom jafnt fram við alla.
Hann var mikill sögumaður, ljóð-
elskur og samdi mikið af mjög
fallegum ljóðum, bæði tækifær-
isvísur og önnur ljóð.
Það var gaman að hitta Val í
maí sl. þar sem hann var í Hús-
dýragarðinum með dóttur og
barnabarni. Þar lék hann á als
oddi.
Við frænkurnar í báðar ættir
Vals sendum fjölskyldu Vals,
eiginkonu, börnum, barnabörn-
um, systkinum Vals og fjölskyld-
um þeirra okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Minningin um músíkalskan,
hláturmildan húmorista og ynd-
islegan frænda lifir.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Laufey Valdimarsdóttir frá
Hólmavík og Valgerður
Birna Snæland Jónsdóttir
frá Skarði í Bjarnarfirði.
Valur Óskarsson var sannar-
lega kennari af Guðs náð. Hann
var hæfileikaríkur maður, gítar-
leikari, hagyrðingur, ljósmynd-
ari og teiknari svo að eitthvað sé
nefnt. Valur var líka læs á um-
hverfi sitt – íslenska náttúru og
átti manna auðveldast með að
umgangast nemendur sína á
jafnréttisgrundvelli. Þegar Val-
ur lauk kennsluferli sínum við
Rimaskóla árið 2010 spannaði
ferillinn 46 ár, ótrúlegt en satt,
en samkvæmt bókinni Kennara-
tal á Íslandi hóf hann kennslu 18
ára gamall. Það var okkur í ný-
stofnuðum Rimaskóla gríðarleg-
ur fengur að fá Val til kennslu
árið 1995. Þessi reyndi skóla-
maður kom ferskur til starfa og
heillaðist af nýlegri kennslu-
grein, tölvu- og upplýsinga-
mennt, grein sem þá var í örri
þróun. Valur eyddi miklum tíma
við undirbúning kennslunnar,
kynnti sér nýjustu kennsluað-
ferðir og var í leiðandi hópi
tölvukennara í lok 20. aldar. Auk
kennslunnar var Valur óspar á
tíma sinn við að aðstoða sam-
kennara sína til þess að læra á og
viðhalda tölvuþekkingu innan
skólans. Hjálpsemi hans og
hvatning létti okkur samstarfs-
mönnum lífið.
Valur kenndi við Rimaskóla í
rúman áratug. Hann var frá
fyrsta degi afar vinsæll og vel
liðinn, jafnt af nemendum sem
starfsmönnum. Valur var mikill
húmoristi og orti ótal smellnar
gamanvísur sem engan særðu en
alla kættu. Á flestum árshátíðum
starfsmanna og nemenda tróð
Valur upp með gítar og söng. Þá
runnu upp úr honum gamanvísur
sem alltaf slógu í gegn. Valur var
mikill tungumálamaður og
kenndi dönsku, las ensku sér til
ánægju og heimsótti Spánverja
til að læra af þeim spænsku.
Valur Óskarsson var virkur í
Starfsmannafélagi Rimaskóla og
ætíð boðinn og búinn að skipu-
leggja skemmtanir og ferðalög.
Ánægjulegar og árangursríkar
fræðsluferðir kennara og starfs-
manna til Halifax og Kaup-
mannahafnar voru einstaklega
vel undirbúnar og þar stóð Valur
fremstur í flokki starfsmanna.
Á 10 ára afmælishátíð vorið
2003 var skólasöngur Rimaskóla
frumfluttur; texti Vals Óskars-
sonar við lag Torfa Ólafssonar,
sem var kennari við skólann, og
velþekktur lagasmiður. Skóla-
söngurinn er einstaklega falleg-
ur og textinn innblásinn af skóla-
menningu. Nemendur læra
Rimaskólasönginn utan bókar í
upphafi skólagöngu og boðskap-
urinn er þeim skýr. „Í Rimaskóla
erum og ýmislegt þar gerum, svo
lærdómur og leikur saman fer.“
Þessi vísuorð lýsa vel viðhorfum
Vals til kennarastarfsins.
Kennsluaðferðir hans voru oftar
en ekki óhefðbundnar en áhuga-
verðar og árangursríkar. Ís-
lenskir og erlendir skólaspek-
ingar eyða óratíma við að koma
til móts við hugtakið „Skóli án
aðgreiningar“ en Val Óskarssyni
var hugtakið eðlislægt. Oft hef
ég séð fyrir mér hvernig „skóli
fyrir alla“ tengist kennsluaðferð-
um Vals.
Við ótímabært andlát Vals
fyllumst við samstarfsmenn
hans og vinir einlægum söknuði.
