Morgunblaðið - 30.09.2014, Page 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Almannatengslahluti stjörnukorts
þíns lýsist upp við sérhvert framtak.
Kynntu þér alla málavexti vandlega áður
en þú afræður að veðja á einhvern hestinn.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert með ýmsar vangaveltur í sam-
bandi við ákveðna samstarfsmenn. Reyndu
að skipuleggja tíma þinn þannig að þú get-
ir sinnt sjálfum þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér finnst einhvern veginn eins
og þú náir ekki til fólks og ættir því að
endurskoða með hvaða hætti þú talar til
þess. Taktu óhrædd/ur við aukinni ábyrgð.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Sumt virðist svo flókið og fjarlægt
að þér finnst þú ekkert hafa í það að gera.
Eitt er að slappa af en þegar það gengur
út í öfgar verða afleiðingarnar slæmar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú gætir lent í því að hæfni þín sé
dregin í efa. Hefnd er eins og að brenna
húsið sitt til að losna við rottu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Viðleitni þín til hagsýni og skipu-
lagningar skilar árangri. Hverju þarftu að
breyta til að verða glaður í vinnunni?
23. sept. - 22. okt.
Vog Við þurfum öll á heimili og fjölskyldu
að halda. Mundu að hlutirnir gerast ekki
sjálfkrafa og þú þarft að hafa fyrir þeim.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að gera einhverjar
ráðstafanir varðandi heilsu þína. Einhver er
viljugur til að hjálpa þér með vissan hlut í
dag. Sinntu því vinum þínum og gefðu þér
tíma til að hlusta á þá.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ef fólk stendur auðum höndum
í kringum þig skaltu finna því næg verk-
efni. Líttu á verkefnið sem íþrótt; teygðu
vel á og ekki gera þau sígildu mistök að
borða yfir þig áður en „viðureignin“ hefst.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Óöryggi er oft talið neikvætt en
kannski eigum við að líta á það sem sann-
leika í sumum tilvikum. Ef þú treystir á
sjálfan þig munu aðrir ganga til liðs við
þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert skyldurækinn og góður,
gerir öðrum greiða og leiðbeinir týndum
sálum. Farðu vel með þær, því það er þitt
hlutverk að skila þeim áfram til eftirkom-
enda þinna.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þótt það sé alltaf auðvelt að leita
uppi gamlar lausnir er það lélegt til lengd-
ar. Láttu hvatvísina ráða för.
Karlinn á Laugaveginum varsvolítið hissa á því sem Erna
Indriðadóttir sagði á Eyjunni, að
fólk yrði ósýnilegt með árunum.
Hann hallaði undir flatt og horfði
upp á Skólavörðuholtið:
Enginn veit hvort Erna sér
– ellin þessu veldur –
hvernig útlits karlinn er,
kerlingin ekki heldur.
Davíð Hjálmar Haraldsson sagði
á sunnudag að ekki væru nema 40
ár síðan fyrsti kvenpresturinn var
vígður, áður var þetta eingöngu
karlastétt. Nú er kona biskup, fjöldi
kvenpresta og jafnræði kynja hjá
kirkjunni.
Áður var þar ærið bil,
úr því kynin leystu.
Núna virðist varla til
vegprestur með eistu.
Ágúst Marinósson hélt áfram:
Með gleði um sveitir fóru fyr
fullir prestar löngum.
Núna heita heilagir
í helgum anda ströngum.
Hafsteinn Reykjalín bregður upp
mynd úr bæjarlífinu og kallar
„Ádeilu nr. 86“
Andinn hér á Ingólfstorgi,
engu líkur er.
Þó að flestir brosi’ og borgi,
bölva aðrir hér.
Fátæktin á fjölda hliða,
fólk þar horfir á.
Úr rusla fötum fóðrið víða,
fá þeir mat sinn hjá.
Svona er nú blessuð borgin,
bölið ekki sér.
Sumir éta kaffi-korginn,
komi hann frá þér.
Útlent fólk þungt andann dregur.
Er það svona hér?
Endalaus sem vetrar vegur
vörðuð fátækt er.
Pétur Stefánsson hefur sína sýn á
mannfélagið:
Ásýnd þeirra er guggin, grá.
Glaðir púa og svæla.
Ósköp finnst mér sárt að sjá
sígarettuþræla.
