Morgunblaðið - 30.09.2014, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2014
Mr. Turner, nýjasta kvik-mynd verðlaunaleik-stjórans Mike Leighsem hlýtur heiðurs-
verðlaun RIFF, er að mörgu leyti
ólík fyrri verkum hans. Og þá sér-
staklega hvað það varðar, að í stað
þess að skapa skáldaða frásögn um
persónurnar, með afgerandi hvörf-
um, eins og margir þekkja til að
mynda úr meistaraverkinu Secrets
and Lies, er hér sögð raunveruleg
saga eins helsta listamanns Breta síð-
asta aldarfjórðunginn sem hann lifði.
Dramatíkin er fyrir vikið ólík þeirri
sem Leigh hefur áður birt á hvíta
tjaldinu, en þetta er engu að síður
firnafín og vönduð kvikmynd.
Leigh er lífi Turners afar trúr. Jo-
seph Mallord Willam Turner (1775-
1851) var einn af lykilmönnum róm-
antísku stefnunnar í myndlist og mál-
aði dulúðugar og stemningsríkar
myndir, sem urðu sífellt meira ab-
strakt þegar leið á ævina og þá misstu
margir samtímamanna hans líka
tengingu við þær. Í skondinni senu
gerir Viktoría drottning lítið úr þeim
á sýningu, þegar Turner heyrir til.
Timothy Spall túlkar sérlundaðan
listmálarann á meistaralegan hátt,
rymjandi og stynjandi, iðulega æði
durtslegur en á þó til að opinbera
óvænta blíðu og tilfinningasemi eins
og í makalausu atriði þar sem hann
syngur hluta af harmljóði eftir Pur-
cell. Spall naut tilsagnar í málun í tvö
ár, áður en kvikmyndatakan hófst, og
í eftirminnilegum senum sjáum við
hann ráðast á strigann með penslum,
tuskum og spýtingum, í leit að réttu
myndrænu áhrifunum.
Turner bjó lengst af sínum fullorð-
insárum með öldruðum föður (Paul
Jesson), og er samband þeirra sýnt á
fallegan hátt. Listmálarinn kemur
ekki jafn vel fram við ráðskonu sína
(Dorothy Atkinson), sem dáir hann en
nýtur lítillar athygli, nema þegar mál-
arinn kemur fram vilja sínum við
hana, eins og hundur. Turner hafði
áður átt í sambandi við ekkju í Lund-
únum, frænku ráðskonunnar, og getið
henni dætur sem hann gekkst ekki
formlega við; öll samskipti við þetta
fólk eru sérkennileg, en svo fellur list-
málarinn fyrir annarri ekkju, sem
Marion Bailey túlkar listavel, og
eyðir drjúgum tíma ævikvöldsins
með henni.
Myndin er einstaklega fallega
kvikmynduð og iðulega með hliðsjón
af myndverkum eftir Turner. Töku-
maðurinn Dick Pope beitir gulum filt-
er, eins og horft sé á gamalt fern-
iserað málverk, og hægar tökurnar
eru margar hverjar hreint augnakon-
fekt.
Búast má því að áhugafólk um
myndlist njóti Mr. Turner sér-
staklega vel. Til að mynda að sjá svið-
setningar leikstjórans á senum úr
Konunglegu listakademíunni, þar
sem samkeppni listamanna er nánast
áþreifanleg og Turner tekst að
móðga John Constable. Auka-
persónur eru dregnar jafn skýrum og
eftirminnilegum dráttum og aðal-
persónur, þar á meðal listheimspek-
ingurinn John Ruskin sem er gerður
afar hlægilegur og tilgerðarlegur.
Mr. Turner er enn ein gæðakvik-
myndin úr smiðju Leigh og túlkun
Spall á listamanninum meistaraleg.
Ólíkindatól Leikarinn Timothy Spall í hlutverki JMW Turner, sem tekur hér út verkin sem hengd hafa verið upp
fyrir sýningu Konuglegu listakademíunnar. Spall fer á kostum í túlkun sinni á sérsinna listamanninum.
Sérlundaður snillingur
RIFF 2014 - Háskólabíó
Mr. Turner bbbbm
Leikstjóri og handritshöfundur: Mike
Leigh. Kvikmyndataka: Dick Pope.
