Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.9. 2014
* Vestfirðir hafa setið á hakanum í samgöngu-umbótum undanfarin ár og er sunnanvertsvæðið engin undantekning.
Elsa Lára Arnardóttir og fleiri þingmenn Framsóknar á bb.is
Landið og miðin
SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON
sbs@mbl.is
UM ALLT LAND
kv.
til
að setja fram skilyrði um
fari fram í fasteign sem er
Bæjaryfirvöld telja slíkt ák
til að hafa áhrif á uppbygg
bæjarfélaginu.
NESKAUPSTAÐUR
Framkvæmdir eru hafnar við byggingu fjögurra
íbúða raðhúss á einni
hæð við Sæbakka 25
í Neskaupstað. Nes
ehf. annast byggingu
hússins sem er u.þ.b.
500 fermetrar að
stærð og er hver íbúð
því um 125 fermetrar með innbyggðum bílskúr.
Stefnt er að því að hafa fyrstu íbúðina tilbúna til
afhendingar sumarið 2015.
VESTMANNAEYJAR
Forráðamenn Eyja Tours estmanní V
á að byggja þjónustuhús fyrir fer
Umhverfis- og skipulagsráð se
„Samkvæmt gildandi aðalski
lóðir í úteyjunu
þar á.“ Í Ellið
fyrir bjargn
bent
ÁRBORG
dis
s tels
000. íbúi
arfélaginu
Árborg. Drengurinn var 5 og 3.970 g og eru
foreldrar hans þau Helgi Ó son go Thelma
Karen Ottósdóttir.
Fulltrúi frá sveitarfélaginu Árborg hitti
fjölskylduna nú í vikunni o ði drengnum
peningagjöf, samfellu með 80
Árborgarbúinn“ og blómv
heimasíðu sveitarfélagsins
HÖRGÁRSVEIT
Unnið er að lagningu ljósleiðara um sveitarfélagið. Fyrirtækið Tengir hf. á
Akureyri gerði samning við sveitarfélagið um stuðning við verkefnið, þannig
nn eiðara að
voru á þessu ári og verið
erði tengdir við ljóslei
Einnig er búið að leggja stofnlagnir um hluta svæ
Bægisá. Ef veður leyfir verður byrjað á áföngum sem voru á áætlun
Að undanförnu hefur veriðunnið að margvíslegumumhverfisbótum í sunnan-
verðri Heiðmörk, sem á stundum
er nefnd Garðabæjarhlutinn. Skóg-
ræktarfélag Reykjavíkur (SR) hef-
ur umsjón með Heiðmerkursvæð-
inu og fyrir nokkrum misserum
var gert samkomulag milli félags-
ins og Garðabæjar um ýmsar fram-
kvæmdir sem nauðsynlegar þóttu.
„Þetta voru aðkallandi verkefni
sem höfðu dregist. En þegar sam-
komulag við sveitarfélagið var í
höfn var tekið til óspilltra mál-
anna,“ segir Helgi Gíslason, fram-
kvæmdastjóri SR.
Bætt, breytt og borið í
vegina
Heiðmörkin, sem er í jaðri höfuð-
borgarsvæðisins, er áhugaverður
staður sem nær yfir upplönd
Garðabæjar og Reykjavíkurborgar.
Svæðið er um 3.200 hektarar sem
er ámóta og allt byggt svæði í
Reykjavík.
Aðalæðin inn í Heiðmörkina er
þegar ekið er frá Suðurlandsvegi
við Rauðhóla í norðri fram að
Elliðavatni. Frá vatninu liggur leið-
in suðaustur svonefnda Hjallabraut
en þar eru nokkrir þeirra níu úti-
vistarlunda sem eru í Heiðmerkur-
skógum. Af þessum slóðum liggur
13 kílómetra langur vegur allt suð-
ur í Vífilsstaðahlíð og þar er ein-
mitt komið í Garðabæjarhlutann. Á
áðurnefndri leið er farið um fjöl-
breytt landslag um hraun, skóga,
opin svæði og svo mætti áfram
telja.
Í sumar voru, í krafti áðurnefnds
samkomulags við Garðabæ, útbúin
bílastæði við útivistarsvæðið í
Hjalladal og nærri Búrfellsgjá, þar
sem er vinsæl gönguleið. Aðstaða í
Vífilsstaðahlíð var lagfærð, bíla-
stæði bætt og mörkuð af og upp-
lýsingaskilti, merkingar, borð og
bekkir lagfærðir. Þá var grillskýli
á staðnum tekið niður. Allstórt
skóglendi við Vífilsstaðahlíðina var
grisjað og borið í vegarkafla sem
liggur jafnhliða háspennulínu á
þeim slóðum. Mest munar þó sjálf-
sagt um endurbætur á þeim hluta
Heiðmerkurvegar sem liggur í
Garðabæ. Voru þessar fram-
kvæmdir greiddar af sveitarfé-
laginu.
„Já, þar sem er ekið upp úr
Hjalladal upp á hálsinn hafði
runnið úr veginum og þar voru
komin hvörf svo þarna var nánast
ófært þegar verst lét. Þetta lög-
uðum við og nú er leiðin greið,“
segir Helgi. Hann bætir við að
fyrir nokkrum árum hafi Vega-
gerðin afsalað sér Heiðmerkurvegi
til sveitarfélaganna tveggja,
Reykjavíkur og Garðarbæjar, sem
hafi ekki viljað þiggja. Fyrir vikið
hafi verið nokkur rekistefna um
viðhald vegarins, en nú séu málin
komin á hreint.
Gróðursetja 100 þúsund
plöntur á ári
Umhirða skóganna, grisjun og um-
hverfisbætur hverskonar, eru eitt
helsta verkefni starfsmanna í Heið-
mörk. Þá er jafnt og þétt unnið að
gróðursetningu og í mold á ári
hverju fara um 100.000 plöntur.
Þar láta hópar sjálfboðaliða að sér
kveða. Í því sambandi nefnir Helgi
til dæmis Garðyrkjufélag Íslands
sem á reit með fjölbreyttu plöntu-
safni. Þá hefur verið mikil drift í
liðsmönnum skógræktarhóps SÁÁ
sem kalla sig Timburmenn.
HEIÐMÖRK
Bæta aðstöðu,
gróðursetja
og grisja
ÞAÐ ER HEILMARGT Í GANGI Í HEIÐMÖRK. ÚR ÝMSU HEF-
UR VERIÐ BÆTT Á SUNNANVERÐU SKÓGARSVÆÐINU,
SVO SEM Í HJALLADAL OG VÍFILSSTAÐAHLÍÐINNI EN
HVORT TVEGGJA ER VINSÆLT ÚTIVISTARSVÆÐI.
Helgi Gíslason við Vífilsstaðahlíð. Þar og annars staðar í suðurhluta Heiðmerkur hefur margt verið fært til betri vegar á
síðustu misserum. Samkomulag náðist við Garðabæ þar um, en þessi hluti svæðisins er innan marka sveitarfélagsins.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Einn af skemmtilegum stöðum í Heiðmörk er Thorgeirsstaðir. Húsið er í
norska stílnum og er í eigu Nordmannslage, sem er félag Norðmanna á Íslandi.