Ísleifur Gíslson orti „Eddu hina
nýju“:
Labbar ettir lágfættur
laus, að prettum hniginn,
„cigarettu-soghólkur“
sem hér fléttar stiginn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ósýnileiki, jafnrétti
og ádeila nr. 86
Í klípu
ÞÚ SAGÐIR AÐ VIÐ GÆTUM HLUSTAÐ Á
TÓNLIST MEÐ MATNUM.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
BARA, EKKI GLEYMA ÞVÍ SEM DÓMARINN
SAGÐI UM ÞAÐ AÐ GRÍPA TIL OFBELDIS
EF ÞÚ TAPAR.
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að kenna honum að
dansa.
ÉG HATA
MORGNA.
ÉG HATA FÓLK SEM
ER MORGUNGLATT.
OG ÉG HATA GAMLA GÚMMÍ-
OMMELETTUGRÍNIÐ.
KANN FÁTÆKLEGI
BLENDINGSHUNDURINN ÞINN
EINHVER BRÖGÐ?
STUNDUM PISSAR HANN
ÓSTJÓRNLEGA.JÁ
Víkverji á ekki uppþvottavél, þaðgerir það að verkum að allt sem
óhreinkast í eldhúsinu þarf að vaska
upp í höndunum. Víkverji hefur ekki
barmað sér yfir því enda ágætt að
enda daginn á fullum vaski af leir-
taui og góðu útvarpsefni. Miklu
betra fyrir sálina en sjónvarpsgláp.
x x x
Eitt fer þó í taugarnar á Víkverja íuppvöskunarheiminum en það
er hvað uppþvottahanskar eru léleg-
ir.
Vont er að vaska upp án viðeig-
andi hanska sem verja viðkvæmar
hendur Víkverja fyrir bleytu og hita
vatnsins. Uppþvottahanskar sem
fást hér úti í búð virðast samt ekki
fyrir uppþvott gerðir – líklega bara
ætlaðir fyrir uppþvottavélaeigendur
sem vilja vera hanskaklæddir þegar
þeir raða í vélina.
x x x
Víkverji hefur aldrei átt upp-þvottavél þrátt fyrir að vera
kominn hátt í fertugt og því farið í
gegnum ófáar tegundir af gúmmí-
hönskum. Eitt sem einkennir þá alla
er að eftir stutta notkun kemur gat
og gúmmíhanski sem lekur gerir lít-
ið gagn. Víkverji kaupir líklega nýtt
par af uppþvottahönskum í hverjum
mánuði og alltaf eftir nokkurra
vikna uppvask kemur gat á vísifing-
ur hægri handar og þumal
fingur vinstri handar.
x x x
Þá kemur að öðru í sambandi viðuppþvottahanskana. Það virðist
ekki vera ætlast til þess að hand
stórir einstaklingar vaski upp.
Í flestum matvöruverslunum er
boðið upp á tvær til fjórar tegundir
af uppþvottahönskum til sölu. Þeir
koma í mismunandi stærðum og það
er tilviljun ef Víkverji finnur hanska
af stærstu gerð, eða large. Það virð-
ast aftur á móti ógrynni keypt inn af
hönskum í millistærð, medium, en
þá stærð getur Víkverji ómögulega
troðið sér í. Því er spurning hvort
innkaupastjórar verslana séu haldn-
ir gamaldags hugmynd um hlutverk
kynjanna á heimilinu og panti aðeins
hanska í kvenstærðum því í þeirra
huga sé það hlutverk kvenkynsins að
vaska upp.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Ég vil lofa nafn Guðs í ljóði og mikla
hann í lofsöng. (Sálmarnir 69:31).
Gnoðarvogi 44, 104 Rekjavík | sími: 588 8686 | hafberg@internet.is | hafberg.is
VIRKA DAGA 10.00 - 18.15
LAUGARDAGA 11.00 - 15.00
OPIÐ
FISKIVEISLA
HAFBERGS
Nýsteiktar fiskibollur aðeins 1390 kr/kg
Plokkfiskur, sá besti í bænum 1390 kr/kg
Humarsúpa Hafbergs
Klausturbleikja
Frí hei
msend
ing
ef vers
lað er
fyrir 5
.000
eða m
eira
Hugsaðu umheilsunaog borðaðuFISK