Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Page 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.9. 2014 Heilsa og hreyfing Lindy hop er sveifludans sem þróaðist á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar í Harlem í New York. Hann varð til úr dönsum á borð við charleston og steppdans og þróaðist samhliða djasstónlist þess tíma og er yfirleitt dansaður við djass eða sveiflu- tónlist. Á þessum tíma voru aðalskemmtistaðirnir danssalir með lifandi tónlist. Þar spiluðu reglulega stórhljómsveitir þeirra Cab Calloway, Duke Ell- ington og Count Basie og mátti sjá skemmtilegt samspil hljómsveitar og dansara. Dansinn er byggð- ur upp á átta takta kerfi evrópskra samkvæmisdansa en blandar samt við það öðrum takttegundum og skrefum og jafnvel dönsum. Það er hægt að dansa í opinni og lokaðri stöðu, á móti hvoru öðru, hlið við hlið eða hvort í sínu lagi. Þetta frelsi í dansinum ger- ir hann mjög fjölbreyttan. Blómaskeið dansins var frá um 1920 til 1950, þangað til rokkið sigraði heim- inn. Hægt er að lesa meira um dansinn á vefsíðunni www.haskoladansinn.is. HVAÐ ER LINDY HOP? Fjölbreyttur sveifludans Ljósmynd/Arctic Lindy Exchange – Andrew Miller Myndirnar voru allar teknar á danshátíðinni Arctic Lindy Exchange í fyrra og sýna vel stemninguna í kringum lindy hop. Allir eru búnir að klæða sig upp og dansinn er í fullri sveiflu. Fanney segir að það sé hægt að læra mikið af því að dansa við nýtt fólk. F anney Sizemore byrjaði að dansa lindy hop fyrir ári og er kolfallin fyrir þessari hreyfingu sem felur líka í sér skemmtilegan félagsskap. „Ég fór á námskeið hjá Háskóladans- insum og fann minn dans,“ segir Fanney sem var búin að vera á leiðinni í þrjú ár áður en hún dreif sig af stað. Hún hefur náð góðum árangri á þessum tíma og þakkar það ástunduninni. „Ég fór strax að mæta á danskvöldin og þá er þetta fljótt að koma.“ Hún fór á æfingu einu sinni í viku í fyrra og beint úr tímanum á danskvöld. „Ég er núna aðstoð- armaður í Háskóladansinum í vetur og mæti aftur í byrjendatíma þar og er að æfa mig í að leiða. Fer svo í miðstigstímann og beint þaðan á danskvöld. Þannig að þetta eru svona fjórir til fimm tímar af dansi. Miðvikudagskvöldin eru bara lindy hop-kvöld.“ Danskvöldin eru haldin á staðn- um Ríó við Hverfisgötu. Alla jafna er þetta sportbar en þar er gott rými baka til sem lindy hop- dansararnir leggja undir sig. Á danskvöldum er venjan að hafa marga dansfélaga og ekki þarf að mæta með ákveðinn dansfélaga á námskeiðin. Í hverjum dansi er einn sem fylgir og annar sem leiðir. „Yfirleitt læra strákar að leiða en þetta getur verið öfugt,“ segir hún. Fanney hefur líka ást á djass- inum og sveiflutónlist þessa tíma, sem ýtir undir áhugann. Hún hlust- aði á tónlistina áður en hún byrjaði að æfa dansinn og klæddi sig enn- fremur í þessum stíl. „Það gengur ekki fyrir fólk að dansa við tónlist sem það er ekki hrifið af,“ segir hún. „Mér finnst líka þægilegt að vera í hreyfingu þar sem ég þarf ekki að vera í sér- stökum íþróttafötum.“ Pinnahælarnir duga skammt en það er hægt að vera á lágum dans- hælum. „Þetta eru svo mikil hopp. Ég er bara uppstríluð í striga- skóm.