Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Blaðsíða 20
Þ ótt Marokkó tilheyri Afríku eru engar sérstakar hindranir fyrir ferða- menn að komast til landsins. Ekki þarf sérstaka vegabréfsáritun, eng- ar sprautur eru nauðsynlegar og ferðalagið er ekki sérlega langt held- ur. Flug frá London til Agadir tók til að mynda þrjár klukkustundir og 45 mínútur. Agadir er sjöunda stærsta borg Marokkó með tæplega 400 þúsund íbúa og hefur um árabil verið vinsæll sumarleyfisstaður bæði innfæddra og erlendra ferðamanna. Blaðamaður naut leiðsagnar Marokkóbúa af berbneskum upp- runa um Agadir og næsta umhverfi auk þess sem farið var í dagsferð til Marra- kech, einnar stærstu borgar Marokkó með um tvær milljónir íbúa. Marrakech er litríkur staður og gaman að ráfa um götur gamla bæjarins eða „medina“ þar sem götur eru þröngar og iða af lífi. Fjölbreytnin kristallast ágætlega í þeirri staðreynd að á göngu um borgina mættum við álíka mörgum sem drógu klyfjaða asna og óku um á vélknúnum vespum. Saga Marokkó er margbrotin og of langt mál væri að rekja öll þau ættarveldi araba og berba sem stýrt hafa þessu ríki sem stofnað var árið 789. Berbar eru frumbyggjar Marokkó en arabar komu síðar með nýja trú og siði. Um 98% þjóðarinnar eru múslimar, en berbar voru upphaflega kristin þjóð. Menning berba er þó í hávegum höfð og tungumál þeirra, berbneska, er nú orðið rík- ismál til jafns við arabísku. Marokkó var undir stjórn Frakka frá 1912 til 1956 og franska er víða töluð. Skilti eru jafnan á arabísku og frönsku en margir tala fína ensku þannig að samskipti við heimamenn eru frekar einföld og afslöppuð. Landið er nú þingbundið konungsveldi. Völd konungsins, Mohammeds VI sem tók við 1999, eru mikil þótt raunar hafi hann gert meira en nokkur forvera hans til að draga úr eigin valdi. Marokkóski kóngurinn hefur beitt sér fyrir margskonar umbótum á síðastliðnum áratug sem taldar eru einsdæmi í þess- um heimshluta. Mohammed VI er afar andsnúinn öfgatrú og hefur gert mik- ilvægar breytingar á löggjöf sem tryggt hafa réttindi kvenna, en fyrir hans tíð máttu konur t.a.m. ekki skilja við menn sína. Þá hefur hann lagst gegn fjöl- kvæni og gert breytingar á lögum sem torvelda slíkt. Leiðsögumaðurinn í ferð- inni leyndi ekki aðdáun sinni á kónginum og sagðist sjálfur telja stjórnmála- menn óþarfa þegar svona góður kóngur væri við völd. Hann var sérstaklega ánægður með baráttu kóngsins gegn fjölkvæni … enda skildi hann ekki að nokkur maður ætti að vilja eiga fleiri en eina tengdamóður! AGADIR Í MAROKKÓ Afslappað andrúmsloft Í MAROKKÓ BÚA 33 MILLJÓNIR MANNA Í FREMUR STRJÁL- BÝLU LANDI. TÆP 40% LANDSMANNA STARFA VIÐ LAND- BÚNAÐ EN FERÐAÞJÓNUSTA ER Í MIKILLI SÓKN OG YFIR- VÖLD Í MAROKKÓ VINNA NÚ AÐ ÞVÍ AÐ LAÐA FERÐA- MENN TIL LANDSINS. Texti og myndir: Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Í marokkóskri matargerð mætast ólíkir heimar; Afríka, Arabalönd, Miðjarðarhafið og berbnesk áhrif blandast saman. Kúskús er algengur mat- ur og er meira að segja notað í eft- irrétti – sem kem- ur skemmtilega á óvart. Í hinum uppmjóu „tagine“- leirpottum eru svo gjarnan bornir fram dýrindis kjúklingaréttir og lambakjöt. Ekta marokk- óskt brauð er eldbakað á steinum í sérstökum leirofni og er algjört lostæti beint úr ofninum. ELDBAKAÐ BRAUÐ OG KÚSKÚS 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.9. 2014 Ferðalög og flakk Markaðir þar sem kaupandi og seljandi þrátta um verðið eru algengir í Marokkó. Fyrir Íslendinga sem eru vanir því að lesa á verðmiða getur verið snúið að átta sig á hvað er eðlilegt að greiða fyrir hlutina. Mark- aðirnir eru jafnan yfirfullir af glingri og fólki. Þar má fá dýrindis marokkóska lampa, handofin teppi, skartgripi, leirpotta, leðurvörur og alls kyns handverk. Á mörkuðum sem heimamenn versla á sjálfir eru seld raftæki, húsgögn og í raun allt til heimilisins. Sölumennirnir geta verið ágengir og þegar ferðamenn birtast eiga þeir það til að verðleggja vöruna hátt. Útskorinn skartgripa- kassi átti að kosta 500 dirham að sögn sölumanns en fékkst loks á 200 dir- ham. Þrátt fyrir að það hafi hljómað ágætlega miðað við upphaflega 500- kallinn er í raun engin leið að vita hvort „rétt verð“ var jafnvel helmingi lægra. Góð þumalputtaregla á mörkuðum er að gera sér einhverja hug- mynd fyrirfram um hvað maður er tilbúinn að greiða fyrir hlutina og víkja ekki mikið frá því verði. Labba þá frekar bara á næsta bás ef verðið er óviðunandi. HVAÐ Á ÞETTA AÐ KOSTA? Í eyðimerkursandi um klukkustund frá Agad- ir var þennan fýr að finna undir tré. Hann vildi ólmur leyfa ferðafólki að taka myndir. Margar konur og karlar í Marokkó velja að klæðast hefðbundnum fatnaði en reyndar er allur gangur á því. Í Agadir og Marrakech mátti að minnsta kosti sjá allar útgáfur af fatastílum, rétt eins og í borgum annars staðar í heiminum. * Gjaldmiðillinn í Marokkó heitir dirham (DH)og jafngildir 1 DH um 14 íslenskum krónum. Víða eru verð gefin upp bæði í dirham og í evrum. * Kaffibolli10 DH / 1 EUR / 153 ISK * Bjór (oftast flöskubjór)22 - 35 DH / 2 - 3,5 EUR / 300 - 540 ISK * Máltíð á veitingastað80 -120 DH / 7 -11 EUR / 1.000 -1.700 ISK * LeigubíllTvenns konar leigubílar eru í gangi, a.m.k. í Agadir. Innanbæjarbílar eru með gjaldmæli en bílar sem ganga á lengri leiðum, t.d. frá flugvelli og inn í borg, rukka fast gjald fyrir tilteknar leiðir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.