Blessuð sé minningin um góðan
og greiðvikinn félaga. Fyrir
hönd okkar í Rimaskóla sendi ég
Ásdísi, eiginkonu Vals og börn-
um hans þremur okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Helgi Árnason,
skólastjóri Rimaskóla.
Það er undarlegt að hugsa til
þess að okkar fyrrverandi ná-
granni, kennari og vinur, Valur,
sé ekki lengur á meðal okkar.
Hann átti oft leið framhjá æsku-
heimili okkar í Leiðhömrum og
bankaði reglulega upp á eða
spjallaði við okkur yfir runnann.
Valur hafði góða nærveru og var
spjallið oft langt og gott. Þó að
minna hafi orðið um heimsóknir
og spjall okkar á milli á síðari ár-
um, eins og gengur og gerist,
minnumst við Vals með þakklæti
og kærleika í huga. Við vissum
að til hans gátum við leitað og
sótt til hans ráðgjöf og vináttu.
Þessar stundir geymum við í
hjarta okkar.
Við sendum Ásdísi, Jóhönnu,
Evu, Braga og öðrum ættingjum
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Sárt er vinar að sakna,
sorgin er djúp og hljóð.
Minningar mætar vakna,
svo var þín samfylgd góð.
Daprast hugur og hjarta,
húmskuggi féll á brá,
lifir þó ljósið bjarta,
lýsir upp myrkrið svarta,
vinur þó falli frá.
Góðar minningar geyma
gefur syrgjendum fró.
Til þín munu þakkir streyma.
Þér munum við ei gleyma.
Sofðu í sælli ró.
(Höf. ók.)
Þorsteinn Mar, Sara
Hrund og Ástrós, áður
Leiðhömrum 17.
Valur Óskarsson
Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030
ALLAR SKREYTINGAR UNNAR
AF FAGMÖNNUM
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
✝
Okkar ástkæra,
RAGNHEIÐUR ANNA STEFÁNSDÓTTIR
sjúkraliði,
lést á dvalarheimilinu Grund
sunnudaginn 21. september.
Útförin fer fram frá Neskirkju í Reykjavík
miðvikudaginn 1. október kl. 13.00.
Margrét Stefanía Sveinsdóttir,
Stefán Þór Herbertsson,
Tryggvi Þór Herbertsson,
Víðir Þór Herbertsson
og fjölskyldur.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLMI ANTON SIGURÐSSON,
áður Ægisstíg 3,
Sauðárkróki,
lést á Dvalarheimili aldraðra, Sauðárkróki,
laugardaginn 27. september.
Ólöf Pálmadóttir, Þorsteinn Ingólfsson,
Guðbjörg Sigríður Pálmadóttir, Valgeir Steinn Kárason,
Snorri Rúnar Pálmason, Anne Marie Haga,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
HELGA SIGURJÓNSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum
miðvikudaginn 24. september.
Útförin fer fram frá Kotstrandarkirkju
fimmtudaginn 2. október kl. 14.00.
Valur Snorrason,
Sigurjón Valsson, Lucia Guðný Jörundsdóttir,
Freyja Valsdóttir, Jón Sigfússon,
Snorri Jón Valsson,
Fanney Guðrún Valsdóttir,
Vilbergur Karl Jónsson,
Þórarna Vala Jónsdóttir.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
SJÖFN ZOPHONÍASDÓTTIR
leikskólakennari,
lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum
laugardaginn 27. september.
Útförin verður auglýst síðar.
Gunnar M. Steinsen,
Snorri Gunnarsson, Hróðný Njarðardóttir,
Lilja Anna Gunnarsdóttir,
Kristrún Sjöfn Snorradóttir.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR ÁRNASON
til heimilis í Lukku,
Vestmannaeyjum,
lést á Heilbrigðisstofnuninni í Vestmanna-
eyjum sunnudaginn 21. september.
Hann verður jarðsunginn frá Landakirkju
laugardaginn 4. október kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á reikning til styrktar ekkju hans á
erfiðum tímum, kt. 220946-7899, banki 0582-15-31102.
Kristín Valtýsdóttir,
Árni Þór Gunnarsson, Hrund Óskarsdóttir,
Ásta Sigrún Gunnarsdóttir, Regin Jacobsen,
Kristinn Týr Gunnarsson, Rakel Rut Sigurðardóttir,
barnabörn og langafabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ELLEN K. EINARSDÓTTIR,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði
laugardaginn 27. september.
Útförin fer fram frá Garðakirkju
mánudaginn 6. október kl. 15.00.
Guðmundur Ingvason, Guðný Bjarkadóttir,
Örn Orri Ingvason, Auður Hansen,
Dagmar Svanhvít Ingvadóttir, Hjörvar Guðmundsson,
Jóhann Ingvi Ingvason,
barnabörn og barnabarnabörn.