“ Margir virðast alveg heillast af lindy hop þegar þeir byrja. Hvað er svona heillandi við þetta? „Þetta er bara gleðidans. Það er ekki hægt að vera í vondu skapi og dansa lindy hop. Þetta er líka svo skemmtilegur félagsskapur,“ segir Fanney sem hefur kynnst fullt af nýju fólki á síðastliðnu ári. Aðgangur að tímavél Fyrir henni er líka hluti af aðdrátt- araflinu að fá þarna aðgang að tímavél og upplifa stemningu sem er ekki í boði annars. Hún útskýrir að það sé heilmikið samfélag í kringum lindy hop hér- lendis sem erlendis. „Útlendingar á ferð um Ísland hafa samband og spyrja um danskvöld. Ég hef ekki farið til útlanda síðan ég byrjaði að dansa en það fyrsta sem ég geri þegar ég fer út verður að finna danskvöld. Þetta er úti um allan heim og er opið og skemmtilegt samfélag.“ Reyndir dansarar koma hingað til lands þrisvar til fjórum sinnum á ári og halda námskeið. Hátíðin Arctic Lindy Exchange er síðan haldin einu sinni á ári hérlendis og henni fylgja mörg böll og nám- skeið. „Það gisti einn dansari frá Sví- þjóð, sem ég þekkti ekki áður, hjá mér á meðan hátíðinni stóð. Svo var maður að dansa við marga út- lendinga sem komu hingað að dansa. Maður lærir svo mikið á því að dansa við aðra,“ segir hún um síðustu hátíð. Það er hægt að taka vel á því í fjörugu lögunum í lindy hop og all- ir verða sveittir, segir Fanney. „Það er svo gaman að maður tekur varla eftir því fyrr en maður kem- ur heim,“ segir hún en þetta er sannarlega öðruvísi hreyfing en að mæta á líkamsræktarstöð. „Það er kannski ekki nóg að vera einu sinni í viku í dansi. En ég finn mun á sjálfri mér eftir að ég byrj- aði að dansa. Ég er oft með hug- ann við þetta og æfi spor í strætó- skýlum,“ gantast hún. 200. danskvöldið framundan Næsta ball verður haldið á 200. lindy hop-danskvöldinu 4. október. Upplýsingar um danskvöldin og böllin er hægt að finna á Facebook undir Reykjavík Rhythm Groove. Þrátt fyrir nafnið Háskóladans- inn er þetta opið öllum, ekki bara háskólanemum. Ennfremur er hægt að læra lindy hop hjá Lindy Ravers en næsta byrjendanámskeið fer af stað 2. október. Nánari upp- lýsingar er að finna á samnefndri Facebook-síðu. Lindy hop er ódýr líkamsrækt en annargjaldið er 7.000 krónur fyrir háskólanema og 10.000 krónur fyrir aðra. Gjaldið gildir í alla dansa sem Háskóla- dansinn býður upp á. Árgjaldið hjá Lindy Ravers er 4.000 krónur. MIKIÐ SAMFÉLAG Í KRINGUM LINDY HOP Dansar gleði- dans uppstríl- uð í strigaskóm Fanney Sizemore er búin að dansa lindy hop í ár. Hún klæðir sig alla jafna í anda dansstílsins. Morgunblaðið/Þórður Á MIÐVIKUDAGSKVÖLDUM DANSAR FANNEY SIZEMORE Í FJÓRA TIL FIMM TÍMA. HÚN KYNNTIST LINDY HOP FYRIR ÁRI OG ER KOLFALLIN FYRIR ÞESSUM DANSSTÍL OG STEMNINGUNNI Í KRINGUM DANSINN. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is * Mér finnst líkaþægilegt aðvera í hreyfingu þar sem ég þarf ekki að vera í sérstökum íþróttafötum. Á myndinni til hliðar má sjá eldri mann æfa í garði í Beijing á föstudag. Kínverskir miðlar greindu frá því að unga fólkið væri að þyngjast og hreyfði sig minna en þeir sem eldri eru. Rúmlega helmingur eða 51% fólks á aldrinum 20 til 39 ára stundaði enga skipulagða hreyfingu. Þetta er óvirkasti hópurinn á meðal fullorðna fólksins en eldra fólkið hreyfir sig meira. Eldra fólkið hreyfir sig meira

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.