Helstu hlutverk: Timothy Spall, Paul
Jesson, Dorothy Atkinson. Bretland
2014. 149 mínútur.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
KVIKMYNDIR
30.09.2014 Háskólabúió 1. Kl. 20.
Spurt og svarað.
RIFF 2014 31
Tilkynnt hefur verið að Ingolf Ga-
bold hljóti heiðursverðlaun fyrir
æviframlag á uppskeruhátíð evr-
ópsku ljósvakaverðlaunanna Prix
Europa sem fram fer í Berlín 18.-
25. október nk. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá Prix Europa.
Gabold fæddist í Heidelberg árið
1942, sonur þýsks föður og danskr-
ar móður. Þegar hann var aðeins
þriggja ára flúði móðir hans með
hann til Danmerkur þar sem hann
nam síðar við Konunglega danska
tónlistarháskólann og varð þekkt
tónskáld. Árið 1974 var hann ráð-
inn til Danska útvarpsins sem fram-
leiðandi hljómsveitarefnis. Hann
einbeitti sér síðar að skrifum og
fjölmiðlasamskiptum og hefur m.a.
kennt við Danska leiklistarskólann
og Háskólann í Árhúsum. Árið 1999
var hann ráðinn yfirmaður leikins
efnis hjá Danska útvarpinu 1999 og
gegndi þeirri stöðu til ársins 2012.
Hann er því maðurinn á bak við vin-
sæla sjónvarpsþætti á borð við
Rejseholdet, Nikolaj og Julie,
Krøniken, Ørnen, Forbrydelsen og
Borgen.
Aðspurður hver sé lykillinn að
baki velgengni hans sem yfirmanns
leikins efnis svarar Gabold einfald-
lega: „Hættu áður en þú ferð að
endurtaka þig. Berðu höfundana á
höndum þér. Útvegaðu þeim vinnu-
herbergi þar sem þeir geta skrifað,
full laun og algjört listrænt frelsi.“
Þegar Gabold lét af störfum hjá
Danska útvarpinu sökum aldurs
réð hann sig til starfa hjá al-
þjóðlega framleiðslufyrirtækinu
Eyeworks þar sem hann vinnur nú
að þróun nýrrar þáttaraðar sem
nefnist Witnesses sem hefur göngu
sína í Bandaríkjunum haustið 2015.
Ingolf Gabold heiðraður á Prix Europa
Farsæll Ingolf Gabold er maðurinn á bak
við þáttaraðirnar Borgen og Forbrydelsen.
★★★★ – SGV, MblHamlet –
Róðarí (Aðalsalur)
Lau 4/10 kl. 20:00 Fös 17/10 kl. 20:00
Sun 12/10 kl. 20:00 Lau 25/10 kl. 20:00
Eldklerkurinn (Aðalsalur)
Fim 9/10 kl. 20:00 Sun 19/10 kl. 20:00
Kameljón (Aðalsalur)
Sun 5/10 kl. 20:00
Trúðleikur (Aðalsalur)
Sun 12/10 kl. 14:00
Lífið (Aðalsalur)
Lau 18/10 kl. 14:00 Sun 2/11 kl. 13:00 Sun 9/11 kl. 13:00
Sun 26/10 kl. 13:00 Sun 2/11 kl. 15:00 Sun 9/11 kl. 15:00
Sun 26/10 kl. 15:00 Lau 8/11 kl. 14:00
All Change hátíðin (Aðalsalur, kaffihús, önnur rými)
Lau 4/10 kl. 14:00 Ýmsir
viðburðir allan daginn
Sun 5/10 kl. 11:00 Ýmsir
viðburðir allan daginn
Strengir (8 ólík rými Tjarnarbíós)
Fim 23/10 kl. 19:00 Fös 31/10 kl. 19:00
Fös 24/10 kl. 19:00 Lau 1/11 kl. 19:00
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Gullna hliðið –★★★★★ – H.A. - DV
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 4/10 kl. 13:00 10.k. Sun 19/10 kl. 16:30 Aukas. Lau 15/11 kl. 13:00 22.k.
