Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Page 19
28.9. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
New York-ferðalangar eiga helst ekki að
láta helgarferðina í haust eða vetur líða án
þess að líta inn í Brooklyn Museum, þótt
ekki sé nema í stutta stund.
Þar er sýning á háhæluðum skóm sem má
marga telja til listaverka og geta sýning-
argestir fengið að prófa að ganga í ein-
hverjum þeirra.
Yfirskrift sýningarinnar er „Killer Heels“
og eins og nafnið gefur til kynna er oft mjög
erfitt, jafnvel ógjörningur, að ganga á skón-
um en sýningunni er skipt niður í sex þemu
– eitt þeirra kallast til dæmis „geimganga“.
Þar má sjá afar framúrstefnulega skóhönnun
og oft furðulega og jafnvel er undarleg til-
finning að ganga á þeim. Skópörin eru öll
eftir heimsþekkta hönnuði og þekkta skó-
framleiðendur en þau eru frá ýmsum tím-
um, allt frá 4. áratug síðustu aldar til dagsins
í dag, en saga hárra hæla er rakin í heild á
sýningunni og er um margt merkileg. Skórn-
ir eru oftar en ekki verkfræðilegt listaverk
enda er eitt þemað í viðbót kallað „arki-
tektúr“ og þar má sjá hvernig hælaskór eru
uppbyggðir og tæknina á bak við hvernig
þeir eru framleiddir. Þá má geta þess að
einn hluti sýningarinnar kallast „Glamúr og
blæti“ og þar má meðal annars sjá svört
leðurstígvél sem Lady Gaga hefur gengið í,
með 20 sentimetra hæl.
Forvitnilega sýningu á háhæluðum skóm er að finna fyrir ferðalanga sem ætla til New York nú í
haust og vetur. Sýningin er í Brooklyn Museum og stendur fram í febrúar á næsta ári.
AFP
Nýstárlegt safn í New York
Það er alltaf að verða vinsælla að
ferðast og láta ferðalagið snúast
um göngur, jafnvel styttri sveita-
göngutúra í nánasta nágrenni hót-
elsins, og Bretland er þar frábær
kostur.
Í Wales er fjölbreytt úrval gisti-
staða sem bjóða göngugörpum upp
á heimilislegan kvöldverð eftir
göngu dagsins og hlýja krá og eru
með starfsfólk sem getur aðstoðað
við að velja gönguleiðir. The
Guardian birti úttekt á slíkum gisti-
stöðum í vikunni og má skoða
listann á vefsíðu þeirra, guardi-
an.co.uk.
Það er margt fyrir göngufólk að sækja
í Wales og margir gistimöguleikar.
Wikimedia Commons
Sveitagisting
í Wales
Seth Kugel er þess virði að bæta
við á vinalistann á Twitter. Kugel
kallar sig „The Frugal Traveler“ og
undir því nafni finnst hann á sam-
skiptasíðunni.
Hans helsta markmið er að
ferðast um allan heim og hans
helsta markmið er að ferðalögin
séu ekki kostnaðarsöm en
skemmtileg. Ferðalangurinn skrifar
einnig um ferðalög sín í Wash-
ington Post en á Twitter fylgjast þó
flestir með þessum sparnaðar-
ráðumhans en um hálf milljón
manna eru fylgjendur hans þar.
The Frugal Traveler er einn vinsælasti
Twitter-ferðalangurinn.
Deilir sparn-
aðarráðum