Morgunblaðið - 30.09.2014, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2014
Gunnar Ingi Birgisson er verkfræðingur og starfar mikið íNoregi. Hann er raunar á leið þangað á afmælisdaginn, nán-ar tiltekið til Narvíkur í Norður-Noregi. „Í gegnum höfnina í
Narvík eru flutt 80% af öllu málmgrýti sem unnið er úr í Evrópu. Nú
er verið að bæta vegakerfið þangað og í Hálogalandsfirði er verið
að reisa næstlengstu hengibrú í Noregi, 1.100 metrar að lengd. Suð-
urverk sér um að leggja veginn að brúnni, annar verktaki sér um
brúna og þriðji verktakinn, sem er frá Kína, sér um vírinn sem held-
ur brúnni. Vegavinnunni á að vera lokið á næsta ári en brúin á að
vera tilbúin 2017. Annars er þetta svo mikið reglugerðarsamfélag í
Noregi að ég verð örugglega búinn að breytast í reglustiku áður en
yfir lýkur.“ Gunnar verður í viku úti í Noregi núna en venjulega er
hann rúmlega tvær vikur þar og tæpar tvær vikur á Íslandi.
Gunnar bæði teflir og spilar brids í tómstundum sínum. „Ég tefli í
skákdeild KR en hef mætt illa undanfarið vegna vinnunnar í Noregi.
Ég hef svo teflt á Flugleiðamótinu sem er sveitakeppni og er haldið
um hver áramót og okkur tókst að vinna mótið síðast. Ég hef hins
vegar ekki enn komist í að tefla brids opinberlega. Svo dvel ég lang-
dvölum í sumarbústað sem við hjónin eigum í Ölfusi og sinni barna-
börnunum. Það er alltaf nóg að gera.“
Kona Gunnars er Vigdís Karlsdóttir, sjúkraliði á öldrunardeild
Landakots, og dæturnar eru tvær, Brynhildur og Auðbjörg Agnes.
Gunnar á fimm barnabörn.
Gunnar Birgisson er 67 ára í dag
Morgunblaðið/Eggert
Skæður skákmaður Gunnar var fastagestur á hraðskákmótum í
KR-húsinu en hefur lítið teflt undanfarið vegna anna í Noregi.
Vinnur að stór-
verkefni í Noregi
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Magnea Ósk Indriðadóttir
og Jóna Karítas Guðmunds-
dóttir söfnuðu 3.000 krón-
um til styrktar Rauða kross-
inum. Það gerðu þær með
því að standa fyrir utan Hlíð-
arkaup á Sauðárkróki og
selja skraut af ýmsu tagi
sem þær höfðu föndrað
sjálfar. Með þeim stöllum á
myndinni er Ólöf Erla
Indriðadóttir.
Hlutavelta
Brúðkaup
Ljósmynd/Anna Ellen Douglas
Harpa Sigmarsdóttir og
Þór Sæþórsson voru gef-
in saman í hjónaband 21.
júní síðastliðinn.
H
anna Björg fæddist í
Reykjavík 30.9. 1974
en ólst upp í Hafn-
arfirði: „Ég ólst upp á
Hraunbrún þar sem
hraunið og Víðistaðatúnið blasa við.
Byggðin þarna var mun minni en nú
og alls staðar leiksvæði, grasblettir
og dásamleg drullusvæði.
Á þeim árum voru allir úti að leika
langt fram á kvöld og mikið um að
vera. Við krakkarnir vorum mikið á
BMX-hjólum, héldum keppnir og
mót en hápunkturinn var hjóla-
brettarampur sem við fengum að
búa til á túninu við Víðistaðaskóla.
Þar vorum við öllum stundum á
brettum og hjólum.
Ég er mikill „Gaflari“ þó ég búi
núna í Reykjavík enda stefni ég að
því að eyða efri árunum í Hafnar-
firði.“
Hanna Björg var í Víðistaðaskóla,
var í MR í eitt ár en lauk stúdents-
prófi frá Flensborg 1995. Hún vann
Hanna Björg S. Kjartansdóttir íþróttafræðingur – 40 ára
Í gönguferð Hanna Björg og Sara, ásamt Camillu og Daníel Kjartani, koma niður í Reykjadal ofan úr Hengladölum.
Lífsglöð íþróttakempa
Á tónleikum Justin Timberlake Hanna Björg og Sara kynntust 1998.
Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2
Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu,
bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti,
kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar,
hjólastillingar og margt fleira.
LAGFÆRUM
BÍLINN
VIÐ
www.solning.is