Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.9. 2014
Mér finnst það bara fínt.
Benedikt Karl Gröndal, 28 ára.
Mér finnst mjög alvarlegt að menn séu sekt-
aðir fyrir samkeppnislagabrot.
Adolf Guðmundsson, 60 ára.
Ég hef ekkert fylgst með því máli. Ég get því
ekki tjáð mig um það.
Þórunn Elín Pétursdóttir, 42 ára.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Mér finnst það bara rosalega fínt. Vonandi að
einhver vakni varðandi það að svona samkeppni
þarf að eiga sér stað til þess að þessi smáu fyr-
irtæki komist að og að eitthvað annað en bara
þessi risafyrirtæki hafi eitthvað að segja.
Erla Karlsdóttir, 42 ára.
Morgunblaðið/Kristinn
SPURNING VIKUNNAR: HVAÐ FINNST ÞÉR UM AÐ MJÓLKURSAMSALAN HAFI VERIÐ SEKTUÐ UM 370 MILLJÓNIR?
Sturla Friðriksson erfðafræð-
ingur hefur gefið út forvitnilega
bók með endurminningum.
Hann segir meðal annars af
föður sínum, sem var annar
hinna framtakssömu Sturlu-
bræðra. Menning 54
Í BLAÐINU
Meðalaldur Íslendinga
1994 2004 2014
40
30
20
10
0
Heimild: Hagstofan
33,5 ár
35,5 ár 37,2 ár
REYNIR LYNGDAL
SITUR FYRIR SVÖRUM
Glæpir og drama
undir jökli
Forsíðumyndina tók
Eggert Jóhannesson.
Sue Hodder, einn fremsti vín-
gerðarmaður Ástralíu, var í
heimsókn hér á landi í vikunni.
Hennar nálgun er að blanda
saman aðferðum sem hafa sann-
að sig og nýjum og spennandi
aðferðum. Matur 30
Matreiðslumaðurinn og
veitingarhúsaeigandinn
Gunnar Karl Gíslasn
gaf nýverið út bókina The
New Nordic Cuisine of
Iceland, en hann vann að
bókinni í þrjú ár. Gunnar
gefur dýrindis uppskrift að
ljúffengu og einstaklega
smart snarli. Matur 34
Magnea Einarsdóttir og Sigrún Halla Unn-
arsdóttir sýndu fágaða prjóanlínu undir fyrirtæki sínu
Magneu. Magnea og Sigrún sóttu innblástur til bygg-
ingarsvæða í berlín og vinnufatnaðar. Tíska 42
Íslenski sakamálaþátturinn Hraunið rúllar af stað á RÚV á sunnudag. Reynir
Lyngdal leikstýrir þáttunum, sem gerðir eru eftir handriti Sveinbjörns I.
Baldvinssonar og eru sjálfstætt framhald Hamarsins, þátta sem sýndir voru
2011. Björn Hlynur Haraldsson er í aðalhlutverki sem fyrr.
Þú varst ungur farinn að kynna þig sem
kvikmyndagerðarmann. Var alltaf draumurinn að
búa til kvikmyndir?
Ég byrjaði frekar ungur að gera stuttmyndir og tónlistarmyndbönd
svo þetta var frekar borðliggjandi titill. Ég og félagi minn Arnar
Jónasson vorum ekki nema 15 ára þegar við hlutum fyrstu verðlaun
á Stuttmyndadögum í Reykjavík fyrir myndina Athyglissýki. Kvik-
myndagerðin hefur, frá því ég var barn, átt hug minn allan svo það
var aldrei neinn vafi hvað mig langaði að gera við líf mitt. Fyrst ég
gat ekki verið persónurnar á skjánum þá var það bara að skapa þær.
Hver var fyrsta myndin sem þú gerðir?
Fyrsta alvörustuttmyndin var fyrrnefnd Athyglissýki, svart/hvít grín-
mynd sem var gerð á Hi 8-vél. Hún fjallaði um strák sem á erfitt með að
fóta sig í skóla sökum athyglissýki. Í dag fengi þessi drengur líklegast grein-
ingu sem ofvirkur.
Þið Arnar unnuð stuttmyndadaga tvö ár í röð fyrir At-
hyglissýki og Matarsýki. Komu þessir sigrar ykkur á kort-
ið?
Já, ætli það ekki bara. Þetta var svolítið fyndið, okkur var boðið með mynd-
irnar á nokkrar kvikmyndahátíðir í Skandinavíu og víðar. Þar vorum við 15-
16 ára viðstaddir frumsýningu en komumst ekki inn í frumsýningarpartíin
sökum aldurs.
Á Kaffibarnum hófst svo Gullfoss og Geysir-ævintýrið og
þið spiluðuð um víða veröld. Spilið þið enn saman?
Við í Jói B í Gullfossi og Geysi erum enn að og aldrei verið betri. Við köllum
þetta ævintýri okkar oft trilluna. Þegar allt annað klikkar er alltaf hægt að fara út
á trillunni og fiska smá.
Nú átt þú tvö börn, Unu Margréti, 12 ára, og Nínu Magneu,
eins árs. Hefur foreldrahlutverkið breytt þér sem
kvikmyndagerðarmanni?
Að vera foreldri er það besta sem hægt er að hugsa sér og ég vona að það hafi gert
mig að betri manni. Ég sé alla vega heiminn öðru vísi núna en fyrir 12 árum.
Kvikmyndin Frost þótti ákaflega vel heppnuð hryllingsmynd. Er
hún komin í frost eða verður framhald?
Það er kannski ekki svo vitlaus hugmynd! Mér skilst á framleiðendunum að það séu
enn pælingar í gangi með endurgerð í Hollywood. Kannski gerir það fólk bara fram-
hald! Annars langar mig að gera meira grín, það verður vonandi næst, grínmynd.
Kitlan úr Hrauninu lofar góðu. Ertu að fara að halda þjóðinni í
heljargreipum á sunnudagskvöldum?
Ég vona að Hraunið verði fólki að skapi, ég get alla vega lofað glæpum og
drama undir Snæfellsjökli.
Morgunblaðið/Ómar
Í fókus