Sun 5/10 kl. 13:00 11.k. Lau 25/10 kl. 13:00 17.k. Sun 16/11 kl. 13:00 Aukas.
Sun 5/10 kl. 16:30 12.k. Lau 25/10 kl. 16:30 18.k. Lau 22/11 kl. 13:00 23.k.
Lau 11/10 kl. 13:00 13.k. Sun 26/10 kl. 13:00 19.k. Sun 23/11 kl. 13:00 24.k.
Sun 12/10 kl. 13:00 14.k. Lau 1/11 kl. 13:00 Aukas. Lau 29/11 kl. 13:00 25.k.
Sun 12/10 kl. 16:30 Aukas. Sun 2/11 kl. 13:00 20.k. Sun 30/11 kl. 13:00 26.k.
Lau 18/10 kl. 13:00 15.k. Lau 8/11 kl. 13:00 Aukas. Lau 6/12 kl. 13:00
Lau 18/10 kl. 16:30 Aukas. Lau 8/11 kl. 16:00 Aukas. Sun 7/12 kl. 13:00
Sun 19/10 kl. 13:00 16.k. Sun 9/11 kl. 13:00 21.k.
http://www.borgarleikhus.is/syningar/lina-langsokkur/
Bláskjár (Litla sviðið)
Fim 2/10 kl. 20:00 5.k. Sun 12/10 kl. 20:00 6.k. Sun 9/11 kl. 20:30 8.k.
Þri 7/10 kl. 20:00 aukas. Sun 19/10 kl. 20:00 7.k. Mið 12/11 kl. 20:30 9.k.
Nýtt íslenskt verk eftir ungskáldið Tyrfing Tyrfingsson. Aðeins þessar sýningar!
Gullna hliðið (Stóra sviðið)
Fös 3/10 kl. 20:00 5.k. Fös 10/10 kl. 20:00 7.k. Fös 17/10 kl. 20:00 9.k.
Fim 9/10 kl. 20:00 6.k. Fim 16/10 kl. 20:00 8.k. Fös 24/10 kl. 20:00 10.k.
http://www.borgarleikhus.is/syningar/gullna-hlidid/
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Þri 30/9 kl. 20:00 4.k. Fim 23/10 kl. 20:00 11.k. Fim 6/11 kl. 20:00 18.k.
Mið 1/10 kl. 20:00 5.k. Fös 24/10 kl. 20:00 12.k. Fös 7/11 kl. 20:00 19.k.
Fös 3/10 kl. 20:00 6.k. Lau 25/10 kl. 20:00 13.k. Lau 8/11 kl. 20:00 20.k.
Sun 5/10 kl. 20:00 7.k. Sun 26/10 kl. 20:00 14.k. Fim 13/11 kl. 20:00 21.k.
Mið 8/10 kl. 20:00 8.k. Fim 30/10 kl. 20:00 15.k. Fös 14/11 kl. 20:00 22.k.
Fim 9/10 kl. 20:00 9.k. Fös 31/10 kl. 20:00 16.k. Lau 15/11 kl. 20:00 23.k.
Fös 10/10 kl. 20:00 10.k. Lau 1/11 kl. 20:00 17.k.
http://www.borgarleikhus.is/syningar/kenneth-mani/
Skálmöld: Baldur (Stóra sviðið)
Lau 4/10 kl. 20:00 2.k. Lau 11/10 kl. 20:00 2.k.
Epískir tónleikar með leikhúsívafi. Aðeins þessar sýningar!
Gaukar (Nýja sviðið)
Fim 2/10 kl. 20:00 3.k. Fös 17/10 kl. 20:00 7.k. Fös 31/10 kl. 20:00 11.k.
Sun 5/10 kl. 20:00 4.k. Lau 18/10 kl. 20:00 8.k. Lau 1/11 kl. 20:00 12.k.
Fös 10/10 kl. 20:00 5.k. Fim 23/10 kl. 20:00 9.k. Sun 9/11 kl. 20:00 13.k.
Sun 12/10 kl. 20:00 6.k. Sun 26/10 kl. 20:00 10.k. Fös 14/11 kl. 20:00 14.k.
http://www.borgarleikhus.is/syningar/gaukar/